Fréttablaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 76
1. september 2012 LAUGARDAGUR48
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
SIGRÚNAR ODDGEIRSDÓTTUR
Goðheimum 4, Reykjavík,
sem lést miðvikudaginn 8. ágúst.
Oddgeir Björnsson Rósa Ingibjörg Jónsdóttir
Matthías Björnsson Anna Elínborg Gunnarsdóttir
Birna Rún Björnsdóttir
Hildur Rún Björnsdóttir Hallur Guðbjartur Hilmarsson
og barnabörn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vináttu við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður
og ömmu,
ELÍNAR SIGRÍÐAR
JÓHANNESDÓTTUR
Borgarbraut 65a, Borgarnesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilis og heimahjúkrunar
Heilsugæslunnar í Borgarnesi og lyflækningadeildar Sjúkrahúss
Akraness fyrir góða umönnun og hlýju.
Gísli Þorsteinsson
Þorsteinn Gíslason Anna Bryndís Sigurðardóttir
Sigurlaug Gísladóttir
Ingibjörg María Gísladóttir
og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
vinkona, dóttir, systir og mágkona,
ANNA STEINUNN ÁGÚSTSDÓTTIR
Sjafnargötu 10, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 23. ágúst. Útför hennar
fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn
5. september kl. 13.00. Blóm og kransar
afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á Menntunarsjóð barnanna. Reikningsnúmerið er
0301-13-703715 og kennitalan er 040291-2459.
Kjartan Bjargmundsson
Elsa Kjartansdóttir
Bjargmundur Ingi Kjartansson
Ingibjörg Kjartansdóttir
Ragnheiður Ólína Kjartansdóttir
Ágúst H. Elíasson
Elsa Vestmann Stefánsdóttir Birgir Sigurðsson
Einar Ingi Ágústsson Ásta Margrét Guðlaugsdóttir
Elías Halldór Ágústsson Kristín Vilhjálmsdóttir
Eva Ágústsdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför
HALLDÓRS JÓNSSONAR
ökukennara frá Ísafirði.
Sasiprapha Udomsup
Ása Sigurlaug Halldórsdóttir Einar Óskarsson
Einar Halldórsson
Gunnar Þorsteinn Halldórsson
Fríður María Halldórsdóttir Þórður Marelsson
Anna Einarsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
KETILL LARSEN, leikari og listamaður, á afmæli í dag.
„Það eru svo margir sem þurfa leiðbeiningar í lífinu um hvað er rétt og hvað er rangt og þá er
Biblían hin besta bók, það er svo margt í henni um hvaða götu á að fara, hinn gullna meðalveg.“
78
Listamaðurinn Guðmundur Guð-
mundsson, betur þekktur sem Erró,
varð áttræður í júlí. Í tilefni þess er
opnuð yfirlitssýning í dag í Listasafni
Reykjavíkur Hafnarhúsi af merkustu
grafíkverkum hans, undir stjórn Dani-
elle Kvaran.
Erró ber aldurinn með reisn, er
beinn í baki og fjörlegur. „Ég hugsaði
alltaf þannig að ég væri heppinn ef ég
kæmist yfir árið 2000, nú er það löngu
liðið og tíminn flýgur áfram.
Erró kveðst hafa verið með sjötíu
manna afmæli í sumar á Spáni. „Ég
fann flamengódansara frá Sevilla sem
dönsuðu fyrir okkur í einn og hálfan
tíma svo ég þurfti ekki að segja orð!
Svo er þessi afmælissýning. Hún er
miklu skemmtilegri en eitthvert gilli
sem er gleymt næsta dag. Fólk getur
skoðað þessi verk í ró og næði, unga
fólkið getur kannski lært eitthvað af
þeim og orðið listamenn seinna.“
Rætur Errós eru á Kirkjubæjar-
klaustri þar sem hann ólst upp. „Þegar
ég kom til landsins núna fór ég beint
austur að Klaustri og var með hálf-
bræðrum mínum og systur í þrjá daga.
Við vorum með smá athöfn fyrir hana
mömmu í kapellunni og kirkjugarðin-
um á Klaustri. Svo verð ég í Reykjavík
í þrjá daga en sýning eftir mig verður
opnuð í París 6. september og önnur
í Kaupmannahöfn 14. september úr
Reykjavíkursafninu. Það eru klippi-
myndirnar.“
Erró býr aðallega í Frakklandi en
er dálítill farfugl í sér. „Ég fer allt-
af til Taílands í janúar og geri mínar
vatnslitamyndir, það er svo auðvelt að
rúlla þeim upp og flytja þær. Svo er
ég búinn að lofa Yoko Ono að koma til
Frankfurt. Hún sýnir þar 14. febrúar
sem er Valentínusardagurinn. Í París
geri ég stóru myndirnar, er allan dag-
inn á vinnustofunni einn. Kem svo
heim og spjalla við konuna og tala við
Gunnar B. Kvaran svona hér um bil
á hverjum degi. Það er eina æfingin
í að tala íslensku. Svo dvel ég alltaf
tvo mánuði á ári á Spáni og þar vinn
ég minni myndir. Mér finnst gaman
að skipta um staði og hitta fólk í mis-
munandi löndum. Það er sem sagt nóg
að gera og enginn tími til að vera gam-
all.“
Spurður hvort konan fylgi honum á
flakkinu svarar Erró. „Konan mín er
búddisti og er oft í burtu í nokkra mán-
uði í andlegum erindum. En hún kom
með mér hingað heim núna því hana
langaði að heilsa upp á fjölskylduna.“
Afmælisdagskrá verður í Listasafni
Reykjavíkur næstu vikurnar í formi
fyrirlestra, smiðju og námskeiða.
gun@frettabladid.is
ERRÓ: AFMÆLISSÝNING Í LISTASAFNI REYKJAVÍKUR HAFNARHÚSI
Enginn tími til að vera gamall
LISTAMAÐURINN „Ég hugsaði alltaf þannig að ég væri heppinn ef ég kæmist yfir árið 2000, nú
er það löngu liðið og tíminn flýgur áfram,“ segir Erró. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Á AFMÆLISSÝNINGUNNI Litskrúðugar myndir sem Erró vann fyrir sýningu í Gautaborg.
Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr,
mun opna yfirlitssýningu Errós í
Listasafni Reykjavíkur í dag og listamað-
urinn afhenda myndlistarverðlaun og
viðurkenningu úr sjóði sem kenndur er
við móðursystur hans, Guðmundu S.
Kristinsdóttur.
Annar viðburður afmælisdagskrár verður
á morgun klukkan 15. Þar er ungmennum
þrettán ára og eldri boðið að þrykkja
og kynnast grafíktækninni af eigin raun.
Leiðbeinandi er Anna Snædís Sigmars-
dóttir, grafískur myndlistarmaður og
kennari við Tækniskólann, en áður en
hafist er handa við að þrykkja verður
rýnt í grafíkverkin á sýningunni og þær
aðferðir sem Erró hefur beitt. Frítt er fyrir
ungmenni undir 18 ára aldri og handhafa
Menningarkortsins.
AFMÆLISDAGSKRÁ