Fréttablaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 92
lifsstill@frettabladid.is
Edda Hrund Guðmundsdótt-
ir kom á fót Face book-síðu
til að koma týndum böngs-
um aftur í réttar hendur.
„Það virðast allir hafa rosa mik-
inn skilning á því hvað bangsar
geta haft mikið tilfinningalegt
gildi, sérstaklega þeir sem eiga
börn eða hafa umgengist þau
mikið,“ segir Edda Hrund Guð-
mundsdóttir, sem stofnaði Face-
book-síðuna Týndir bangsar.
Á síðunni getur fólk sett inn
myndir af böngsum sem það hefur
fundið á víðavangi eða af böngsum
sem hafa glatast. „Strákurinn
minn týndi bangsanum sínum á
Laugaveginum árið 2009. Þegar
ég fór aftur í búðina þar sem hann
hafði orðið eftir höfðu tvær konur
fundið hann og tekið með sér. Mér
fannst skrítið að þær hefðu ekki
skilið hann eftir því oftast kemur
fólk aftur á sama stað og leitar.
Bangsinn var líka allur skítugur
og gulleitur svo hann hefur ekki
verið spennandi fyrir fólk sem
tengdist honum ekki tilfinninga-
böndum,“ segir Edda Hrund.
Bangsinn, Óli Lokbrá, hafði
verið í fjölskyldunni í þrjú ár eða
frá því að sonurinn fæddist og
var sorgin því mikil þegar hann
fannst ekki aftur. „Þetta var ótrú-
lega sárt og fyrir mig líka, það
kom mér rosalega á óvart. Við
höldum enn í vonina um að finna
hann aftur,“ segir hún.
Síðan á Facebook stækkar með
hverjum deginum og líkar nú vel
á þriðja hundrað manns við hana.
Eftirlýstir bangsar á netinu
SAKNA ÓLA LOKBRÁ Bangsinn Óli Lokbrá týndist á Laugaveginum árið
2009 og hans er enn sárt saknað á heimili Eddu Hrundar. MYND/EINKAEIGN
Í gegnum tíðina hafa bangsar verið vinsælir
sem teiknimyndapersónur og mikið til af
frægum böngsum. Þar má meðal annars
nefnda snillinga á borð við:
■ Paddington
■ Bangsa bestaskinn
■ Kærleiksbirnina
■ Jóga björn
■ og þann allra
vinsælasta,
sjálfan Bang-
símon.
FRÆGIR BANGSAR
„Ég vona að ein-
hver bangsi kom-
ist í réttar hendur
í gegnum síðuna,
það er það eina
sem ég er að leita
eftir því ég veit
hvað þeir geta skipt
miklu máli,“ segir Edda Hrund.
Allir geta líkað við Facebook-síð-
una og bætt þar inn myndum eða
miðlað upplýsingum og þannig
hjálpað týndum böngsum að
komast aftur í hlýjan faðm eig-
enda sinna.
tinnaros@frettabladid.is
ÓLI LOKBRÁ
TÍSKA Vefsíðan Fashionista.com hefur farið af stað
með matreiðsluþætti er nefnast Haute Cuisine.
Þar munu þekktir einstaklingar úr tískuiðnaðinum
elda uppáhaldsrétti sína með þáttastjórnandanum
David Yi.
Fyrstu gestir þáttarins eru Joe Zee, listrænn
stjórnandi Elle, og kærasti hans, Rob Younkers,
sem kennir við Parsons-skólann í New York. Zee
og Younkers elda humar og saltbollur sem er
þeirra uppáhaldsréttur. Þátturinn verður frum-
sýndur á vefsíðunni þann 4. september næst-
komandi.
Þetta er líklega í fyrsta sinn sem tískufrömuðir
fá tækifæri til að láta ljós sitt skína í eldhúsinu
og munu þættirnir án efa vekja nokkra athygli.
Tískuáhugafólk getur látið sig hlakka til og haldið
í vonina um að Karl Lagerfeld láti mögulega til-
leiðast, enda er maðurinn stórskemmtilegur og
mikill sælkeri.
Tískugúrúar heimsins láta ljós
sitt skína í matreiðsluþætti
KOKKAR Listrænn stjórnandi Elle Magazine, Joe Zee, er fyrsti
gestur kokkaþáttarins Haute Cuisine. NORDICPHOTOS/GETTY
KARLMANNA og þrjátíu prósent kvenna á aldrinum 20 til 60 ára fá bólur. Ástæðan fyrir bólunum er oftast
hormónar.
64 1. september 2012 LAUGARDAGUR
20%
Hallgrímskirkja
Skráning fermingarbarna vetrarins verður miðvikud. 5. sept.,
kl. 17:00 í safnaðarsal Hallgrímskirkju.
Foreldrar og/eða forráðamenn barnanna eru hvött til að
koma.
Prestar Hallgrímskirkju.
BESTU
BROTIN
AF X-INU
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag