Fréttablaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 58
1. september 2012 LAUGARDAGUR12
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar um forsendur ráðningar er að finna á heimasíðu Landspítala.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Fagleg ábyrgð
» Fjárhagsleg ábyrgð
» Starfsmannaábyrgð í umboði yfirlæknis hjartalækninga
Hæfnikröfur
» Íslenskt sérfræðileyfi í almennum lyflækningum með hjartalækningar
sem undirgrein
» Sérstök þekking og þjálfun í kransæðaþræðingum og
kransæðainngripum
» Leiðtogahæfileikar og stjórnunarreynsla er mikilvæg
» Reynsla af kennslu og vísindastörfum er mikilvæg
» Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
» Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2012.
» Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. janúar 2013 eða eftir nánara
samkomulagi til 5 ára.
» Upplýsingar veita Gestur Þorgeirsson, yfirlæknir hjartalækninga,
gesturth@landspitali.is og Vilhelmína Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri
lyflækningasviðs, vilhehar@landspitali.is, sími 543 1000.
» Umsóknum fylgi vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af
kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum ásamt sérprentun eða ljósriti
af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað.
» Umsóknargögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast, í tvíriti,
Gesti Þorgeirssyni, yfirlækni hjartalækninga, LSH 14EG við Hringbraut.
» Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar lækna hjá Landlæknis-
embættinu. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun
um ráðningu í starfið einnig á þeim auk mati stöðunefndar á innsendum
umsóknargögnum.
» Starfið er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. yfirlýsingu LSH vegna
kjarasamnings sjúkrahúslækna dags. 2. maí 2002, sbr. breytingu 5. mars
2006.
Yfirlæknir hjartaþræðingar
Laust er til umsóknar starf yfirlæknis hjartaþræðinga á lyflækningasviði
Landspítala. Yfirlæknirinn er ábyrgur gagnvart yfirlækni hjartalækninga.
Á hjartaþræðingastofu fer fram fjölbreytt starfsemi sem tekur m.a. til
kransæðaþræðinga, kransæðavíkkana, gangráðsísetninga og raflífeðlis-
fræðilegra aðgerða. Árlega eru gerðar á þriðja þúsund aðgerða á
hjartaþræðingastofum LSH og er bráðavakt þar allan sólarhringinn.
Hársnyrtistofan Mojó óskar
eftir metnaðarfullum hársnyrti
í stólaleigu.
Umsóknarfrestur:
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist
á birna@luka.is fyrir 09.09.2012.
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar um forsendur ráðningar er að finna á heimasíðu Landspítala.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Umönnun kvenna í fæðingu og umönnun nýbura
» Fagleg þróun umönnunar sem veitt er á deildinni
» Ýmis þróunarverkefni í ljósmóðurfræði og önnur verkefni
Hæfnikröfur
» Íslenskt ljósmóðurleyfi
» Góð samskiptahæfni
» Faglegur metnaður
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2012
» Starfshlutfall er 60 - 80% og veitast störfin frá 1. nóvember 2012 eða eftir
samkomulagi.
» Upplýsingar veitir Anna Sigríður Vernharðsdóttir yfirljósmóðir, netfang
annavern@landspitali.is, sími 824 5902.
Ljósmæður
Kvenna- og barnasvið
Kvenna- og barnasvið auglýsir laus til umsóknar tvö störf ljósmæðra á
fæðingardeild 23A.
Á fæðingardeild er veitt þjónusta við konur í eðlilegri fæðingu auk
þjónustu við konur með þekkta áhættuþætti í þungun sem þurfa sérhæft
eftirlit í fæðingu.
Framkvæmdastjóri
– meðeigandi – auðveld kaup
Smávörufyrirtæki á lágvöruverðsmarkaði óskar eftir
framkvæmdastjóra sem einnig myndi koma inn í
fyrirtækið sem meðeigandi.
Um auðveld kaup og einstakt tækifæri er að ræða.
Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á rekstri
og drifkraft til að ná hámarksárangri. Áhugasamir
vinsamlegast sendi upplýsingar og fyrirspurnir á
netfangið medeigandi@gmail.com.
Eftirlitsdýralæknir í Norðausturumdæmi
Matvælastofnun óskar eftir að ráða eftirlitsdýralækni í 100% starf
á umdæmisskrifstofu stofnunarinnar á Akureyri. Æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni:
• Heilbrigðiseftirlit í sláturhúsum
• Heilbrigðiseftirlit í stærri matvælafyrirtækjum
• Eftirlitsstörf á sviði dýraheilbrigðis og dýravelferðar
• Önnur tilfallandi störf sem starfsmanni kann að vera falin
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Dýralæknismenntun
• Æskilegt að umsækjandi hafi starfað við opinbert eftirlit
• Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
• Góð tölvu- og tungumálakunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Jónsson, héraðs-
dýralæknir (olafur.jonsson@mast.is) og Hafsteinn Jóh. Hannes-
son (hafsteinn.hannesson@mast.is) í síma 530-4800.
Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum nauðsynlegum
upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64,
800 Selfoss, merktum „Eftirlitsdýralæknir“ eða á
starf@mast.is. Umsóknarfrestur er til og með 12. september
2012. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu liggur fyrir. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
opinberra starfsmanna. Nánari upplýsingar um stofnunina má
nálgast á www.mast.is.
Sérfræðingur í matvælaeftirliti
Matvælastofnun óskar eftir að ráða starfsmann í fullt starf við
eftirlit með framleiðslu matvæla. Starfsmaðurinn mun heyra
undir skrifstofu matvælaöryggis og neytendamála hjá
stofnuninni.
Í fyrstu mun starfið einkum tengjast eftirliti með framleiðslu
sjávarafurða. Starfið mun útheimta umtalsverð ferðalög
innanlands.
Helstu verkefni:
• Skoðanir hjá matvælafyrirtækjum
• Úttektir á innra eftirliti (HACCP)
• Sértækt eftirlit vegna sjávarafurða
• Úttektir vegna leyfisumsókna
• Þátttaka í aðgerðum vegna samræmingar eftirlits
• Samskipti við leyfishafa
• Skýrslugerð og frágangur gagna í gagnagrunn
• Önnur verkefni sem starfsmanni eru falin
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun eða önnur framhaldsmenntun sem nýtist
í starfi
• Reynsla af eftirliti byggt á HACCP aðferðafræðinni er æskileg
• Þekking á lögum og gerðum EES um matvæli og fóður
er kostur
• Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Góð framkoma og lipurð í mannlegum samskiptum
• Góðir skipulagshæfileikar
• Góð tölvu- og tungumálakunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veita Garðar Sverrisson
(gardar.sverrisson@mast.is) og Hafsteinn Jóh. Hannesson
(hafsteinn.hannesson@mast.is) og í síma 530-4800.
Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum nauðsynlegum upplýsing-
um skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss,
merktum „Eftirlitsmaður“ eða með tölvupósti á
starf@mast.is en umsóknarfrestur er til og með 12. septem-
ber 2012. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin. Launakjör eru samkvæmt kjarasamn-
ingi opinberra starfsmanna. Nánari upplýsingar um stofnunina
er hægt að nálgast á vefsíðu hennar, www.mast.is.