Fréttablaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 78
1. september 2012 LAUGARDAGUR50
Hjúkrunar- og dvalarheimilið Hlíð á
Akureyri fagnaði hálfrar aldar afmæli
síðasta fimmtudag. Heimilið var vígt
29. ágúst 1962 á 100 ára afmæli Akur-
eyrarbæjar. Í upphafi hét það Elliheim-
ili Akureyrar og var byggt af Akur-
eyrarbæ með stuðningi kvenfélagsins
Framtíðarinnar. Fyrstu heimilismenn
voru sjö. Nú eru þeir 136 í níu heimil-
um, þar af níu í skammtímadvöl. Að auki
tilheyrir Hlíð raðhús með sextán íbúum.
Hátíðarstemning myndaðist strax að
morgni afmælisdagsins er sönghópur
fór á milli húsa Hlíðar kyrjandi afmæl-
issönginn, allir voru prúðbúnir og heim-
ilin skreytt fánum, blöðrum, greinum og
dúkuðum borðum. Í hádeginu var boðið
upp á lambalund sem rann ljúflega niður
með dýrindis rauðvíni. Eftir hádegi
sagði Brit Bieltvedt, framkvæmdastjóri
Öldrunarheimila Akureyrar, stuttlega
frá starfseminni og síðan hófust tón-
leikar Álftagerðisbræðra sem slógu í
gegn með söng og skemmtilegheitum.
Boðið var upp á rjómatertur og að
því loknu voru heimilin opnuð fyrir
gestum og gangandi og komu um fimm
hundruð manns í heimsókn. Þeirra á
meðal voru forseti Íslands, borgarstjóri
Reykjavíkur og bæjarstjóri Akureyrar,
bæjarfulltrúar og alþingismenn. Marg-
ir lögðu leið sína út í garð að kíkja á
hænsnin sem eru miklir gleðigjafar á
Hlíð. Á öllum heimilum var boðið upp
á kaffi, kleinur og konfekt og Domino’s
bauð íbúum og starfsfólki upp á pitsur
í kvöldmat.
Afmælisdagurinn var einnig valinn til
að afhenda lykla að nýju hjúkrunarheim-
ili við Vestursíðu á Akureyri sem hefur
fengið nafnið Lögmannshlíð. - gun
Afmælishátíð í Hlíð
SKAGFIRSKIR SÖNGVASVEINAR Álftagerðisbræður slógu í gegn í Hlíð. MYNDIR/FRIÐNÝ SIGURÐARDÓTTIR
Á TÓNLEIKUNUM Á annað hundrað manns hlýddi á tónleikana.
Hlynur Helgason mun í dag leiða safn-
gesti um sýningu Níelsar Hafstein, Við-
kvæmur farangur II, sem nú stendur
yfir í Nýlistasafninu. Leiðsögnin hefst
klukkan fjögur.
Níels Hafstein var aðalstofnandi
Nýlistasafnsins, formaður stjórnar
þess um árabil og heiðursfélagi í Félagi
Nýlistasafnsins. Á sýningunni eru ný
verk í bland við eldri og fylgir henni
gjöf verka til safnsins frá listamann-
inum.
„Sýningunni er ætlað að veita innsýn
í listsköpun Níelsar á breiðum grund-
velli en í ferli hans er að finna fínlegan
þráð í myndhugsun, allt frá efnismikl-
um skúlptúrum til örsmárra verka eða
stemminga. Varla er hægt að aðskilja
listköpun Níelsar og það mikla fram-
lag sem hann hefur átt í því vistkerfi
sem íslenskur myndlistarheimur er.
Hann hefur stofnað og komið á legg
tveimur söfnum, Nýlistasafninu árið
1978 sem var stofnað til þess að varð-
veita og stuðla að rannsóknum á sam-
tímamyndlist og svo Safnasafninu á
Svalbarðsströnd árið 1995 sem helgar
sig utangarðs- og alþýðulist,“ segir í til-
kynningu.
Dr. Hlynur Helgason, myndlistar-
maður og heimspekingur, er höfundur
texta í sýningarskrá sýningarinnar.
Sýningin stendur til sunnudagsins 9.
september.
Innsýn í verk Níelsar Hafstein
ÍHVOLF Meðal verka eftir Níels Hafstein sem
sjá má í Nýlistasafninu.
Ástkær faðir okkar, sonur, bróðir og mágur,
ALBERT PÁLSSON
lést þriðjudaginn 21. ágúst. Jarðarförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum auðsýnda samúð.
Anton Emil Albertsson
Benedikt Aron Albertsson
Guðrún Albertsdóttir Páll Björnsson
Birkir Pálsson Helga Stefánsdóttir
Hildur Pálsdóttir Einar Einarsson
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elsku móður minnar, tengdamóður,
ömmu og systur,
KRISTÍNAR JÓHANNESDÓTTUR
Logafold 162,
áður Mosarima 6.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Foldabæjar fyrir góða umönnun.
Björg Kristinsdóttir Baldur Guðgeirsson
Kristín Líf Abigail, Mikael Geir og Adam Geir
Jónína Pálsdóttir
Ástkær móðir okkar,
KRISTÍN ÓSKARSDÓTTIR (DÍDÍ)
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk 22. ágúst.
Jarðsungið verður frá Laugarneskirkju
fimmtudaginn 6. september kl. 13.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ingibjörg Ármannsdóttir
Björgvin Ármannsson
Hlynur Þór Ingólfsson
Óskar Ármannsson
Bjarnfreður Ármannsson
Ægir Örn Ármannsson
Anna Jóna Ármannsdóttir
Guðný Björk Ármannsdóttir
Þórleif Ármannsdóttir
Erla Dögg Ármannsdóttir
Sigurbergur Ármannsson
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞRÁINN KRISTINSSON
fyrrverandi skipstjóri,
Fagrahjalla 3, Kópavogi,
lést fimmtudaginn 30. ágúst. Útförin fer fram
frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn
6. september kl. 15.00.
Björg Helgadóttir
Þorbjörg Þráinsdóttir Magnús Ásgeirsson
Geir Þráinsson Kristín Sigurðardóttir
Halldór Þráinsson Steinunn Þ. Júlíusdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
HÖRÐUR G. HELGASON
rafvirkjameistari,
Staðarhrauni 15, Grindavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
miðvikudaginn 29. ágúst.
Sigurbjörg Ásgeirsdóttir
Helgi Einar Harðarson
Ármann Ásgeir Harðarson Ólafía Helga Arnardóttir
Sigurbjörg Brynja Helgadóttir
Katrín Lilja Ármannsdóttir
Ásgeir Bjarni Ármannsson
Elskuleg eiginkona mín, dóttir, móðir,
tengdamóðir og amma,
BIRNA INGIBJÖRG TOBÍASDÓTTIR
Rimasíðu 29g, Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 5. september kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Minningarsjóð Heimahlynningar á Akureyri.
Gísli Karl Sigurðsson
Guðrún Ingibjörg Björnsdóttir
Guðrún Gísladóttir Ottó Magnússon
Hulda Gísladóttir
og barnabörn.
Faðir okkar,
GUÐMUNDUR HANSEN
FRIÐRIKSSON
lést á líknardeild Landspítalans
fimmtudaginn 30. september.
Gísli Guðmundsson
Friðrik Hansen Guðmundsson
Kristján G. Guðmundsson
Árni J. Guðmundsson
og aðrir aðstandendur.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför
móður minnar, tengdamóður, ömmu
og langömmu okkar,
GERÐAR SIGURÐARDÓTTUR
frá Sleitustöðum í Skagafirði.
Ragnhildur Björk Sveinsdóttir Eiríkur Oddur Georgsson
Þorgerður Hulda Frisch Peter Frisch
Hugrún Ösp Reynisdóttir Ólafur Kjartansson
Trausti Eiríksson Helga Dagný Arnarsdóttir
Sverrir Ragnar og Lena Sóley
Elsku sonur okkar, bróðir og faðir,
RÓBERT EMANÚEL GLAD
Ingólfsstræti 7b, 101 Reykjavík,
andaðist á heimili sínu sunnudaginn
26. ágúst 2012. Útför hans fer fram frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 4. september
kl. 15.00.
Daniel Jóhannes Glad
Marianne Elisabeth Glad
Sam Daniel Glad
Clarence Edvin Glad
Barbro Elisabeth Glad
Anna Rakel Róbertsdóttir Glad
Ágúst Róbert Glad
Vigdís Marianne Glad
Ísak Emanúel Róbertsson Glad
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar ástkærs bróður okkar,
frænda og vinar,
STEINGRÍMS EGILSSONAR
frá Mið-Grund, Skagafirði, til heimilis að
Ægisgötu 6, Akureyri.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks
Lyflækningardeildar Sjúkrahúss Akureyrar fyrir góða umönnun.
Oddný Egilsdóttir
Gottskálk Egilsson
Lilja Egilsdóttir
frændfólk og vinir.