Fréttablaðið - 20.10.2012, Blaðsíða 50
20. október 2012 LAUGARDAGUR2
Við leitum að aðila sem hefur reynslu af:
· Microsoft Dynamics NAV forritun
· Forritun viðskipta- og verslunarkerfa
· Almennri forritun í bókhaldi
Einnig er kostur ef viðkomandi þekkir:
· Microsoft SQL og vinnslu gagnagrunna
· Forritun í Microsoft .NET umhverfinu (Visual Studio og C#)
· Almennri vefforritun og vefþjónustum Microsoft (ASP.NET og WCF)
Við leitum að aðila sem hefur brennandi áhuga á forritun og ef eitthvað vantar uppá reynsluna er gott umhverfi til að læra hjá okkur.
Við leggjum áherslu á fjölskylduvænt vinnuumhverfi og gerum vel við fólkið okkar.
Ekki hika við að hafa samband en allar nánari upplýsingar veitir Lind Einarsdóttir hjá Talent Ráðningum, lind@talent.is.
Umsóknarfrestur er til og með 5. nóvember nk. Umsækjendur er vinsamlega beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Talent Ráðninga, talent.is
Ert þú framúrskarandi?
Rue de Net leitar að metnaðarfullum forritara
www.ruedenet.is
Rue de Net Reykjavík - Vesturgötu 2a, 101 Reykjavík - Sími: 414 5050 - ruedenet@ruedenet.is
REYNSLA, ÞJÓNUSTA OG PERSÓNULEG RÁÐGJÖF
Rue de Net hefur yfir að ráða samstíga hópi sérfræðinga með áralanga reynslu af rekstri viðskiptakerfa,
innleiðingu og samþættingu viðskiptalausna. Við leggjum áherslu á nána og persónulega ráðgjöf þar sem
ráðgjafi Rue de Net kemur að verkferlinu frá byrjun til enda, frá sölu til afhendingar vöru, lausnar og þjónustu.
Hagstofa Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa í Rannsóknir og gagnasöfnun. Deildin
hefur umsjón með gagnasöfnun og framkvæmir úrtaksrannsóknir á vegum Hagstofu Íslands.
Starfssvið
Að undirbúa, forprófa og skipuleggja
rannsóknir.
Að vinna við framkvæmd rannsókna.
Að forvinna gögn úr rannsóknum og gera
þau aðgengileg til úrvinnslu.
Að vera ráðgefandi við undirbúning gagna-
söfnunar.
Þátttaka í teymi sem vinnur að mótun og
þróun aðferða við gagnasöfnun.
Hæfniskröfur
Háskólapróf sem nýtist í starfi, framhalds-
mennt un er kostur.
Góð aðferðafræði- og tölfræðikunnátta er
nauðsynleg.
Þekking á tölfræðihugbúnaði (svo sem R, SPSS).
Reynsla af gagnasöfnun er kostur.
Góð samstarfs- og samskiptahæfni.
Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
Sérfræðingur við rannsóknir og gagnasöfnun
Póstáritun Hagstofa Íslands, starfsumsókn, Borgartúni 21a, 150 Reykjavík
Netfang starfsumsokn@hagstofa.is
Upplýsingar Ólafur Arnar Þórðarson [olafur.thordarson@hagstofa.is]
Umsóknarfrestur er til og með 5. nóvember 2012. Um er að ræða fullt starf og er æskilegt að sá sem
ráðinn verður geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutað-
eigandi stéttar félags. Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins.
Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Hagstofa Íslands er sjálfstæð stofnun sem gegnir forystuhlutverki á
sínu sviði, samhæfir opinbera hagskýrslugerð á Íslandi og er virkur
þátttakandi í alþjóðlegu samstarfi. Hagstofan sinnir rannsóknum
og safnar, vinnur og miðlar áreiðanlegum hagtölum sem lýsa
samfélaginu. Stofnunin stuðlar að upplýstri umræðu og faglegum
ákvörðunum með því að tryggja öllum sama aðgang að upplýsingum.