Fréttablaðið - 20.10.2012, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 20.10.2012, Blaðsíða 6
20. október 2012 LAUGARDAGUR6 FRÉTTASKÝRING Hvenær verða úrslit þjóðaratkvæða- greiðslunnar ljós? Þriðja þjóðaratkvæðagreiðslan á lýðveldistímanum fer fram í dag. Alls hafa Íslendingar átta sinnum gengið að kjörborðinu í þjóðarat- kvæðagreiðslu, fyrst árið 1908 um áfengisbann. Fyrirkomulag kosninga og taln- ing atkvæða er á hendi yfirkjör- stjórna í hverju kjördæmi fyrir sig. Talningin er óvenju flókin að þessu sinni þar sem hver atkvæða- seðill er í raun sexgildur. Hvern seðil þarf því að telja sex sinnum. Í Norðausturkjördæmi verður sá háttur hafður á að atkvæðin á hverjum seðli verða slegin inn í tölvu. Búnt með 200 seðlum verða slegin inn og samtala þeirra skráð. Þannig vonast Páll Hlöðversson, formaður yfirkjörstjórnar, til að spara tíma. „Við teljum að þetta spari vinnu en vitum ekki enn hvort við höfum rétt fyrir okkur, það er ekki komin reynsla á þetta. Það hafa verið gerðar prufur og ég held að við munum einnig gera stikkprufur á hinn veginn og athuga hversu rétt þetta er.“ Með þessu fást fyrstu tölur úr öllum spurn- ingum samtímis. Talningin öll gæti hins vegar staðið fram á sunnudag. Katrín Theodórs- dóttir, formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjör- dæmi norður, segir hins vegar að fallið hafi verið frá þessari aðferð, að slá atkvæðin inn í tölvur. Þess í stað verði hver seðill talinn sex sinnum. Hún segir tölvuinn- slátt hafa verið reyndan en það hafi ekki gefið góða raun. „Þetta gaf ekki nógu áreiðan- lega útkomu og það kom svolítið af villum. Mitt mat var að sú leið væri ekki fær nema með tvítaln- ingu og þá er ávinningurinn af tölvuleiðinni horfinn.“ Katrín á von á að búið verði að telja 75-80% svara við fyrstu spurningunni um ellefu í kvöld. Hið sama á við um Reykjavík- urkjördæmi suður að sögn Sveins Sveinssonar, formanns yfirkjör- stjórnar. Allir seðlar verði taldir sex sinnum, byrjað verði á fyrstu spurningu og svo fari hver seðill aftur í flokkun og talningu. Ríkarður Másson, formaður yfirkjörstjórnar í Norðvestur- kjördæmi, segir ekki um annað að ræða en að telja hvern seðil sex sinnum. Hann á von á fyrstu tölum upp úr miðnætti. „Við rennum þó blint í sjó- inn með það,“ segir Ríkarður. Nákvæmlega sama orðalag not- uðu þeir Sveinn og Páll. Formennirnir eru sammála um að standi talningin langt fram á morgun verði talningafólkið sent heim til að hvílast og talning hefj- ist aftur að nýju á morgun. Því getur orðið nokkur bið á að niður- stöður liggi fyrir að fullu. Ríkisútvarpið verður með auka- fréttatíma í sjónvarpi í kvöld vegna kosninganna og hægt er að fylgjast með fyrstu tölum á Vísi. kolbeinn@frettabladid.is 1. Hversu mörg hús og jarðir á þjóðkirkjan? 2. Hvað heitir nýjasta bók Arnaldar Indriðasonar? 3. Með hvaða knattspyrnuliði ætlar landsliðsmarkmaðurinn Gunnleifur Gunnleifsson að spila á næsta ári? SVÖR: 1. 92 2. Reykjavíkurnætur 3. Breiðabliki Renna blint í sjóinn varðandi talninguna Þjóðaratkvæðagreiðsla um drög að stjórnarskrá fer fram í dag. Formenn yfir- kjörstjórna segjast renna blint í sjóinn varðandi umfang talningar. Atkvæði verða slegin inn í tölvu í einu kjördæmi. Talningu lýkur varla fyrr en á morgun. Á KJÖRSTAÐ Endanleg úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar liggja ekki fyrir fyrr en á morgun. Utankjörfundaratkvæði eru talin síðast. Frá utankjörfundaratkvæðagreiðslu í Laugardalshöll. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ár Álitaefni Þátttaka Samþykk Andvíg 1908 Áfengisbann 73,0% 60,1% 39,9% 1916 Þegnskylduvinna 53,0% 8,2% 91,8% 1918 Setning sambandslaganna 43,8% 92,6% 7,4% 1933 Afnám áfengisbanns 45,0% 57,7% 42,3% 1944 Afnám sambandslaganna 98,6% 99,5% 0,5% 1944 Setning nýrrar stjórnarskrár 98,6% 98,5% 1,5% 2010 Ríkisábyrgð vegna Icesave 62,5% 1,8% 98,2% 2011 Ríkisábyrgð vegna Icesave 75,0% 40,2% 59,8% Fyrri þjóðaratkvæðagreiðslur 118.833 konur 118.111 karlar 1 Vilt þú að tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar frum- varpi að nýrri stjórnarskrá? 2 Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði náttúruauðlindir sem ekki eru í einkaeigu lýstar þjóðar- eign? 3 Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um þjóðkirkju á Íslandi? 4 Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði persónukjör í kosningum til Alþingis heimilað í meira mæli en nú er? 5 Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að atkvæði kjósenda alls staðar að af landinu vegi jafnt? 6 Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að tiltekið hlutfall kosningarbærra manna geti krafist þess að mál fari í þjóðaratkvæðagreiðslu? Spurningarnar á kjörseðlinum Á kjörskrá eru 236.944 kjósendur Rjúpnaveiðina Útbúnaðinn í færðu í Everest 20%-40% afsláttur af öllum gönguskóm 30% afsláttur af öllum útivistarfatnaði 20% afsláttur af öllum bakpokum 20% afsláttur af Vango hitabrúsum, 4 stærðir 20% afsláttur af snjóþrúgum DÓMSMÁL Bæjarráð Kópavogs gerir ekki athugasemdir við að stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar (LSK) greiði máls- kostnað fyrrum stjórnarmanna í sjóðnum vegna dómsmáls. Lögmaður LSK hafði áður sagt að tveir bæjarstarfsmenn í Kópa- vogi, sem áður sátu í stjórn lífeyr- issjóðsins, ættu sjálfir að greiða 1.187 þúsunda króna reikning frá sameiginlegum lögmanni sínum. Var það vegna dómsmáls sem ríkið efndi til og þar sem fólkið var sýknað. Upphæðin er mismun- ur á þeim málskostnaði sem ríkið var dæmt til að greiða fólkinu og útgefnum 2,9 milljóna króna reikn- ingi lögmanns þeirra. Eins og fram kom í Frétta- blaðinu 8. október var gefin út ákæra á hendur fimm stjórnar- mönnum og framkvæmdastjóra LSK vegna 330 milljóna króna lánveitingar sjóðsins til Kópavogs- bæjar í janúar 2009. Stjórnarfor- maðurinn og framkvæmdastjórinn voru sakfelldir fyrir að hafa gefið Fjármálaeftirlitinu rangar upplýs- ingar og dæmdir til að greiða 150 þúsund króna sekt. Hinir fjórir stjórnarmennirnir voru sýknaðir, þar með taldir bæjarstarfsmenn- irnir tveir. Lögmaður sem lífeyrissjóður- inn fékk til að skoða málið sagði að af lögum og sam- þykktum yrði ekki annað ráðið „en að stjórnarmenn beri sjálfir ábyrgð á störfum og starf- rækslu sinni í þágu og á vegum lífeyrissjóðsins“ og að hvorki lög né samþykktir geymdu „fyrir- mæli eða vísbendingar um ábyrgð lífeyrissjóða sem slíkra á störfum stjórnarmanna“. Leitað var álits bæjarráðs í mál- inu þar sem Kópavogsbær greiðir rekstrarkostnað sjóðs- ins. - gar Lögmaður segir lífeyrissjóði óskylt að greiða málskostnað stjórnarmanna sem sýknaðir voru í dómsmáli: Bæjarráð gefur grænt ljós á málskostnað FRÉTTABLAÐIÐ 8. OKTÓBER Tveir starfsmenn Kópavogs eru ósáttir við að þurfa að borga lögmanni tæpar 1.200 þúsund krónur þrátt fyrir að hafa verið sýknaðir í dóms- máli vegna starfa fyrir lífeyris- sjóð bæjarstarfsmanna. 8. október 2012 MÁNUDAGUR 2 UMHVERFISMÁL Stjórn Landverndar fer fram á að Landsvirkjun stöðvi strax framkvæmdir fyrirtækisins við Bjarnarflag þar sem fyrir- hugað er að reisa 45 megavatta jarðvarma- virkjun. Nauðsynlegt sé að bíða þess að Rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúru- svæða hafi verið samþykkt á Alþingi. Einnig fer Landvernd fram á að nýtt umhverfismat vegna virkjunarinnar verði unnið enda sé það sem liggur fyrir að verða tíu ára gamalt. Guðmundur Hörður Guðmundsson, formað- ur Landverndar, segir að framkvæmdirnar sem nú séu hafnar óafturkræfar og veki furðu þar sem framkvæmda-, virkjana-, og rekstrar- leyfi liggi ekki fyrir. „Það er verið að byrja á öfugum enda. Annað er að umhverfismatið sem fyrirtækið byggir á er tíu ára gamalt en síðan er komin mikil reynsla á jarðvarmavirkj- anir hér á landi. Sú reynsla er ekki öll góð.“ Landsvirkjun hefur mótmælt því að óeðli- lega sé staðið að framkvæmdum við Bjarnar- flag. Á heimasíðu fyrirtækisins segir að um undirbúningsframkvæmdir sé að ræða. Fyrir- tækið hafi sótt um framkvæmdaleyfi fyrir landmótun á stöðvarhússlóð fyrirhugaðrar virkjunar til sveitarfélagsins nýlega og fengið. Álfheiður Ingadóttir, formaður umhverf- is- og samgöngunefndar, hefur boðað fulltrúa Landsvirkjunar, Landverndar og sveitarfélags- ins til fundar. - shá Landsvirkjun og Landvernd deila um framkvæmdir fyrirtækisins við Bjarnarflag: Landvernd vill stöðva framkvæmdir FRAMKVÆMDIR VIÐ BJARNARFLAG Landvernd telur framkvæmdirnar unnar „í gloppu“ skipulagslaga, en því mótmælir fyrirtækið. MYND/LANDVERND SPURNING DAGSINS DÓMSMÁL Tveir starfsmenn Kópa- vogsbæjar sem sátu í stjórn Líf- eyrissjóðs starfsmanna Kópa- vogs í hruninu og sýknaðir voru af ákæru um ólöglega lánveit- ingu úr sjóðnum til bæjarins sitja uppi með hundruð þúsunda króna málskostnað umfram dæmdar málsvarnarbætur. Þeir vilja að lífeyrissjóðurinn greiði mismun- inn. Stjórn Lífeyrissjóðs starfs- manna sveitarfélaga hefur yfir- tekið Lífeyrissjóð starfsmanna Kópavogs og fékk mál starfs- mannanna tveggja inn á borð til sín. Sjóðurinn óskar nú umsagn- ar frá bæjaryfirvöldum í Kópa- vogi. Bæjarráð fjallaði um málið á fimmtudag en frestaði afgreiðslu þess. Starfsmennirnir tveir höfðu sameiginlegan lögmann. Honum voru dæmdar 1.732 þúsund krón- ur úr ríkissjóði í málsvarnarlaun en sú upphæð dugar ekki til.Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, var einn sex einstaklinga sem ákærðir voru í málinu. Ómar var stjórnarmaður í Lífeyrissjóði starfsmanna Kópa- vogs á þeim tíma sem málið rekur upphaf sitt til. Hann var sýknað- ur og það sama gildir um Flosa Eiríksson, þáverandi bæjarfull- trúa Samfylkingar og stjórnar- mann í sjóðnum.Hvorugur þeirra Ómars og Flosa hefur óskað eftir sambæri- legri fyrirgreiðslu og starfs- mennirnir tveir. Ómar segir mál- inu hins vegar fjarri því lokið af sinni hálfu.„Fjármálaeftirlitið og fjármála- ráðherrann þáverandi sviptu mig ærunni með því ð kd að taka mig úr stjórn sjóðs-ins. Síðan kom í ljós að ég var saklaus – eins og var vitað frá fyrstu mínútu,“ segir Ómar sem kveðst vera að athuga sína réttar-stöðu, meðal annars með tilliti til skaðabóta. „Það er algjörlega óásættanlegt að vera sviptur ærunni skömmu fyrir prófkjör Þaðá enda var þetta fólk niðurlægt í réttarsalnum,“ segir Ómar.Í málinu var Gunnar I. Birgis- son, bæjarfulltrúi Sjálfstæðis- flokks og þáverandi bæjarstjóri, sakfelldur í maí síðastliðnum ásamt þáverandi framkvæmda- stjóra lífeyrissjóðsins fyrir 330 milljóna króna lánveitingu úr sjóðnum til Kópavogsbæjar án lagaheimildar í janúar 2009. Þeir voru hvor fyrir sig dæmdir til að greiða 150 þúsund króna sekt „Við ákvörðun refsilít Vilja ekki sitja saklaus uppi með málskostnað Stjórnarmaður í Lífeyrissjóði starfsmanna Kópavogs, sem sýknaður var af aðild að ólöglegri lánveitingu úr sjóðnum, segist hafa verið sviptur ærunni. Tveir aðrir stjórnarmenn vilja að lífeyrissjóðurinn greiði það sem á vantar í málskostnað. KÓPAVOGUR Tveir bæjarstarfsmenn sem sátu í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs sitja uppi með lögfræðikostnað þrátt fyrir sýknu í dómsmáli gegn þeim. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LÖGREGLUMÁL Íbúi í miðborginni brást illa við þegar þrír menn migu utan í svefnherbergis-glugga hans í fyrrinótt. Hann hljóp nakinn út úr íbúð sinni vopnaður því sem lögregla kallar „frumskógarsveðju“ og rass-skellti mennina.Eftir að hafa tuktað þremenn- ingana til fór hann aftur inn til sín en var fljótlega handtekinn, látinn klæða sig og færður á lög- reglustöð þar sem honum var gert að útskýra viðbrögð sín.Lögregla áréttar að það varði sektum að kasta af sér vatni á almannafæri. - sh Nakinn maður handtekinn:Rassskellti þrjá gluggamíga með sveðju VEÐUR Krapasnjór var á Holta- vörðuheiði í gær og hálkublettir og éljagangur á Öxnadalsheiði. Hálkublettir voru á Bröttu-brekku, Fróðárheiði, Vatnsskarði og Þverárfalli. Snjóþekja var einnig á flestum fjallvegum á Vestfjörðum.Veðurstofan segir að þar sem vegir á láglendi eru blautir og sums staðar er krapi, myndast fljótlega ísing eftir að dimmir, einnig á láglendi. shá Ísing þegar dimma tekur:Færð á heiðum spilltist í gær Verða bændur áberandi á lista lögreglu? „Bændur munu bera sig vel, enda um rangan áburð að ræða.“Tilkynna þarf magnkaup á áburði sam- kvæmt nýju vopnalagafrumvarpi. Meðal- bú á Íslandi notar hins vegar ekki undir 20 tonnum á ári. Haraldur Benediktsson er formaður Bændasamtakanna. PARÍS, AP Frakkar efla nú öryggis- gæslu við bænastaði gyðinga eftir að púðurskotum var skotið að samkunduhúsi í Argenteuil í úthverfi Parísar á laugardags- kvöld. Francois Hollande, Frakklands- forseti, hitti leiðtoga franskra gyðinga í gær og lofaði að berjast á móti öfgum og gyðingahatri „af mikilli hörku“. Hann lofaði aukinni öryggisgæslu við helga staði gyðinga „á næstu dögum eða klukkutímum“ í tilraun til að koma í veg fyrir frekEi Frakklandsforseti lofar:Vakta bænahús gyðinga í París ÓMAR STEFÁNSSON KOSNINGAR Freyja Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri NPA miðstöðv- arinnar, hefur ákveðið að bjóða sig fram á lista Bjartrar framtíðar fyrir alþingiskosningarnar í vor.Freyja stefn-ir á að bjóða starfskrafta sína í Krag-anum, eða SV-kjördæmi, en ákvörðun um skipun á lista l iggur ekk i fyrir frá hendi stjórnar flokks-ins.Freyja segir að áhugi sinn á stjórnmálum hafi kviknað á þeim tíma sem hún starfaði á vett- vangi stjórnlagaráðs, en fram til þess tíma hafi hún mest beitt sér í mannréttindabaráttu fatlaðs fólks. Freyja segir það ekki hafa heill- að að starfa fyrir fjórflokkinn. „Björt framtíð er nýr flokkur sem birtist mér sem vettvangur þar sem stjórnmál eiga að vera af- slöppuð og um leið ábyrg, áhersla er á róttækni í mannréttinda- málum og unnið sé að jafnvægi á öllum sviðum samfélagsins. Það heillar mig.“ - shá Björt framtíð fær liðsauka:Freyja býður sig fram til þings FREYJA HARALDSDÓTTIR VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.