Fréttablaðið - 20.10.2012, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 20.10.2012, Blaðsíða 80
20. október 2012 LAUGARDAGUR48 timamot@frettabladid.is „Við unglingarnir höfum mjög mik- inn metnað fyrir Vinavikunni, erum öll saman að skipuleggja viðburði vikunnar. Stefán Már Gunnlaugs- son, presturinn okkar, hefur hjálp- að okkur með hugmyndirnar, en við framkvæmum þær svo,“ segir Sverrir Hrafn Friðriksson, nemandi í 10. bekk í Vopnafjarðarskóla. Unglingar í æsku- lýðsstarfi Vopnafjarðarkirkju hafa sett mikinn svip á bæinn í vikunni. Þeir hafa, nú þriðja árið í röð, staðið fyrir Vinaviku í bænum. Vikan hófst síð- astliðinn sunnudag með Vinabíói og á hverjum degi í vikunni hafa unglingar í bænum staðið fyrir skemmtilegum uppákomum. Sverrir Hrafn segir vik- una hafa gengið mjög vel. „Við höfum gert margt mjög skemmtilegt í vikunni. Á mánudag vöknuðum við eldsnemma, klukkan sjö, og gengum um bæinn og settum fallega orðsendingu á dyrahúna hjá fólki í bænum. Við stóðum fyrir Vina- skrúðgöngu á fimmtudag og feng- um marga bæjarbúa til að taka þátt í henni, enda vorum við reyndar búin að vekja mikla athygli á henni með því að fara um bæinn í traktorsvögnum fyrr í vikunni,“ segir Sverrir Hrafn. Vopnfirsk ungmenni hafa í Vinavik- unni einnig bankað upp á hjá íbúum bæjarins og boðist til að aðstoða þá við húsverkin. „Það er mjög vinsælt að fá okkur til þess að þrífa glugga og sópa stéttir.“ Í gær buðu ungmennin svo upp á knús og fóru létt með það. „Við erum ekkert feimin við að vera vinaleg og ekkert að hugsa um hvort við séum kjánaleg. Það eru allir svo ánægðir með okkur og maður verður auðvitað svo miklu vinalegri þegar maður tekur þátt í Vinavikunni.“ Sverrir Hrafn hefur tekið þátt í Vinavikunni í þau þrjú ár sem hún hefur verið haldin en nemendur í 8., 9., og 10. bekk standa að vikunni. Markmið unglinganna er að safna sér fyrir ferð á landsmót æskulýðsfélaga á Egilsstöðum. „Söfnunin gengur mjög vel, en við erum ekkert að hugsa um hana öllum stundum, heldur erum bara að njóta lífsins í Vinavikunni.“ Á morgun er lokadagur vikunnar og ein aðaluppákoman, Kærleiksmara- þonið. „Þá bjóðum við í kaffi og kökur í safnaðarheimilinu að lokinni messu, og svo er pitsuveisla og flugeldasýning líka,“ segir Sverrir Hrafn að lokum. sigridur@frettabladid.is VINAVIKA Á VOPNAFIRÐI: UNGLINGAR SETJA SVIP SINN Á BÆINN Kærleiksmaraþon og knús GRÆN OG VÆN Unglingarnir á Vopnafirði hafa málað bæinn grænan í vikunni íklædd grænu. Einnig skreyttu þau með grænum borðum, gáfu grænar blöðrur og fóru í fyrirtæki og stofnanir og heilsuðu upp á gesti og gangandi. UM BÆINN Í GLEÐI OG SÖNG Vopnfirskir unglingar á ferð um bæinn á miðvikudag þegar græni liturinn var allsráðandi. SNOOP DOGG, bandarískur rappari á stórafmæli í dag. „Það er of auðvelt fyrir börn að komast í slæman félagsskap og byrja að neyta eiturlyfja. Við verðum að gera það jafn auðvelt fyrir börn að mennta sig og stunda íþróttir.“ 40 Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN STEFÁNSSON fyrrv. framhaldsskólakennari, Hlíðarhúsum 3, Reykjavík, lést á Landakoti sunnudaginn 14. október. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 22. október kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Orgelsjóð Grafarvogskirkju. Sefán Bogi Stefánsson Kristín Jóhannesdóttir Karólína Sigfríð Stefánsdóttir Þórður Björgvinsson Elín Pálsdóttir Vigfús Þór Árnason afa- og langafabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, DAVÍÐ GUÐLAUGSSON fyrrv. skipstjóri, Hagaflöt 9, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju fimmtudaginn 25. október kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Sjúkrahús Akraness. Guðm. Rúnar Davíðsson Margrét Sigurðardóttir Sigurður Grétar Davíðsson Hólmfríður D. Guðmundsdóttir Harpa Hrönn Davíðsdóttir Búi Gíslason barnabörn og barnabarnabörn. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Alúð - virðing - traust Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts GÍSLÍNU MARGRÉTAR ÓSKARSDÓTTUR Dvergagili 30, Akureyri. Tryggvi Valsteinsson og fjölskylda. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, HALLGRÍMS V. MARINÓSSONAR Hellisgötu 1, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Karitas – heimahjúkrunar og starfsfólki krabbameinsdeildar 11E á Landspítalanum við Hringbraut fyrir alúð og virðingu í veikindum hans. Einnig þökkum við vinum og vandamönnum sem veitt hafa stuðning og kærleika. Arndís K. Sigurbjörnsdóttir Margrét Hallgrímsdóttir Sigurbjörg Hallgrímsdóttir Kristján Jónsson Kristín Hallgrímsdóttir Birgir Björnsson Katrín Kristín Hallgrímsdóttir og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR Þ. BJARNAR sem lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni 16. september sl. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 1. hæðar Sóltúns fyrir einstaka umönnun. Sigrún I. Sigurðardóttir Skarphéðinn Þórisson Ingibjörg Sigurðardóttir Kristján Jóhannsson Dóra Sigurðardóttir Birgir Þórarinsson Egill Þór Sigurðsson Sigrún Edda Jónsdóttir Anna Laufey Sigurðardóttir Birgir Þórisson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra VALGEIRS G. VILHJÁLMSSONAR Árskógum 8, Reykjavík. Starfsfólk Hjúkrunarheimilisins Skógarbæjar fær sérstakar þakkir fyrir góða umönnun og hlýhug. Anna Dagrún Magnúsdóttir Sigríður Jónsdóttir Kolbrún Gunnlaugsdóttir Erla Rannveig Gunnlaugsdóttir Pálmar Guðmundsson Gunnlaugur K. Gunnlaugsson Guðríður Ágústsdóttir og fjölskyldur. Eiginkona mín, SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR andaðist á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki fimmtudaginn 18. október. Jarðarförin auglýst síðar. Rögnvaldur Gíslason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.