Fréttablaðið - 20.10.2012, Blaðsíða 55
LAUGARDAGUR 20. október 2012 7
Hjúkrunarfræðingar / Læknar
Skurð- og Svæfingahjúkrunarfræðingar
Við hjá Xtra Personell Care vinnumiðlun
verðum í Ráðhúsi Reykjavíkur á Euros
starfakynningunni föstudaginn 26. október
frá kl. 16-19 og laugardaginn 27. október
frá kl. 12-17.
Endilega kíkið á okkur og fáið upplýsingar
um störf heilbrigðisstarfsfólks í Noregi.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Eyrún - Liv og May Britt
sími: 511 1144
VILT ÞÚ STARFA Í
BANKA
ATVINNULÍFSINS?
Innri endurskoðun
Stjórn MP banka óskar eftir að ráða innri endur skoðanda bankans. Innri endurskoðun
starfar óháð öðrum deildum í skipulagi bankans, er þáttur í eftirlitskerfi hans, heyrir undir
stjórn og ber ábyrgð gagnvart henni og endurskoðunarnefnd, sem er þriggja manna
undirnefnd stjórnar. Nefndin gerir tillögu til stjórnar um val á innri endurskoðanda.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Nathalía Druzin
Halldórsdóttir nathalia@radum.is og Hildur Erla
Björgvinsdóttir hildur@radum.is hjá Ráðum
atvinnustofu í síma 5196770. Umsóknarfrestur
er til og með 31. október n.k.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja
um starfið á heimasíðu Ráðum, www.radum.is.
Með umsókn skal fylgja greinargóð ferilskrá og
kynningarbréf. Farið er með allar umsóknir og fyrir -
spurnir sem trúnaðarmál.
Um MP banka
MP banki er ört vaxandi íslenskur viðskiptabanki með
um 120 starfsmenn. Hann er leiðandi í árfestingar-
bankastarfsemi, þekktur fyrir afbragðs árangur í
eignastýringu á innlendum sem erlendum mörkuðum,
og er auk þess eini íslenski bankinn sem er að fullu
í eigu einkaaðila.
Ármúli 13a / Borgartún 26 / +354 540 3200 / www.mp.is
Starfssvið og ábyrgð
Leiðir, skipuleggur og stjórnar starfsemi innri
endurskoðunar
Metur hvort innra eftirlit í daglegri starfsemi
sé í fullnægjandi horfi
Vinnur með stjórnendum til að tryggja að til staðar
sé skilvirkt eftirlitsumhverfi
Hefur yfirsýn yfir eftirlitsþætti s.s. áhættustjórnun,
öryggi, fylgni við lög og reglur
Samhæfir störf innri endurskoðunar við aðrar
eftirlitseiningar innan bankans
Umsjón með úttektum og skýrslugjöf til endur-
skoðunarnefndar og stjórnar
Hæfni og þekking
Meistarapróf í reikningshaldi og endurskoðun
eða sambærilegt
Þekking og reynsla af endurskoðun eða störfum
á fjármálamarkaði
Gott vald á íslensku og ensku
Skipulögð, hlutlæg og vönduð vinnubrögð
Góðir samskiptahæfileikar og geta til að
vinna sjálfstætt
Regluvörður og ábyrgðarmaður
aðgerða gegn peningaþvætti
MP banki óskar eftir að ráða regluvörð og ábyrgðarmann samkvæmt lögum nr. 64/2006
um aðgerðir gegn peningaþvætti o.fl. til starfa.
Um hlutverk regluvarðar í starfsemi bankans fer samkvæmt 6. gr. reglugerðar nr.
995/2007 um fjárfestavernd og viðskiptahætti fjármálafyrirtækja, leiðbeinandi tilmælum
Fjármálaeftirlitsins nr. 5/2011 um stöðu og verksvið regluvörslu fjármálafyrirtækja,
erindisbréfi regluvarðar og innri reglum bankans. Hlutverk ábyrgðarmanns vegna aðgerða
bankans gegn peningaþvætti, er að bera ábyrgð á að ákvæðum laga gegn peningaþvætti
o.fl. nr. 64/2006 auk reglugerða, reglna, leiðbeinandi tilmæla og innri reglna bankans
sé framfylgt.
Starfssvið og ábyrgð
Eftirlit, áætlanagerð og skýrsluskil
Umsjón og þátttaka í reglulegri endurskoðun
innri reglna
Fræðsla og ráðgjöf til starfsmanna
Samskipti við eftirlitsaðila
Náið samstarf við lögfræðisvið
Hæfni og þekking
Skipulögð, öguð og vönduð vinnubrögð
Þekking og reynsla af bankastarfsemi eða önnur
sambærileg reynsla sem nýtist í starfi
Þekking á lögum og bestu framkvæmd við regluvörslu
og aðgerðir gegn peningaþvætti
Próf í lögfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi
Gott vald á íslensku og ensku
Frumkvæði og faglegur metnaður
Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar