Fréttablaðið - 20.10.2012, Blaðsíða 96
20. október 2012 LAUGARDAGUR64
Nýjustu bók Arnaldar
Indriðasonar, Reykjavík-
urnætur, var fagnað á
útgáfuhófi í Iðnó í gær-
kvöldi. Arnaldur segir það
skemmtilega tilhugsun að
hverfa aftur til fyrstu ára
Erlendar.
Í Reykjavíkurnóttum, sem
kemur út 1. nóvember, skrifar
Arnaldur á nýjan leik um Erlend
en í síðustu bók, Einvíginu, var
kollegi hans Marion í aðalhlut-
verki. „Mér fannst það svolít-
ið skemmtileg tilhugsun eftir
Furðustrandir að hverfa aftur
til fyrstu ára Erlendar í lögg-
unni og sjá hvað hann var að
bralla,“ segir Arnaldur um nýju
bókina. „Það sem svona leiddi
mig áfram í því var að ég held
að þetta sé öðruvísi nálgun á
viðfangsefnið, sem maður sér
ekki oft í seríum eins og þess-
um.“
Egill Örn Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Forlagsins, steig í
pontu í Iðnó og talaði um Arnald
og bækur hans. Auglýsingaefni
tengt bókinni var einnig kynnt,
auk þess sem kynntur var bók-
salaleikur sem verður í gangi
í nóvember. Keppt verður um
bestu uppstillinguna á bókinni
og í verðlaun verður út að borða
fyrir allt starfsliðið á Steikhús-
inu fyrir allt að eitt hundrað
þúsund krónur.
Gítarleikarinn Arnar Pétur Stef-
ánsson og harmónikkuleikarinn
Margrét Arnardóttir spiluðu í
hófinu tónlist frá áttunda ára-
tugnum en bókin gerist á þeim
tíma. - fb
AFTURHVARF HJÁ ARNALDI
ARNALDUR OG EGILL Höfundurinn Arnaldur Indriðason ásamt Agli Erni Jóhannssyni,
framkvæmdastjóra Forlagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BRYNDÍS MEÐ BAKKA Bryndís Loftsdóttir hjá Eymundsson sá um að nóg væri
til af drykkjum í hófinu. Við hlið hennar eru þær Svanborg og Ninja.
MÆTTU Í ÚTGÁFUHÓF Kristín María Kristinsdóttir og
Birkir Sveinbjörnsson voru á meðal gesta.
Í IÐNÓ Valgerður Benediktsdóttir og Haukur Olavsson
tóku þátt í fögnuðinum.
BROSMILDIR Rithöfundurinn Guðmundur Andri Thorsson
og Grímur Björnsson brostu í myndavélina.
Bíó ★★★★ ★
Sundið
Leikstjórn og handrit Jón Karl Helgason. Sýnd í Bíó Paradís.
Glíman við sundið
Eitt af aðalsmerkjum góðrar heimildarmyndar er vel til fundið viðfangsefni.
Eitthvað sem fær mann til að velta fyrir sér hvers vegna engum hafi áður dottið
í hug að taka það fyrir. Í þessari annarri heimildarmynd hins margreynda
kvikmyndatökumanns Jóns Karls Helgasonar ratast honum einmitt á einkar vel
til fundið viðfangsefni. Ekki nóg með það heldur afrekar hann að setja það í
víðara og enn áhugaverðara samhengi.
Útgangspunktur myndarinnar er kapphlaup tveggja íslenskra eldhuga,
nafnanna Benedikts S. Lafleur og Benedikts Hjartarsonar, sem þeir háðu á
árunum 2007 og 2008 um að verða fyrri til að afreka að verða fyrstur Íslendinga
til að synda yfir Ermarsundið. Það fór ekki mikið fyrir þessu kapphlaupi á sínum
tíma – í það minnsta fór það að mestu fram hjá undirrituðum – og því þeim
mun betur til fundið hjá Jóni Karli að ná að festa þessa atburðarás á filmu.
Hann matreiðir hana líka á einlægan og grípandi máta og tekst ekki aðeins vel
upp við að endurskapa þá miklu spennu sem ríkti á meðan á sundtilraunum
stóð heldur varpar hann skýru ljósi á hversu gríðarlegt þrekvirki það er að synda
yfir Ermarsundið. Þar býr Jón Karl bersýnilega vel að allri reynslunni en hann
hefur komið sérlega víða við, allt í senn við gerð kvikmynda, heimildarmynda,
auglýsinga og sjónvarpsþátta.
Inn í kapphlaupið um Ermarsundið tvinnar hann svo áhugaverð og vel við-
eigandi brot úr sögu sundsins á Íslandi frá upphafi landnáms til samtímans;
sviðsett og leikin innskot sem flest hver eru haganlega gerð. Á stöku stað rjúfa
þau reyndar helst til of bratt og tefja meginframvinduna, einkum framan af, en
þó aldrei meira en svo að myndin rígheldur frá upphafi til enda.
Skarphéðinn Guðmundsson
Niðurstaða: Heiðarleg, grípandi og að mestu vel gerð heimildarmynd um
áhugavert og vel til fundið viðfangsefni.
Tónleikar sigur vegara
Busoni keppninnar
Heimspíanistar í Hörpu
Í Norðurljósum 22. október
Miðasala á www.harpa.is
Sérstakur gestur er
Víkingur Heiðar Ólafsson.
Hinn heimsþekkti Alfred
Brendel heldur masterklassa
23.–25. október frá 10–13.