Fréttablaðið - 20.10.2012, Blaðsíða 46
FÓLK|
eyrum eða þar til foreldrar mínir skildu.
Eftir það bjó ég með mömmu hér og þar
en fór vestur til pabba í öllum fríum.
Þegar grunnskólagangan var hálfnuð
flutti ég svo alfarinn í sveitina og kláraði
skólaskylduna þar,“ útskýrir Ásmundur
sem enn býr í Dölunum en leigir kjallara-
íbúð í Vesturbænum þar sem hann
dvelur í miðri viku.
„Þingmannsstörfin eru svipuð því og
að vera úti á sjó. Kona mín og dætur
prófuðu að búa hjá mér í höfuðstaðnum
í fyrravetur en líkaði ekki veran fyrir
sunnan. Við ákváðum því að skólaganga
eldri stelpunnar hæfist í sveitinni,“ segir
Ásmundur sem oftast fer heim á Lamb-
eyrar um helgar.
SVEITIN TOGAR
„Sveitin togar alltaf enda hvergi betra
að vera. Í sveitinni ríkir kyrrð og nálægð
við náttúruna. Þar er allt hreinna og heil-
brigðara. Þar gefst líka meiri tími til að
vera saman og samfélag við fólk verður
þéttara og nánara.“
Ásmundur segir vinnuvikurnar á
þinginu of þéttbókaðar til að tími gefist
fyrir heimþrá. „Ég sakna auðvitað
fjölskyldunnar og missi af daglegri
tilveru dætra minna. Því bera helgarfríin
dálítinn keim af pabbahelgum en það
er hluti af því að búa í sveit en vinna í
borg,“ segir Ásmundur. Í helgarfríum
gefst honum einnig tími til að næra
bóndann í sjálfum sér. „Þá fer ég í
fjárhúsgallann og gúmmískó, fæ skít
undir neglurnar og sigg í lófa. Það er
mér jafn mikil nauðsyn og að fara í
smalamennsku til fjalla.“
UPPRUNINN MIKILVÆGUR
Ásmundur segir ekki hafa
verið á stefnuskránni að verða
stjórnmálamaður. „Ég hef alltaf
haft áhuga á nærsamfélaginu og á
mér brenna málefni sem snúa að
landsbyggðinni. Því leiddi eitt af öðru
og ég endaði á þingi. Þar hef ég þó ekki
hugsað mér að vera til eilífðarnóns,
eða til þess eins að geta titlað mig
alþingismann, en mig klæjar í fingurna
að láta gott af mér leiða.“
Ásmundur lifir stoltur eftir þeirri
kenningu að minnast uppruna síns, sögu
og menningu. „Slíkur hugsunarháttur
skiptir Íslendinga miklu um leið og þeir
þurfa að vera opnir fyrir nýjungum
og framtíðinni. Uppruninn er það sem
gerir okkur að Íslendingum og að vera
meðvituð um það gerir okkur sterkari
og öflugri sem þjóð. Mér finnst örstutt
síðan ég var barn og tíminn líður svo
sannarlega hratt. Þegar maður er barn
langar mann að verða stór en þegar
maður er orðinn fullorðinn áttar maður
sig á hversu frábært og áhyggjulaust
líf það er að vera barn. Við megum
því aldrei taka okkur svo hátíðlega að
gleyma barninu innra með okkur. Ég lifi
eftir því mottói.“ ■ thordis@365.is
LÍFSGLEÐI
„Þegar maður er
barn langar mann
að verða stór, en
þegar maður er
orðinn fullorðinn
áttar maður sig
á hversu frábært
og áhyggjulaust
líf það er að vera
barn.“
■ FRAMHALD AF FORSÍÐU
Þau Snorri Jónsson og Judith Orlis-hausen hafa hannað nýja íslenska herraskólínu úr laxaroði undir vöru-
merkinu RE 101. Fyrirtækið hefur selt
skólínu sína á Ítalíu um nokkurt skeið með
góðum árangri. „Skórnir eru gerðir algjör-
lega úr roði. Það er tilvalið að nota roðið
með öðru en erfiðara að gera heila skó úr
því. Það fer mikið roð í þá og það er mikil
vinna fyrir skósmiðinn að púsla bútunum
saman. Það var því svolítið erfitt að fá
framleiðendur til að gera þá,“ segir Snorri,
hönnuður og meðeigandi RE 101.
Skórnir eru úr laxaroði frá Sjávar-
leðri á Sauðárkróki og eru handsaumaðir
samkvæmt gamalli hefð í litlu upplagi af
fjölskyldufyrirtækjum á Ítalíu og Portú-
gal, en RE 101 hefur valið þessa aðila af
kostgæfni. „Það er stefna fyrirtækisins að
skila framúrskarandi hönnun og gæðum,
en bera samt fulla virðingu fyrir fólki
og umhverfi. Þess vegna voru evrópsk
fjölskyldufyrirtæki valin fram yfir verk-
smiðjur í Asíu og þetta sérstaka íslenska
hráefni, laxaleður. Þessi áhersla á sjálf-
bærni í iðnaði er að aukast og fólk er farið
að hugsa meira um umhverfið, menn,
dýr og jarðveg. Því finnst gaman að vita
að varan sé unnin úr aukaafurð úr mat-
vælaframleiðslu sem annars yrði hent en
í staðinn verður úr henni lúxusvara.“
Snorri segir gæðin í íslenska roðinu
vera mjög mikil og ekki sambærileg ann-
ars staðar. „Ég hef sjálfur gengið í svona
skóm og er með eitt tveggja ára par sem
hefur verið notað við íslenskar aðstæður
sem ég sýni kaupendum. Þeir líta mjög
vel út og liturinn og áferðin situr mjög
föst í roðinu.“
Nýja vetrarlínan fyrir veturinn 2013-
2014 var að koma í hús hjá RE 101 nú á
dögunum. „Við erum tímanlega í þessu
af því að skórnir taka tíma í framleiðslu.
Sú lína er áætluð í sölu næsta haust en
línan sem er í verslununum núna er mjög
klassísk og við munum ekki skipta
út heilum línum á hverju
ári. Þessir skór verða því
áfram í sölu.“
Nýju íslensku herraskórnir
verða fyrst um sinn eingöngu fáanlegir á
tveimur stöðum á landinu, í Kraum og í
Duty free fashion á Keflavíkurflugvelli.
Skóframleiðsla er ekki það eina sem
þau Snorri og Judith eru að dunda
sér við því þau reka einnig fyrirtækið
Reykjavík Distillery sem framleiðir
nokkrar tegundir af víni. Flöskur fyrir-
tækisins hlutu á dögunum alþjóðleg
hönnunarverðlaun og verða samstarfs-
félagarnir, Snorri og Judith, í Berlín nú
um helgina en þar fer fram opnunarhá-
tíð sýningar á þeim vörum sem fengu
verðlaun. „Verðlaunin eru mikil alþjóð-
leg viðurkenning á okkar hönnun sem
við erum mjög stolt af.“ ■ lilja.bjork@365.is
SKÓR ÚR LAXAROÐI
HANDSAUMAÐIR HERRASKÓR Tískufyrirtækið RE 101 framleiðir íslenska
herraskólínu úr laxaroði. Skórnir eru unnir úr roði sem annars yrði hent.
RE 101
Hönnunarteymið Snorri
og Judith ásamt Höllu
Bogadóttur í Kraum sem
er þeirra hægri hönd í
skósölunni.
MYND/ANTON
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Nýtt teppi á stigaganginn –
nú er tækifærið !!!!
Eitt verð - niðurkomið kr. 5.790 m2
Verðdæmi:
70 fermetra stigahús með 8 íbúðum
Heildarverð 405.300 kr
Vsk af vinnu 39.825 kr
pr. íbúð aðeins 45.684 kr
Komum á staðinn með prufur og mælum,
ykkur að kostnaðar lausu
BÓKHALD, ÁRSREIKNINGAGERÐ,
SKATTARÁÐGJÖF.
HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Póstdreifing býður upp á fjölbreytta og örugga dreifingu á blöðum og
tímaritum. Við komum sendingunni í réttar hendur. Örugglega til þín.
Birtingur treystir okkur fyrir öruggri
dreifingu á Júlíu
Póstdreifing | Suðurhraun 1 | 210 Garðabær | Sími 585 8300 | www.postdreifing.is
B
ra
nd
en
bu
rg
Við skutlum
Júlíu heim