Fréttablaðið - 20.10.2012, Blaðsíða 61
20. október 2012 LAUGARDAGUR13
Ráðgjafarfyrirtækið Alta leitar að góðu fólki til liðs við sig
- Tveimur starfsmönnum í Reykjavík og einum í Grundarfirði
Við leitum að fólki sem hefur víða sýn, opinn hug og metnað til að ná árangri við fjölbreytt verkefni með sérþekkingu
á sviði skipulagsmála, umhverfismála, byggðaþróunar, ferðamála, landfræði, landslagshönnunar, stefnumótunar eða
verkefnisstjórnunar.
Hæfniskröfur
Ráðgjafi með starfsstöð í Grundarfirði
Æskileg sérþekking á einhverjum eftirtalinna sviða
• Almenn verkefnisstjórnun
• Stefnumótun og breytingastjórnun
• “Regional eða place branding”
• Umhverfis- og gæðamál
• Skipulagsmál
• Miðlun og fræðsla
Nánari upplýsingar veita Halldóra Hreggviðsdóttir
halldora@alta.is og Björg Ágústsdóttir bjorg@alta.is
Ef þú hefur menntun og reynslu á þessum sviðum og
áhuga á að takast á við þessi verkefni með Alta, sendu
okkur umsókn á netfangið alta@alta.is
Umsóknarfrestur er til og með 4. nóvember.
Alta er framsækið fyrirtæki sem
grípur óhikað tækifæri sem gefast
í breytilegum heimi.
Við störfum við margskonar við-
fangs efni m.a. á sviði stefnu mót-
unar, skipulags, byggða þróunar og
umhverfismála.
Verkefnin eru fjölbreytt, þver fag-
leg, krefjandi og skemmtileg.
Frjótt andrúmsloft, samhent starfs-
fólk og gott vinnuumhverfi gerir
Alta að eftirsóttum vinnustað.
Sjá nánar um okkur á www.alta.is
Alta ehf
Ármúla 32 108 Reykjavík
Sími 582 5000
www.alta.is
• Forvitni, áhugi og frumkvæði
• Opinn hugur og virðing fyrir fjölbreyttum sjónarmiðum
• Tilhneiging til að setja hlutina í margvíslegt samhengi
• Að leysa verk vel af hendi í samstarfi við aðra
• Háskólamenntun með framhaldsgráðu á ofangreindum
sérsviðum
• Starfsreynsla æskileg
• Að geta orðað hugsun sína skipulega á íslensku, ensku
og helst einu Norðurlandamáli
Ráðgjafi í umhverfismálum með
starfsstöð í Reykjavík
Æskileg sérþekking á sem flestum eftirtalinna sviða
• Umhverfisstjórnun og/eða innleiðing á kröfum
umhverfismerkja
• Gæðastjórnun
• Stefnumótun
• Vistvæn innkaup
• Samfélagsábyrgð fyrirtækja
• Miðlun og fræðsla
Ráðgjafi í skipulagsmálum með
starfsstöð í Reykjavík eða Grundarfirði
Æskileg sérþekking á sem flestum eftirtalinna sviða
• Vinnsla svæðisskipulags, aðalskipulags og deiliskipulags
• Byggðaþróun
• Umhverfismat áætlana
• Landslags- og sérstöðugreining svæða
• Hönnun almenningsrýma og útivistarsvæða
• Landfræðileg upplýsingakerfi og kortagerð
• Miðlun og fræðsla
Verkefnisstjóri
Háskólafélag Suðurlands auglýsir starf sérfræðings til gerðar fræðslu- og kynningarefnis fyrir Kötlu Jarðvang.
Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu með IPA styrk og á að fara í styrkingu innviða í jarðvanginum sem nær
yfir sveitarfélögin þrjú; Skaftárhrepp, Mýrdalshrepp og Rangárþing eystra.
Verkefnið felur m.a. í sér gerð hvers konar kynningarefnis og fræðsluefnis til notkunar í jarðvanginum, m.a. fyrir
skólahópa, erlenda og innlenda, en einnig texta og myndefni fyrir ferðamenn á skilgreindum áfangastöðum
(geosites) í jarðvanginum.
Við leitum að öflugum einstaklingi með háskólapróf í jarðfræði eða skyldum greinum. Kennslureynsla og/eða
reynsla af gerð fræðslu- eða kynningarefnis er æskileg. Þekking á jarðfræði svæðisins er æskileg og starfsstöð
verkefnisstjórans verður í jarðvanginum. Um fullt starf er að ræða.
Umsóknir, m.a. með upplýsingum um menntun og starfsreynslu, berist Háskólafélagi Suðurlands eigi
síðar en 5. nóvember. Nánari upplýsingar veita Sigurður Sigursveinsson (sigurdur@hfsu.is, s. 897-2814) og
Steingerður Hreinsdóttir (steingerdur@sudur.is, s. 848-6385) en auk þess er bent á vefsíðurnar
www.jardvangur.is og www.katlageopark.is.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og eigi síðar en 1. desember 2012 en það er þó samnings-
atriði. Um er að ræða tímabundna ráðningu til 30. júní 2014, með möguleika á
framlengingu.
Háskólafélag Suðurlands ehf er í eigu sveitarfélaganna á Suðurlandi og var stofnað 19. desember 2007. Félagið
myndar þekkingarnet á Suðurlandi og er tilgangur þess að auka menntunarstig og búsetugæði á svæðinu, með
uppbyggingu þekkingarsamfélags, betra aðgengi að háskólanámi, auknum rannsóknum og fjölbreyttari atvinnu-
tækifærum.
Katla Jarðvangur (Katla Geopark) er sjálfseignarstofnun sem var stofnuð 19. nóvember 2010. Stofnaðilar eru
sveitarfélögin Skaftárhreppur, Mýrdalshreppur og Rangárþing eystra, Kirkjubæjarstofa, Kötlusetur, Skógasafn,
Stofnun rannsóknarsetra Háskóla Íslands og Háskólafélag Suðurlands. Jarðvangurinn vinnur að því að vernda
og nýta jarðminjar svæðisins í þágu sjálfbærrar þróunar og eflingu byggðarinnar með jarðfræðitengdri ferða-
mennsku (geotourism) sem byggi á fræðslu um jarðminjar, samspil manns og náttúru, og útivist.
Launafl óskar eftir að ráða:
Reynda rafvirkja
með full réttindi til starfa nú þegar
Nánari upplýsingar veitir
Adda Ólafsdóttir, starfsmannastjóri og
Magnús Helgason, framkvæmdastjóri.
Hægt er að senda fyrirspurnir og umsóknir á
adda@launafl.is eða magnus@launafl.is.
www.launafl.is – sími 414-9400
Launafl ehf er iðnfyrirtæki í Fjarðabyggð.