Fréttablaðið - 25.10.2012, Síða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Fimmtudagur
skoðun 18
3 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Fólk
Slysabætur
Hillur & skápar
veðrið í dag
25. október 2012
251. tölublað 12. árgangur
Kynningarblað Lagerhillur, bókahillur,
verslunarhillur, hillukerfi og sérsmíðaðar hillur.
HILLUR
FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2012
&SKÁPARSLYSABÆTURFIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2012 Kynningarblað um þjónustu lögfræðinga í slysa- og skaðabótamálum.DÝRIR EN ÖÐRUVÍSI SKÓR
Flestar konur elska fallega skó. Gaman er að skoða þá en enn skemmtilegra að ganga á þeim. Nicholas Kirkwood er sérfræðingur í öðruvísi kvenskóm og það er afar
áhugavert að skoða úrvalið hjá honum á
síðunni nicholaskirkwood.com.
Vinkonurnar Soffía Theódóra eigið fyrirtæki í tí k i
TÍMARIT UM TÍSKUÁHERSLA Á NORÐURLÖND Tvær tískumeðvitaðar konur sem búa í New York hafa stofnað nýtt veftímarit, °N Style Magazine, sem kemur út í næstu viku.
VIÐ MANHATTAN-BRÚ
Stofnendur °N Style Ma-
gazine búa í New York en
eru stoltar af því að vera frá
Norðurlöndunum.
Fim, fös, lau verður þessi haldari á 20% afslætti áður kr. 5.800,-
nú kr. 4.640,- ATH frí póstsending
AÐEINS FYRIR ÞIG - næstu 3 daga - 20% AFSLÁTTUR
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-18 virka daga.
10-14 laugardaga
Opið kl. 9 -18 laugardaga kl. 11 - 16 Stórhöfða 25 569 3100 eirberg.is
L i
og auka afköstDagljósin – Bæta líðan
UMHVERFISMÁL Mikil saur mengun
greindist í Elliðavatni í nýrri rann-
sókn, sjöfalt yfir þeim mörkum
sem teljast ásættanleg í reglu-
gerð um varnir gegn mengun
vatns. Einnig finnst saurmengun
á nokkrum stöðum í Elliðaánum en
í litlum mæli.
„Þessar niðurstöður komu okkur
á óvart, sérstaklega þar sem við
greindum nóróveirur á þremur
stöðum þar sem þær hafa ekki
greinst áður, hvorki í vatninu eða
ánum. Sú veira finnst bara í melt-
ingarvegi manna og bendir það
til skólpmengunar sem kemst út
í árnar og vatnið,“ segir Krist-
ín Elísa Guðmundsdóttir, sem
kynnti meistaraprófsverkefni sitt
í umhverfis- og auðlindafræði í
Háskóla Íslands í gær.
Rannsóknin sýnir að í Elliða-
vatni er saurmengunin hátt yfir
mörkum fyrir örverumengun,
samkvæmt reglugerð. Í vatn-
inu mældist mengunin sjöföld að
meðaltali miðað við efri mörk þess
sem telst ásættanlegt. Í ánum er
mengunin miklu minni, og telst
lítil samkvæmt sömu viðmiðum.
Mengunin mældist mest í Elliða-
vatni við útfall ánna, og við Nes-
hólma. Í ánum mældist mengunin
mest í Árbæjarlóni.
Árið 2009 sýndi vöktun Reykja-
víkurborgar saurmengun neðst
í Elliðaánum. Þá var ráðist í sér-
stakt mengunarvarnaátak sem
enn er yfirstandandi. Mælingar í
vatninu gáfu hins vegar ekki til-
efni til aðgerða, að sögn Kristínar
Lóu Ólafsdóttur, hjá Heilbrigðis-
eftirliti Reykjavíkur.
Kristín Lóa segir að niður-
stöðurnar séu allrar athygli
verðar en tekur fram að hún hafi
ekki kynnt sér rannsóknina í smá-
atriðum. Niðurstöðurnar komi
á óvart hvað varðar Elliðavatn í
ljósi mælinganna árið 2009. „Við
munum bregðast við þessum
niður stöðum, á því er enginn vafi í
mínum huga,“ segir Kristín Lóa og
minnir á að Elliðavatn liggi innan
ystu marka vatnsverndarsvæðis
höfuðborgarsvæðisins.
Kristín Elísa flokkaði vatnið og
árnar í rannsókn sinni með til-
liti til fyrrnefndrar reglugerðar.
Niðurstaðan er að Elliðavatn fell-
ur í D-flokk eða „verulega snortið
vatn“ og árnar í B-flokk eða „lítið
snortið vatn“.
Markmið rannsóknar Kristín-
ar Elísu, sem unnin var hjá Matís,
var að skoða örveruflóru vatna-
sviðsins og saurmengun frá Elliða-
vatni niður að ósum Elliðaánna.
Sýni voru tekin á þremur stöðum
í vatninu og sex stöðum í ánum,
fjórum sinnum yfir níu mánaða
tímabil. - shá
Saurmengun í Elliðavatni
Í nýrri rannsókn greindist saurmengun í Elliðavatni sjöfalt hærri en talið er ásættanlegt í reglugerð um
varnir gegn mengun vatns. Brugðist verður við niðurstöðunum, segir Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Komið að ögurstundu
Ísland getur tryggt sér sæti í
úrslitakeppni EM 2013 með
sigri á Úkraínu í kvöld.
sport 40
Tískulegri fatnaður
Ný fatalína Guðmundar
Jörundssonar er innblásin
af prestum og gyðingum.
tíska 46
„ Þ E T TA E R D Ú N D U R . “
Við erum í hádegismat Sími 5 800 600www.iss.is
Opið til
21
í kvöld
Alltaf haft nóg að gera
Sýning á verkum Gísla
B. Björnssonar opnuð í
Hönnunarsafni.
tímamót 24
Mjög lítil eða engin saur-
mengun (< 14/100 ml)i
Lítil saurmengun
(14-100/100 ml)ii
Nokkur saurmengun
(100-200/100 ml)iii
Mikil saurmengun
(200-1000/100 ml) iv
Ófullnægjandi ástand vatns
(>1000/100 ml)v
Umhverfismörk skv. reglugerð
Flokkur I & II ásættanlegt.
Elliðavatn 695/100 (flokkur iv)
SVALT Í VEÐRI Í dag verða víðast
norðaustan 5-10 m/s og úrkomu-
lítið en stífari og dálítil úrkomu
syðst. Frost 0-6 stig NA-til en allt
að 6 stiga hiti syða.
VEÐUR 4
4
1
-4
-3
2
HJÓLA EKKI Í ÁLFANA Nýr göngu- og hjólastígur við Vesturlandsveg er sveigður framhjá stein-
inum Grásteini, sem talinn er bústaður álfa frá fornu fari. Óhöpp við vegagerð á þessum slóðum fyrr á tíð voru
tengd því að hróflað var við steininum. Sjá síðu 8 FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRNMÁL Búist er við átökum
um hvaða leið verði fyrir valinu
til að velja frambjóðendur á lista
Framsóknarflokksins í Norð-
austurkjördæmi. Kjördæmisþing
verður haldið um helgina þar sem
leiðin verður ákveðin.
Heimildir Fréttablaðsins
herma að Höskuldur Þórhallsson
og stuðningsmenn hans séu
fylgjandi póstkosningu, en þá
fá allir skráðir félagar í flokkn-
um að greiða atkvæði bréfleiðis.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
og hans fylgismenn eru hins
vegar, samkvæmt heimildum,
hlynntari því að tvöfalt
kjördæmis þing velji á listann.
Verði sú leið valin koma færri
að vali á listann, en kosið er um
hvert sæti. Höskuldur sækir
fylgi sitt að mestu til þéttbýlustu
svæða kjördæmisins, en fylgi
við Sigmund Davíð er meira á
Austur landi. Báðir sækjast eftir
því að leiða listann. - kóp / sjá síðu 4
Kjördæmisþing Framsóknarflokksins á Norðausturlandi verður um helgina:
Tekist á um leiðir til að velja á lista
SIGMUNDUR DAVÍÐ
GUNNLAUGSSON
HÖSKULDUR
ÞÓRHALLSSON
ALMANNAVARNIR Lýst var yfir
óvissustigi almannavarna vegna
jarðskjálftahrinu úti fyrir
Norður landi í gærkvöldi. Þetta
var gert að höfðu samráði við
vísindamenn og lögreglustjóra á
Sauðárkróki, Akureyri og Húsa-
vík.
Vísindamannaráð almanna-
varna fundaði í gær samkvæmt
tilkynningu frá almannavarna-
deild Ríkislögreglustjóra. Á
þessu svæði er þekkt að um tveir
til þrír stórir skjálftar verði á
hverri öld. Þá er það einnig þekkt
að stórir skjálftar fylgi jarð-
skjálftahrinum, þótt ekki sé
víst að svo verði. Hrinan sem nú
stendur yfir er sú öflugasta sem
mælst hefur í tuttugu ár.
Óvissustig á við þegar grunur
vaknar um að eitthvað sé að ger-
ast af náttúru- eða mannavöldum
sem á síðari stigum gæti leitt til
þess að heilsu og öryggi fólks,
umhverfis eða byggðar sé ógnað.
- þeb
Öflugasta hrinan í tuttugu ár:
Óvissustigi lýst
yfir fyrir norðan