Fréttablaðið - 25.10.2012, Síða 26
FÓLK|TÍSKA
Dagana 26. og 27. október.
Fyrsta vetrardag er þér
boðið í ilmandi kjötsúpu
á Skólavörðustígnum
kl. 14:00.
–20% frá fimmtudegi til sunnudags af öllum peysum og gallabuxum
PEYSU OG GALLABUXNADAGAR Í OASIS
Cable Stripe knit xs-l
15.990 kr. – 12.790 kr. Mjög hlý flott vetrarpeysa
með góðri ullarblöndu, laust sætt snið.
Tipped collar denim shirt 8-16
9990 kr. – 7990 kr.
Flott gallaskyrta með góðu sniði
Sequin shoulder xs-l, 9990 kr. – 7.990 kr.
Flott peysa að mestu úr bómul, skreytt á öxlum.
Til í svörtu og beige, mátast sérstaklega vel.
Gallabuxur 10.990 kr. 8790 kr.
mjög gott snið, margir litir og háar
í mittið.
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir
Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427
Margir göntuðust með hattana í sýningunni þar sem þeir minntu mjög á hatta þá sem býflugnabændur ganga með. „Það var suð á sýningunni, býflugna-
suð,“ spaugaði hönnuðurinn, Sarah Burton. Svo virðist
vera sem Sarah hafi fengið innblástur frá býflugnabændum.
Þarna var verið að sýna vortísku fyrirtækisins árið 2013.
Ekki voru allir hrifnir af hönnuninni, fannst hún ýkt. Þó er
Burton hrósað fyrir skapandi og listrænan stíl sem hún hefur
sjálf þróað. Kjólarnir voru fyrirferðarmiklir og íburður inn
allsráðandi. Fyrirtæki Alexanders McQueen á marga fræga
aðdáendur sem eru fastir viðskiptavinir og bíða eftir hverri
nýrri tískuflík. Sarah Burton er margverðlaunaður tískuhönn-
uður og hannaði meðal annars brúðarkjól Kate Middleton,
eiginkonu Vilhjálms prins. Hún ólst upp í Manchester en á
námstímanum starfaði hún hjá Alexander McQueen og fékk
fast starf að námi loknu. Mikið hefur verið fjallað um Burton
á helstu tískusíðum stórblaða og fylgir venjulega með þeim
fréttum að hún eigi von á tvíburum í febrúar.
Alexander McQueen féll fyrir eigin hendi árið 2010, stuttu
eftir að hann missti móður sína. Hann var í miklu uppáhaldi
hjá fólki sem þorir að vera ögrandi í klæðaburði. Meðal
þekktra viðskiptavina hans er Björk.
Myndirnar tala sínu máli.
INNBLÁSTUR FRÁ BÝFLUGNABÆNDUM
SUÐ Í PARÍS Tískusýning Alexanders McQueen sem nýlega fór fram í París vakti nokkra kátínu gesta. Íburður kjóla og undarlegir
hattar urðu umfjöllunarefni tískublaða. Hönnuðurinn Sarah Burton gantaðist með býflugnasuð við gesti.
HATTAR
takið eftir höfuð-
fötum sýningar-
stúlknanna. Þau
þykja afar óvenju-
leg og minna á
hatta þá sem bý-
flugnabændur
bera.
■ NÝTT NAFN
„Við breyttum nafninu fyrir stuttu
því áherslurnar hafa breyst hjá
okkur,“ segir Bjarni Helgason, en
hann hóf að handþrykkja stutt-
ermaboli í bílskúrnum hjá sér fyrir
tveimur árum undir heitinu Organ-
ella. Nú heitir fyrirtækið Bolabít-
ur. „Upphaflega unnum við bara
náttúru tengda grafík en hún hefur
þróast í aðra átt. Við vildum líka
höfða meira til yngra fólks. Bola-
bítur er þjálla í munni og gott að
muna.“
Framleiðslan fer þó enn þá fram í bíl-
skúrnum en hefur hægt og rólega undið
upp á sig. Bjarni handþrykkir á lífræna
bómull og notar umhverfisvæna liti.
„Við höfum tekið þátt í hand-
verkshátíðinni á Hrafnagili í
Eyjafirði tvisvar og verðum í
Ráðhúsinu með Handverki og
hönnun næstu helgi. Viðtök-
urnar hafa verið góðar þó við
pössum ekki endilega í hill-
urnar í tískuvöru verslunum.
Við smíðum bara okkar eigin
hillu,“ segir Bjarni. Nánar má
forvitnast um Bolabít á www.
bolabitur.is.
ORGANELLA VERÐUR BOLABÍTUR