Fréttablaðið - 25.10.2012, Síða 27
| FÓLK | 3TÍSKA
HANDVERK
OG HÖNNUN
■ Íslenskt handverk, listiðn-
aður og hönnun verður til sýnis
í Ráðhúsi Reykjavíkur dagana
1.-5. nóvember þegar HAND-
VERK OG HÖNNUN verður
haldin í níunda skiptið. Á sýn-
ingunni munu 57 þátttakendur
sýna verk sín en þeir koma
úr öllum landshlutum. Lista-
mennirnir verða á staðnum á
meðan sýningin stendur yfir
og eins og venjulega verða
fjölbreyttar vörur til sýnis,
meðal annars skart úr ólíkum
hráefnum, keramik, fatnaður
og fleira. Sýningin HANDVERK
OG HÖNNUN var fyrst haldin
árið 2006 og hefur verið haldin
á hverju ári síðan. Aðsókn á
hana hefur aukist með hverju
árinu en í ár eru haldnar tvær
sýningar. Framvegis verða
haldnar tvær sýningar, sú fyrri
á vorin og sú síðari um haustið.
Meginmarkmið HANDVERKS
OG HÖNNUNAR er að stuðla
að eflingu handverks, listiðn-
aðar og hönnunar auk þess að
auka skilning almennt á menn-
ingarlegu, listrænu og hagnýtu
gildi handverks, hönnunar og
listiðnaðar með fjölbreyttri
kynningarstarfsemi. Nánari
upplýsingar má finna á www.
handverkoghonnun.is.
Mette-Marit, krónprinsessa Noregs, vakti
mikla athygli landa sinna þegar hún mætti
í gala-kvöldverð í brúðkaupi prinsins af
Lúxemborg í hálfrar milljónar króna kjól
frá Pucci. Kjóllinn er dökkrauður með
glitrandi mynstri. Brúðkaupið fór fram
um síðustu helgi og þar var öll norska
konungs fjölskyldan viðstödd fyrir utan
tengda soninn, Ari Behn. Mette-Marit var
með krullur í hárinu og hárspöng skreytta
demöntum sem hún bar einnig í brúð-
kaupi hennar og Hákonar krónprins árið
2001. Kjóllinn er dragsíður með svokölluðu
hafmeyjuútliti. Þótti hún bera af öðrum
prinsessum þetta kvöld. Mette-Marit hefur
áður klæðst kjól frá ítalska tískufyrirtækinu
Emilio Pucci.
Það var Guillaume prins af Lúxemborg
sem kvæntist Stéphanie de Lannoy greif-
ynju frá Belgíu og voru fjöldamargir
konung bornir evrópskir gestir viðstaddir.
Brúðkaupið stóð yfir í tvo daga og var
íburðarmikið, enda talið að það hafi kostað
500 þúsund evrur, eða 80 milljónir íslenskar.
TÍSKUTÁKN
■ VAKTI ALLTAF ATHYGLI
Á þeim tíma sem Jackie
Kennedy gegndi hlutverki for-
setafrúar Bandaríkjanna varð
hún tískutákn. Hún klædd-
ist aðallega hönnun eftir
Givenchy, Chanel og Dior. Auk
þess var hönnuðurinn Oleg
Cassini vinur hennar og hann
gerði fötin sem hún klæddist í
kosningabaráttu eiginmanns-
ins.
Hún varð þekktust fyrir hatta
sína, hnésíðar pilsdragtir, jakka
með stuttum ermum (3/4 hluta
ermum) og klassíska, erma-
lausa, A-sniðna kjóla. Allar
þessar flíkur höfðu varanleg
áhrif á tískubransann, allt til
dagsins í dag.
Eftir að tímanum í Hvíta
húsinu lauk breytti Jackie um
stíl. Hún sást oft með klúta um
höfuðið og stór, kringlótt, dökk
sólgleraugu. Einnig
var hún oft í ein-
faldri, svartri
rúllukraga-
peysu og víðum
buxum.
Í RAUÐU Í LÚXEMBORG
Því ekki að bera af?
Nýtt High Impact Extreme Volume Mascara.
Ofnæmisprófað. 100% ilmefnalaust.
Bottom Lash Mascara Long-Wearing Formula
var verðlaunaður af Insiders Beauty Award 2012 gefur neðri augnhárum fullkomið útlit.