Fréttablaðið - 25.10.2012, Page 52
25. október 2012 FIMMTUDAGUR36 36
popp@frettabladid.is
Hann er þekktur fyrir íhug-
ular kvikmyndir sem lík-
legri eru til að taka á mildri
miðstéttarangist en yfirvof-
andi heimsendi af völdum
vopnþungra hryðjuverka-
manna. Sif Sigmarsdóttir
tók leikstjórann Sam Men-
des tali og komst að því
hvers vegna hann ákvað
að leikstýra nýjustu Bond-
myndinni. Svarið er að finna
í fylleríi.
Í hlutverki sínu sem James Bond
er leikarinn Daniel Craig fær um
ofurmannlegar dáðir. Í nýjustu
Bond-myndinni, Skyfall, sem frum-
sýnd er á morgun, hristir hann af
sér byssukúlurnar eins og regn-
dropa og sprengir vopnlaus upp
heilu óvinasveitirnar. Afrekin hafa
þó fá verið jafnofurmannleg og að
sannfæra Sam Mendes um að taka
sér hvíld frá kvikmyndum þar sem
saga og karaktersköpun eru þunga-
miðjan og leikstýra eltingaleikjum
og skotbardögum í Bond.
„Craig er ástæðan fyrir því að ég
gekk til liðs við teymið,“ segir Men-
des, sem hefur starfað í Hollywood
til fjölda ára og leikstýrt myndum
á borð við American Beauty og
Revolutionary Road, þar sem hann
vann m.a. með þáverandi eigin-
konu sinni, leikkonunni Kate Wins-
let. „Ég var hrifinn af honum í Cas-
ino Royale auk þess sem við erum
vinir.“
Samstarfið hófst er þeir hittust
í partíi. Craig hafði hvolft í sig
nokkrum drykkjum þegar hann
vatt sér upp að Mendes, steig gróf-
lega út fyrir valdsvið sitt eins og
Bond einum er lagið og hóf að
reyna að sannfæra Mendes um að
taka að sér leikstjórn myndarinnar.
Mendes vill þó ekki meina að
mikill munur sé á lögmálum Bond
og annarra mynda sem hann hefur
leikstýrt. „Maður þarf alltaf að
tryggja að karakterarnir eigi
Kallaði fram strákinn í sér
SKYFALL
„Ég átti líklega meiri samleið með
Bond sem barn og unglingur en ég
hef átt síðustu ár,“ segir Sam Mendes,
leikstjóri nýjustu Bond-myndarinnar.
sér tilfinningalegan veruleika.
Manni þarf að þykja vænt um þá.
Það er ekki hægt að ganga út frá
því að áhorfendur hafi áhuga á
þeim eingöngu vegna þess að þeir
heita James Bond eða eru Bond-
þorparar. Það þarf að réttlæta til-
vist hverrar einustu persónu, sér-
staklega þeirrar sem fólk telur sig
þekkja best.“
Gagnrýnendur eru sammála um
að Mendes setji mark sitt á Sky-
fall en í myndinni er kafað dýpra í
tilfinninga líf Bond en verið hefur,
auk þess sem hún þykir drunga-
legri en fyrri myndir. Mendes
þakkar það því sem hann telur
brautryðjenda verk leikstjórans
Christopher Nolan, Batman-trí-
lógíunni The Dark Knight. „Það
gerðist eitthvað í kjölfarið á The
Dark Knight þegar kom að stór-
myndum. Mér fannst hún stórkost-
leg. Hún var drungaleg en samt
vinsæl. Vegna hennar er allt í einu
orðið auðveldara að fá að fjalla um
alvarleg og flókin málefni í dýrum
hasarmyndaseríum.“
En Skyfall segir hann þó langt
frá því að vera eintóma eymd. „Ég
átti meiri samleið með Bond sem
unglingur en ég hef átt síðustu ár.
Við gerð myndarinnar reyndi ég
því að kalla fram þrettán ára strák-
inn í mér og rifja upp hvað það var
sem kveikti í mér og vakti með mér
spennu þegar ég var þrettán,“ segir
Mendes, sem er sannfærður um að
allir finni eitthvað við sitt hæfi í
Skyfall.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/
A
FP
ÁR ERU SÍÐAN hipphopp-mærin Foxy Brown var dæmd í þriggja ára skilorðsbundið
fangelsi fyrir að hafa, tveimur árum fyrr, slegið og sparkað í starfsfólk snyrtistofu í New York.
Upphæð reiknings fyrir hand- og fótsnyrtingu var kveikjan að barsmíðunum.
6
Margir mættu til að berja nýja verslun íslenska fatamerkisins Aftur
augum á þriðjudaginn. Vöruúrvalið hefur stækkað í samræmi við hús-
næðið en ásamt íslenska fatamerkinu, sem er frægt fyrir að endurvinna
efni, er þar einnig að finna vel valdar vörur frá erlendum hönnuðum.
Búðin er til húsa að Laugavegi 39.
Aftur opnar á ný
AFTUR-SYSTUR Systurnar Sigrún, Hrafnhildur og Bára eru þekktar sem Aftur-systurnar
en nú er það Bára sem hannar og rekur verslunina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FLOTTAR Sara María og söngkonan
Þórunn Antonía létu sig ekki vanta í
teitið.
GAMAN Beggi og Gabríela brostu til ljós-
myndara.
GÓÐIR GESTIR Ásta Kristjánsdóttir með
syni sínum Atlas og fatahönnuðinum
Munda.
Í TÍSKU Dagný, Alexander og Erla.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Nýtt fyrirframgreitt kort
Þú sparar
með Fékortinu
Það er auðvitað frábært að eyða peningum sem
maður á ekki. En miklu skemmtilegra er að
eiga fyrir því sem maður kaupir hverju sinni.
Farðu á fekort.is, til að sækja um Fékortið, nýtt
fyrirframgreitt greiðslukort fyrir skynsama í
fjármálum. Það er sannkölluð ferð til fjár.