Fréttablaðið - 25.10.2012, Síða 53
FIMMTUDAGUR 25. október 2012 37
Taylor Swift óttast að hún muni
aldrei enda í ástarsambandi sem
getur varað að eilífu. Hin 22 ára
söngkona, sem hefur verið með
John Mayer og Jake Gyllenhaal,
telur að erfitt geti verið að við-
halda töfrunum í samböndum.
„Fiðrildin í maganum, dag-
draumarnir og ástin. Mér þykir
svo vænt um þetta allt saman
en ég óttast að þetta hverfi einn
góðan veðurdag. Ég hef aldrei
verið í löngu ástarsambandi. Þau
byrja alltaf og enda svo,“ sagði
Swift við The Guardian. Einnig
segist hún ekki vera hrædd við
að eldast og fá hrukkur. Hún
leggur meiri áherslu á að vera
ung í anda. „Við missum stundum
tengslin við barnið í sjálfum
okkur. Mér er sama þótt ég verði
ekki ung að eilífu en ég vil halda
áfram að vera ung í anda.“
Vill ástina að
eilífu
VILL MEIRI ÁST Taylor Swift leitar að
hinni einu sönnu ást. NORDICPHOTOS/GETTY
Breska söngkonan Adele og unn-
usti hennar Simon Konecki eign-
uðust son um helgina. Talsmaður
Adele staðfesti gleðifregnirnar
í samtali við People og segir
nýbökuðu foreldrana í skýjunum
yfir guttanum.
Þetta er fyrsta barn parsins,
en söngkonan sigursæla dró sig
út úr sviðsljósinu á meðan á með-
göngunni stóð. Adele bað fjöl-
miðla og aðdáendur vinsamleg-
ast að virða sitt einkalíf er hún
opinberaði óléttuna í júní. Eitt ár
er síðan söngkonan og Konecki
byrjuðu saman.
Eignaðist son
ORÐIN MAMMA Adele eignaðist son um
helgina. NORDICPHOTOS/GETTY
Bíó ★★★ ★★
Frankenweenie
Leikstjórn: Tim Burton.
Leikarar: Charlie Tahan, Winona Ryder,
Catherine O‘Hara, Martin Short, Martin
Landau, Robert Capron, Frank Welker og
Atticus Shaffer.
Það er dugnaður í Tim Burton og aðeins
hálfu ári eftir Dark Shadows færir hann
okkur Frankenweenie, hrollvekjandi stop-
motion fjölskyldumynd í svarthvítri þrívídd.
Myndina byggir hann á samnefndri stutt-
mynd sinni frá árinu 1984, og segir frá
Að duga eða drepast að hætti fortíðar
FRANKENWEENIE „Burton vísar í gamlar skrímsla-
myndir eins og hann eigi lífið að leysa og fyrir spek-
inga í hryllingsfræðum er þetta þrælskemmtilegt,“
segir í gagnrýni um nýjustu mynd Tims Burton.
ungum dreng sem vekur dauðan hund sinn til
lífsins að hætti vísindaskáldsagna fortíðar.
Þessi vandaða mynd inniheldur öll helstu
höfundareinkenni leikstjórans og því ætti
það ekki að koma á óvart að yngstu börnin
gætu orðið skelkuð á köflum. Burton vísar
í gamlar skrímslamyndir eins og hann eigi
lífið að leysa og fyrir spekinga í hryllings-
fræðum er þetta þrælskemmtilegt. Á köflum
er samt eins og Disney (framleiðandi mynd-
arinnar) hafi skipt sér of mikið af. Fyrst þeir
samþykktu litleysið fannst mér ég geta átt
von á hverju sem er, en Franken weenie held-
ur sig mestmegnis á troðnum slóðum.
Útfærsla leikbrúðanna og öll listræn
stjórnun er til fyrirmyndar. Þetta þykja seint
tíðindi þegar um þennan leikstjóra er að
ræða, en ég hafði gaman af því að sjá glitta
í grófleika hér og þar, en mér hefur þótt
Burton helst til slípaður í seinni tíð. Tón-
listin eftir Danny Elfman (nema hvað) olli
þó vonbrigðum og líkt og þegar börn masa
í kennslustund finnst mér einhver þurfa að
stía þeim kumpánum í sundur.
Af nokkrum minniháttar göllum var fyrir-
sjáanlegur endirinn samt það eina sem angr-
aði mig virkilega. Burton virtist stefna í að
brjóta eina stærstu óskrifuðu reglu barna-
myndanna, en sneri svo við rétt við mark-
línuna. Svekkjandi. Þetta hefði getað orðið
frábær mynd. Haukur Viðar Alfreðsson
Niðurstaða: Fyndin, falleg, en skortir hugrekkið
sem þarf til að verða frábær.
ELDBORG HÖRPU
1. DESEMBER
KL. 20:00
HOFI AKUREYRI
7. DESEMBER
KL. 19:00
2.990 – 5.490 KR.
UPPLÝSINGAR OG MIÐASALA:
MIDI.IS, HARPA.IS OG
Í SÍMA. 528 5050
25% AFSLÁTTUR
TIL VIÐSKIPTAVINA
ÍSLANDSBANKA
5.490 KR.
UPPLÝSINGAR OG MIÐASALA:
MENNINGARHUS.IS OG
Í SÍMA 450 1000
Páll Rósinkrans
Sérstakur gestur í Hörpu Sérstakur gestur í Hörpu
Helga Möller
Ágústa Eva Pálmi Gunnars Raggi BjarnaStefanía Svavars
Unnsteinn Manuel
Söngvarar sem sungið hafa inn jólin undanfarna áratugi ásamt yngri kynslóð
söngvara koma saman í ógleymanlegri jólastund í upphafi aðventunnar og
flytja sín uppáhalds jólalög.
Hljómsveit undir stjórn hins eina, sanna Jóns Ólafssonar leikur undir.