Fréttablaðið - 29.11.2012, Side 4
29. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
Í frétt um íslenska geitastofninn í gær
var minnst á málþing um íslensku
geitina. Það skal árétta að Erfðanefnd
landbúnaðarins stendur fyrir þinginu,
sem er haldið í Þjóðminjasafninu á
morgun og hefst klukkan 13.
Augu Líru eftir
Evu Joly og
Judith Perrignon.
Æsispennandi
skáldsaga úr
undirheimum
fjármálalífsins,
þar sem Eva Joly
þekkir hvern krók
og kima.
ÓGNVEKJANDI!
SKRUDDA
www.skrudda.is
HALDIÐ TIL HAGA
Í tilefni af frétt um nýtt vöruvalskerfi
ÁTVR í Fréttablaðinu á mánudaginn
vill ÁTVR koma því á framfæri að stofn-
unin rekur sérstakt vefsvæði fyrir birgja
þar sem allar breytingar á verklagi
stofnunarinnar eru kynntar.
DÓMSMÁL Einn sakborninganna
tíu úr sakamálinu sem kennt er
við Annþór Karlsson og Börk
Birgisson hefur verið ákærður á
nýjan leik, nú fyrir tvær líkams-
árásir og fleiri afbrot.
Maðurinn, sem er 24 ára, er
ákærður ásamt Annþóri og Berki
fyrir eina af líkamsárásunum
þremur sem eru undir í því máli.
Saksóknari fór fram á þriggja og
hálfs árs fangelsi yfir honum.
Í gær var svo þingfest ákæra
á hendur honum fyrir að skalla
tönn úr manni í Bryggjuhverfinu
í fyrrasumar og ráðast á starfs-
mann Lyfju eftir að hafa stolið úr
versluninni. Þá er honum gefið að
sök að hafa í tvígang ekið undir
áhrifum fíkniefna.
Maðurinn fékk árs fangelsi
fyrir líkamsárás og fleira, þar
af níu mánuði skilorðsbundna, í
febrúar síðastliðnum. - sh
Tíður gestur í dómsölum:
Ákærður fyrir
tvö ofbeldisverk
DÓMSMÁL Líkamsárásarmál frá
því í maí 1997 var flutt í Hæsta-
rétti í gær. Málið snýst um lík-
amsárás fyrir utan skemmtistað-
inn Vegas sem leiddi til dauða
fórnarlambsins.
Sigurþór Arnarsson var fundinn
sekur um að hafa orðið manninum
að bana í Hæstarétti vorið 1998 og
var dæmdur í tveggja og hálfs árs
fangelsi. Hann hafði áður verið
sýknaður í héraðsdómi.
Sigurþór taldi að brotið hefði
verið gegn réttlátri málsmeðferð
þar sem ekki voru teknar nýjar
skýrslur af sakborningum og
vitnum fyrir Hæstarétti. Hann fór
með málið til Mannréttindadóm-
stóls Evrópu, sem féllst á sjónar-
mið hans og lagði fyrir Hæstarétt
að rétta aftur í málinu. Það var
gert í gær. - sh
Vegas-málið fyrir Hæstarétti:
Fluttu fimmtán
ára gamalt mál
DANMÖRK Vélhjólaglæpagengin
Hells Angels og Bandidos vinna nú
að því að skipta
Danmörku
upp í sitt hvort
áhrifasvæðið.
Þetta segir í
frétt B.T. og er
vísað til heim-
ilda innan lög-
reglu og gengj-
anna.
Lögreglan
hefur höggvið
stór skörð í
raðir hópanna
síðustu misseri
með beinskeytt-
um aðgerðum, en þeir bregðast nú
við með því að draga úr árekstrum
sín á milli með þessum hætti. - þj
Vélhjólaklíkur í Danmörku:
Skipta landinu
upp á milli sín
VÍTISENGLAR
Vélhjólaklíkurnar
í Danmörku hafa
mátt þola ítrekuð
afskipti lögreglu að
undanförnu.
MENNING
Nýr þjóðskjalavörður
Eiríkur G. Guðmundsson hefur verið
skipaður í embætti þjóðskjalavarðar til
næstu fimm ára. Eiríkur hefur starfað í
Þjóðskjalasafni Íslands frá árinu 2001,
lengst af sem sviðsstjóri upplýsinga-
sviðs, en hann hefur verið settur þjóð-
skjalavörður síðastliðið eitt og hálft ár.
MENNING Hressingarhælið í Kópavogi hefur
verið friðað af Katrínu Jakobsdóttur, mennta-
og menningarmálaráðherra.
Fram kemur á heimasíðu Kópavogsbæjar að
þar með hafi tvö hús verið friðuð í bænum því
gamli Kópavogsbærinn hafi verið friðaður í síð-
asta mánuði. Bæði húsin eru á Kópavogstúni og
hafa verið í mikilli niðurníðslu en bæjar stjórnin
ákvað nýverið að hefja endurbætur á þeim.
Á vef bæjarins segir að Kvenfélagið Hringur-
inn hafi fengið landspildu úr Kópavogsjörðinni
árið 1925 og reist þar vinnu- og hressingarhæli
eftir uppdrætti Guðjóns Samúelssonar. Kristinn
Sigurðsson múrarameistari hafi byggt húsið.
Vitnað er til Húsafriðunarnefndar sem segir
Hressingarhælið hafa afar mikið menningar-
sögulegt gildi sem vitnisburður um framlag
Hringskvenna til íslenskra heilbrigðismála og
vegna starfseminnar í húsinu.
„Byggingin hefur jafnframt mikið listrænt
gildi sem heillegt dæmi um verk Guðjóns Samú-
elssonar, eins merkasta arkitekts þjóðarinnar á
20. öld. Þá hefur byggingin einstakt sögulegt og
umhverfislegt gildi fyrir Kópavogsbæ. Hælið
er ein elsta og merkasta byggingin í bæjar-
félaginu, sem byggðist að mestu eftir seinni
heimsstyrjöld,“ segir Húsafriðunarnefnd.
- gar
Katrín Jakobsdóttir menningarmálaráðherra friðar annað húsið á Kópavogstúni á tveimur mánuðum:
Hressingarhæli Hringsins friðað
HRESSINGARHÆLIÐ Vígt árið 1926 og er með elstu
húsum í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
110%
leið
Sértæk
skuldaaðlögun
Heildarkostnaður
50 milljarðar
Hlutur lífeyrissjóða
460 milljónir
Hlutur lífeyrissjóða
240 milljónir
Heildarkostnaður
7 milljarðar
➜ Kostnaður við aðgerðir vegna skuldavanda*
STJÓRNSÝSLA Ríkisstjórnin segir
hugmyndir lífeyrissjóðanna um
niðurfærslu íbúðalána skuldara
með veð í eignum annarra, láns-
veð, ekki koma að gagni. Kostn-
aður við hana myndi vart svara
kostnaði miðað við hve fáir
myndu njóta hennar.
Fjórir ráðherrar hafa skrifað
lífeyrissjóðunum bréf þar sem
forysta lífeyrissjóðanna er beðin
um að taka formlega afstöðu til
tillagna sem fulltrúar lífeyris-
sjóðanna lögðu fram, en þær má
sjá hér til hliðar. Undir bréfið
skrifa Steingrímur J. Sigfússon,
atvinnuvega- og nýsköpunarráð-
herra, Guðbjartur Hannesson
velferðarráðherra, Katrín Júlí-
usdóttir fjármálaráðherra og
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra.
„Ríkisstjórnin leggur þunga
áherslu á að hægt verði að ná
fram skuldaleiðréttingu fyrir
þann hóp sem hér um ræðir. Það
verður hins vegar ekki gert nema
lífeyrissjóðirnir taki þátt í þessu
mikilvæga verkefni með ríkinu,“
segir í bréfinu.
Stjórnvöld, fjármálafyrirtæki
og lífeyrissjóðir skrifuðu 3. des-
ember 2010 undir viljayfirlýs-
ingu um víðtækar aðgerðir vegna
skuldavanda heimilanna. Stjórn-
völd og lífeyrissjóðirnir hafa átt
í viðræðum um hvernig komið
verði til móts við skuldara.
Eins og sést til hliðar nemur
hlutur lífeyrissjóðanna í aðgerð-
um vegna skuldavanda 1,23 pró-
sentum. kolbeinn@frettabladid.is
Ríkisstjórnin hafnar
leið lífeyrissjóðanna
Ríkisstjórnin óskar þess að lífeyrissjóðirnir gangi lengra í niðurfellingu skulda
lánsveðslána. Segja lífeyrissjóðina hafa notið góðs af niðurfærslu Íbúðalánasjóðs
og fjármálafyrirtækja. Hlutdeild sjóðanna í heildarniðurfellingu nemur 1,2%.
Skuldurum, þar sem staða veðlána sem tekin voru til öflunar húsnæðis er
umfram 110% af verðmæti fasteignar skuldara að teknu tilliti til lánsveða
og þar sem veðsetning veðsala er umfram 95% af verðmæti fasteignar,
býðst að færa skuldir sínar sem hvíla á fasteign veðsala niður að 95%
af verðmæti fasteignar veðsala. Hámark niðurfellingar miðast þó við að
lán skuldara að teknu tilliti til lánsveða verði a.m.k. 110% af verðmæti
fasteignar hans eftir að niðurfelling hefur farið fram. Niðurfærsla skal eiga
sér stað hjá þeim kröfuhafa/höfum sem eru á veðréttum umfram 95%
af verðmæti eignar veðsala. Skuldarar sem eru með skuldsetningu um-
fram 110% af verðmæti fasteignar að teknu tilliti til lánsveða og þar sem
veðsetning veðsala er yfir 95% af verðmæti fasteignar, geta sótt um niður-
fellingu um allt að fjórar m. kr. fyrir einstakling og sjö m. kr. fyrir einstæða
foreldra, sambýlisfólk og hjón, að uppfylltum neðangreindum skilyrðum.
Tillaga lífeyrissjóðanna
4 milljónir
er hámark niðurfellingar
fyrir einstakling
7 milljónir
er hámark niðurfellingar fyrir
einstæða foreldra og pör
* Hlutur lífeyrissjóðanna er 700 milljónir af 57 milljörðum, eða 1,23 prósent
224,6407
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
125,83 126,43
201,44 202,42
162,55 163,45
21,787 21,915
22,085 22,215
18,811 18,921
1,5365 1,5455
192,68 193,82
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
28.11.2012
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Veðurspá
Laugardagur
Vaxandi SA-átt S- og V-til.
FÍNT Á MORGUN Dregur heldur úr vindi og úrkomu um sunnan- og vestanvert
landið er líður á daginn. Fremur hæg norðaustanátt á morgun og léttir víða til. Svalt í
veðri næstu daga.
2°
10
m/s
3°
6
m/s
4°
5
m/s
6°
16
m/s
Á morgun
5-10 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
0°
-3°
-2°
-6°
-8°
Alicante
Basel
Berlín
16°
13°
5°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
4°
6°
3°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
4°
4°
21°
London
Mallorca
New York
5°
18°
6°
Orlando
Ósló
París
23°
-5°
7°
San Francisco
Stokkhólmur
17°
2°
2°
7
m/s
2°
8
m/s
-3°
5
m/s
0°
8
m/s
-4°
6
m/s
0°
7
m/s
-2°
4
m/s
-1°
-4°
-1°
-5°
-6°