Fréttablaðið - 29.11.2012, Page 22
29. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 22
Að halda
óbreyttri stefnu
Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar á
þriðjudag eru ekki lagðar fram
neinar róttækar tillögur um
breytingar á starfsemi ÍLS. Helsta
nýjungin er að setja fullnustueignir
inn í sérstakt félag. IFS-greining
telur að leigutekjur vegna eigna
þessa félags muni duga til að standa
undir rekstrarkostnaði en þá á eftir
að greiða fjármögnunarkostnað
útlánanna sem ríkið þarf að greiða.
Gert er ráð fyrir því að sá kostnaður
verði á bilinu einn til tveir milljarðar
króna á ári.
Þá var ákveðið að leggja sjóðnum
til 13 milljarða króna, enda blasti
við að eigið fé hans yrði uppurið
í lok næsta mánaðar. Þeir koma
til viðbótar 33 milljörðum króna
sem hann fékk í fyrra. Guðbjartur
Hannesson velferðarráðherra
skipaði auk þess sérstakan starfs-
hóp til að fara yfir framtíðarhorfur
og -hlutverk sjóðsins sem á að skila
áfangaskýrslu í febrúar 2013.
Síðasta breytingin sem er boðuð
er harðari innheimta. Í yfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar segir að „inn-
heimtuferlar verða teknir til endur-
skoðunar og skuldarar hvattir til að
nýta sér almenn skuldaúrræði til að
koma lánum í skil“.
Fjórar leiðir
Íbúðalánasjóðs
Íbúðalánasjóður (ÍLS) er í gjörgæslu íslenskra stjórnvalda sem halda honum lifandi með reglu-
legum fjármagnsinnspýtingum. Ljóst er að taka þarf ákvörðun um framtíð sjóðsins á allra
næstu misserum. Þórður Snær Júlíusson fór yfir þær leiðir sem virðast mögulegar í stöðunni.
RISI Íbúðalánasjóður er langstærsti íbúðalánaveitandi á Íslandi. Skuldabréf sjóðsins eru auk þess uppistaðan á íslenska skuldabréfamarkaðnum og meirihluti þeirra er í eigu
lífeyrissjóða. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Bjóða upp á
óverðtryggð lán
Vandamál ÍLS er það að
neytendur hafa hafnað einu
vörunni sem sjóðurinn býður
upp á, verðtryggðum lánum.
Um 70-80 prósent allra nýrra
útlána bankanna eru óverð-
tryggð auk þess sem því fer
fjarri að ÍLS sitji einn að þeim
nýju verðtryggðu lánum sem
veitt hafa verið. Árið 2008
jukust útlán ÍLS um 117,4
milljarða króna. Í ár er talið að
uppgreiðslur lána verði hærri
en ný útlán sjóðsins.
Í samtali við Fréttablaðið
þann 14. nóvember síðastliðinn
sagði Sigurður Erlingsson, fram-
kvæmdastjóri ÍLS, að „þegar við
byrjum að bjóða óverðtryggð
lán þá trúi ég að sjóðurinn nái
vopnum sínum“. Í yfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar um aðgerðir
til handa ÍLS er sérstaklega
tekið fram að ákvarðanir um
veitingu óverðtryggðra lána
verði teknar þegar staða
sjóðsins hefur verið treyst með
þeim aðgerðum sem kynntar
voru. Það mun því ekki verða
fyrr en í fyrsta lagi næsta vor
sem ákvörðun um málið verður
tekin.
Gera skuldabréfin
uppgreiðanleg
Í því fælist að ÍLS gæti greitt niður
skuldabréfaflokka sína jafnóðum og
viðskiptavinir sjóðsins borga upp lán sín
hjá honum. Í skilabréfi starfshóps um
stöðu og horfur um efnahag ÍLS segir að
„miðað við núverandi markaðsaðstæður
og ef gert er ráð fyrir að útlán sjóðsins að
fjárhæð 200 ma. kr. verði greidd upp mun
það kosta sjóðinn um 4 ma. kr. í tapaðar
vaxtatekjur ef ekki er hægt að endurlána
uppgreiðsluna á svipuðum kjörum“.
Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðs-
ins mun verkefni starfshópsins sem
skipaður verður, og á að fara yfir fram-
tíðarskipulag ÍLS, aðallega snúast um að
fá eigendur skuldabréfanna til að sam-
þykkja skilmálabreytingar. Um 60 prósent
útgáfunnar, alls um 680 milljarðar króna,
eru í eigu íslenskra lífeyrissjóða. Við-
ræðurnar munu því fyrst og síðast fara
fram við þá.
Ef það tekst að sannfæra lífeyris-
sjóðina um að taka við endurgreiðslum
verður til annað vandamál. Sjóðirnir
sem fá milljarða króna inn í lífeyris-
greiðslum á hverjum mánuði mega
bara fjárfesta innan íslensku gjaldeyris-
haftanna. Fjárfestingakostir þeirra eru
þegar af mjög skornum skammti. Því
er afar ólíklegt að þeir gefi eftir stærsta
eignaflokk sinn án þess að vera með
aðra fjárfestingarmöguleika.
Selja
Íbúðalánasjóð
Íslensku bankarnir lýstu því leynt
og ljóst yfir á sínum tíma, þegar
þeir hófu innreið sína á íbúðalána-
markaðinn, að þeir hefðu áhuga á að
kaupa ÍLS. Þeim hugmyndum hefur
hins vegar alltaf verið hafnað á þeim
forsendum að sjóðurinn hafi ríku
félagslegu hlutverki að gegna. Ljóst er
að á Íslandi í dag eru litlir sem engir
möguleikar fyrir ytri vexti til staðar
hjá íslenskum bönkum. Þeir starfa á
mettuðum örmarkaði sem bundinn
er höftum sem gerir þeim ókleift að
starfa víðar.
Stækkunarmöguleikar þeirra felast
því í yfirtöku á öðrum fjármálafyrir-
tækjum. Þar er ÍLS líkast til stærsti
mögulegi bitinn með um 880 milljarða
króna efnahagsreikning. Ríkissjóður
hefur þegar farið þá leið í nokkrum
tilvikum eftir hrun að selja eignasöfn
fjármálafyrirtækja til stærri banka. Þar
ber helst að nefna sameiningu Byrs
við Íslandsbanka og yfirtöku Lands-
bankans á eignum og skuldum SpKef.
Ljóst er þó að með ÍLS þyrfti að
fylgja töluverð meðgjöf. IFS-greining
telur lánasafn sjóðsins ofmetið um 40
milljarða króna og segir að 45 prósent
lána hans hvíli á fasteignum þar sem
virði lánsins er meira en söluvirði fast-
eignarinnar.
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
util if. is
MIKIÐ ÚRVAL
SPORTBAKPOKAR
FRÁ 4.990 kr.
MARGIR LITIR.
1 2 3 4
Eignir þrotabús gamla Lands-
bankans nema nú um 200 millj-
örðum króna meira en sem nemur
forgangskröfum í þrotabúið sem
eru að langstærstum hluta vegna
Icesave-innlánanna. Þetta er mat
slitastjórnar gamla Landsbank-
ans en það var kynnt á kröfuhafa-
fundi í gær.
Þessar tölur miðast við lok
september en á fundinum kom
fram að á þriðja ársfjórðungi árs-
ins hefðu verðmæti eigna aukist
um tæplega 11 milljarða króna.
Áætlar slitastjórnin að verð-
mæti eignasafnsins, að meðtöld-
um þremur hlutagreiðslum til
forgangskröfuhafa, nemi nú um
1.507 milljörðum en til saman-
burðar var það metið 1.104 millj-
arðar í apríl 2009. - mþl
Þrotabú Landsbankans:
Á 200 milljarða
umfram
Icesave-kröfur
Efnahags- og framfarastofnun
Evrópu (OECD) spáir því að hag-
vöxtur hér á landi verði 2,5% á
þessu ári og 2,7% árin 2013 og
2014.
Stofnunin gerir ráð fyrir því
að einkaneysla og atvinnuvega-
fjárfesting verði helstu aflvakar
hagvaxtar á næstu misserum. Þó
telur stofnunin nokkra áhættu-
þætti ógna vaxtarhorfum næstu
ára og varar hún sérstaklega við
því að erfiðleikar alþjóðlegra
álfyrirtækja gætu valdið því að
fjárfestingar í stóriðju á Íslandi
drægjust.
Loks mælir OECD með því að í
engu verði hvikað frá markmið-
um um jöfnuð í ríkisfjármálum.
- mþl
Stóriðjufjárfestingar óvissar:
OECD spáir
2,5% hagvexti
Arion banki hagnaðist um 3,3
milljarða króna á þriðja ársfjórð-
ungi ársins. Bankinn birti upp-
gjör sitt fyrir fjórðunginn í gær.
Uppsafnaður hagnaður fyrstu níu
mánuði ársins er þar með 14,5
milljarðar en til samanburðar
var hagnaðurinn 13,6 milljarðar
á sama tímabili í fyrra.
Höskuldur H. Ólafsson, banka-
stjóri Arion banka, segir í til-
kynningu að afkoma fyrstu níu
mánaða ársins sé vel viðunandi og
í samræmi við áætlanir bankans.
Á fyrstu níu mánuðum árs-
ins voru hreinar vaxtatekjur
bankans 20,1 milljarður en voru
16,8 milljarðar á sama tímabili í
fyrra. Aukningin er einkum til-
komin þar sem lánasafn bankans
stækkaði við kaup á íbúðalána-
safni Kaupþings.
Hreinar þjónustutekjur voru
hins vegar 8,1 milljarður og juk-
ust um 6% milli ára. Rekstrar-
tekjur námu því alls 34,4 millj-
örðum. Rekstrarkostnaður var
aftur á móti 16,9 milljarðar og
jókst um 7%.
Sé litið á kennitölur var arð-
semi eiginfjár 15,9% á fyrstu níu
mánuðum ársins samanborið við
17,6% í fyrra. Arðsemi af reglu-
legri starfsemi var 11,9% en var
11,3% á sama tímabili í fyrra.
Heildareignir Arion banka
námu 876,2 milljörðum í lok sept-
ember og var eiginfjárhlutfall
hans 22,5%. Þá var lausafjárhlut-
fall 31%.
Arion banki er að 87% í eigu
kröfuhafa Kaupþings og að 13%
í eigu íslenska ríkisins. - mþl
Arion banki birti níu mánaða uppgjör sitt í gær:
Ágæt arðsemi hjá Arion banka
HELGUVÍK OECD varar við því að stór-
iðjuframkvæmdir á Íslandi gætu dregist
vegna erfiðleika alþjóðlegra álfyrir-
tækja. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SLITASTJÓRN LANDSBANKANS Þau
Kristinn Bjarnason, Halldór Helgi Back-
man og Herdís Hallmarsdóttir skipa
slita stjórn gamla Landsbankans.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
14,5
milljarðar er uppsafnaður
hagnaður fyrstu níu mánuði
ársins en hagnaður á sama
tíma í fyrra var 13,6 millj-
arðar.