Fréttablaðið - 29.11.2012, Page 25
FIMMTUDAGUR 29. nóvember 2012 | SKOÐUN | 25
Það gekk illa hjá Bretum að kom-
ast inn í Evrópusambandið. Frakk-
ar, undir forustu de Gaulle, beittu
tvívegis neitunarvaldi gegn aðild
Bretlands. Hann sagði Breta skorta
pólitískan vilja til að vera hluti af
Evrópu. Nú vill stór meirihluti
Englendinga og kannski helmingur
Skota að Bretland segi sig úr ESB.
Veik staða
Síðustu misseri hefur staða Breta
innan ESB verulega veikst. Bretar
hafa í áratugi beitt hótunum til að
knýja fram sérkjör fyrir sig og til
að stöðva aukna samvinnu innan
ESB. Hótanirnar virka hins vegar
ekki lengur. Þetta er einfaldlega
vegna þess að margir sjá núorðið
brottför Breta sem lausn á þrálátu
vandamáli ESB frekar en ógn við
sambandið. Bretar eiga orðið fáa
vini innan ESB og enga aðdáendur.
Kenning de Gaulle var rétt fyrir
hálfri öld og er það kannski enn.
Þýðingarlaus landafræði
Það er ekki lengra frá Englandi til
Hollands og Belgíu en frá Reykja-
vík til Vestmannaeyja. Engu að
síður geta menn lesið bresku dag-
blöðin mánuðum saman án þess að
sjá mikið bitastætt um Holland eða
Belgíu. Með lestri þessara blaða
geta menn hins vegar fylgst nokk-
uð vel með þróun mála á Nýja-Sjá-
landi að ekki sé minnst á Ástral-
íu og Kanada. Saga, skyldleiki og
tunga ræður þessu. Landafræðin
er þögul um afstæðar fjarlægðir.
Sorgarsaga
Og hagfræðin um tilfinningar
fólks. Fyrir Breta var ESB efna-
hagslegur ávinningur en pólitísk
sorgarsaga. Nær helmingur af við-
skiptum Breta er við ESB en aðeins
ríflega tíundi hluti við þau 53 lönd
sem mynda breska samveldið.
Efnahagur Bretlands er nátengd-
ur Evrópu þótt sóknarfæri séu í
fjarlægum löndum. En umræðan
um ESB í Bretlandi hefur verið
með hreinum ólíkindum fyrir upp-
lýsta þjóð. Breskir stjórnmála-
menn sæta stöðugum árásum frá
æsifréttablöðum um að þeir sitji á
svikráðum við Bretland með þátt-
töku í evrópsku samstarfi. Þess
vegna hefur framganga breskra
stjórnmálamanna á fundum ESB
oft mótast mest af tilraunum
þeirra til að ná sem skástum fyrir-
sögnum í blöðum Ruperts Murdoch
og fleiri auðkýfinga sem eru svarn-
ir andstæðingar ESB og frægir
fyrir áhugaleysi á hlutlægni.
Þolinmæði á þrotum
Þjóðverjar, Hollendingar, Pólverj-
ar og fleiri hafa talið sérstakan
ávinning af veru Breta í ESB vegna
svipaðra sjónarmiða í alþjóðamál-
um og fríverslun. Breskur hernað-
armáttur og víðtæk og djúp tengsl
Breta í öðrum heimsálfum auka
líka styrk ESB út á við. Bretar
hafa hins vegar sífellt vegið að til-
raunum þessara ríkja og annarra
til að auka styrk ESB inn á við. Nú
hefur kreppan gert aukinn innri
styrk sambandsins að einu brýn-
asta hagsmunamáli þessara ríkja
og því er þolinmæðin með Bret-
landi á þrotum.
Tvískipt samstarf
Stærstu mál ESB snúast núorðið
um evruna. Flestir telja að mjög
aukið samstarf þurfi svo evran
verði lausn fyrir Evrópu frekar
en vandamál. Bretar hafa nú ljáð
máls á því að búnar verði til stofn-
anir fyrir evrusvæðið með sér-
stökum fjárlögum. Þau yrðu fljótt
mikilvægt hagstjórnartæki öfugt
við almenn fjárlög ESB sem snú-
ast mest um styrki við landbúnað
og dreifbýli. Þetta gæti leyst mál
en um leið yrði Bretland dæmt til
áhrifaleysis í mikilvægustu mál-
efnum ESB. Það sama á við um
fleiri lönd. Pólland og fleiri ríki
sem vilja taka upp evruna myndu
hins vegar fá aukin áhrif.
Kjarninn
Hlutir tengjast með þeim hætti
að áhrifaleysið yrði ekki bundið
við evruna. Hún er sjálfur kjarni
málsins sem flest annað mun taka
mið af. Erfitt er að sjá að Bretar
geti sætt sig við slíkt áhrifaleysi.
Fjármálamiðstöðin í London mynd-
ar sterkustu hagsmunina í bresku
efnahagslífi og gegn þeim hags-
munum gengur engin ríkisstjórn
í London. Þar líst mörgum ekki
á blikuna þótt fyrri spár um ein-
angrun London frá evrusvæðinu
hafi raunar ekki ræst. Sama má
segja um fleiri greinar atvinnu-
lífsins. Almenningur vill hins
vegar sem minnst af ESB vita. Þar
liggja vandræði breskra stjórn-
málamanna.
Enskur heimur
Áhugamenn um úrsögn Bretlands
eru oft talsmenn aukins samstarfs
við ríki Breska samveldisins og
Bandaríkin. Bretar hafa mikla
sérstöðu í heiminum vegna sinnar
heimsveldissögu. Tugir ríkja eiga
ekki einungis tungumál og sögu
sameiginlega með Bretlandi held-
ur einnig lagakerfi og viðskiptanet.
Það er hins vegar miklu fleira en
aðildin að ESB sem hefur takmark-
að viðskipti við þau. Fæst þeirra
líta heldur til aukins samstarfs við
Bretland sem leið fram á við.
Margir hringir
Mikil andstaða er gegn því að evru-
ríkin myndi sérstakan innri kjarna
ESB, ekki síst frá framkvæmda-
stjórninni í Brussel sem myndi
þá missa áhrif. Þungir hagsmun-
ir knýja hins vegar áfram þróun
í þessa átt. Bæði þeirra sem mest
samstarf vilja og hinna sem vilja
síður nána samvinnu. Svo gæti
farið að sammiðja hringir yrðu
fjórir eða fimm. Sá innsti með
evruríkjum, sá næsti með þeim
sem vilja taka upp evru, sá þriðji
með þeim sem vilja mikið samstarf
en ekki evru og sá ysti með þeim
sem vilja fasta tengingu við innri
markað ESB en ekki víðtækt sam-
starf. Sú staða getur hentað sumum
en myndi, eins og EES sem yrði þá
fimmti hringurinn, minna á áhorf-
endastúku frekar en leikvöll.
England og Evrópa
Í DAG
Jón Ormur
Halldórsson
dósent
Mikil andstaða er
gegn því að evruríkin
myndi sérstakan innri kjarna
ESB, ekki síst frá fram-
kvæmdastjórninni í Brussel
sem myndi þá missa áhrif.
Suzuki Splash
Skr. 01.2012
Ekinn 8.000 km
Bensín, beinsk.
Verð kr. 1.940.000
Suzuki bílar hf Skeifan 17 108 Reykjavík Sími 568 5100 www.suzuki.is
Suzuki Swift GL
Skr. 06.2011
Ekinn 41.000 km
Bensín, beinsk.
Verð kr. 2.190.000
Suzuki SX4
GLX
Skr. 12.2009
Ekinn 52.000 km
Bensín, beinsk
Verð kr. 2.370.000
BMW 320i
Skr. 01.2007
Ekinn 90.000 km
Bensín, sjálfsk.
Verð kr. 2.490.000
Gott úrval af notuðum bílum
Komdu og
skoðaðu úrvalið
Kia Ceed LX
Skr. 06.2011
Ekinn 36.000 km
Bensín, beinsk
Verð kr. 2.290.000
Honda CR-V
Skr. 09.2003
Ekinn 130.000 km
Bensín, sjálfsk
Verð kr. 1.490.000
Grand Vitara
Skr. 08.2006
Ekinn 79.000 km
Bensín, sjálfsk.
Verð kr. 2.350.000
Suzuki Swift GL
Skr. 05.2011
Ekinn 39.000 km
Bensín, sjálfsk.
Verð kr. 2.160.000
Suzuki Grand
Vitara Sport
Skr. 06.2008
Ekinn 100.000 km
Bensín, beinsk
Verð kr. 2.450.000
Vandi Íbúðalánasjóðs
Ein af afleiðingum þess að
raunverð húsnæðis og verðtryggðir
vextir hafa lækkað verulega frá
hruni er að Íbúðalánasjóður hefur
tapað fé. Þetta hefur leitt til þess
að ríkissjóður hefur þurft að
hlaupa undir bagga með sjóðnum í
nokkur skipti, nú síðast í gær með
13 ma. kr. framlagi. Það verður að
teljast líklegt að Íbúðalánasjóður
muni halda áfram að tapa fé í ein-
hvern tíma til viðbótar og að ríkis-
sjóður muni þurfa að veita meira
fé í sjóðinn áður en hann getur
aftur staðið á eigin fótum.
Þetta er vitaskuld súr staða fyrir
skattgreiðendur og þá sem vildu
nota það skattfé sem veita þarf til
Íbúðalánasjóðs í önnur verkefni.
En það má ekki vanmeta mikilvægi
þess að ríkissjóður standi í skilum
varðandi skuldbindingar sínar.
http://blog.pressan.is
Jón Steinsson
Matarfíkn er erfi ðust
Matarfíkn er ein versta fíkn, sem
um getur. Sú fíkn, sem erfiðast
er að ráða við. Í öðrum tilvikum
eru hættulegu efnin skilgreind:
alkóhól, amfetamín, heróín, morfín
og svo framvegis. Lausnin er þá að
forðast efnin. Við vitum ekki, hvað
það er í matnum, sem framkallar
fíkn. Þess vegna þarf að fara eftir
líkum, forðast sykur, hveiti, sterkju,
fitu. Og leita lausna í hegðun.
Koma okkur upp hollari lífsstíl,
sem felur í sér hreyfingu, breytt
mataræði og matarvenjur. Það eitt
tekur á erfiðleikum fólks við að
fást við matarfíkn umfram aðrar
fíknir. Það gerist með breyttum
huga og breyttum persónuleika.
http://www.jonas.is/
Jónas Kristjánsson
AF NETINU