Fréttablaðið - 29.11.2012, Side 26
29. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 26
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
5
4
6
7
Er Vodafone spennandi fjárfestingarkostur?
Bein útsending frá f undi VÍB um skráningu Vodafone.
Á morgun, föstudaginn 30. nóvember kl. 12.00, mun Ómar Svavarsson,
forstjóri Vodafone kynna félagið fyrir á hugasömum fjárfestum.
Eftir framsögu Ómars munu góðir gestir taka þátt í s pjalli um féla ig ð
og markaðinn:
· Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Vodafone
· Hrafn Árnason, forstöðumaður safnastýringar h já Íslandssjóðum
· Magnús Halldórsson, blaðamaður hjá Stöð 2 og Vísi
F d jó i ðun arst r ver ur Bjö B Grn erg unnarsson d ild jó i f ð l, e arst r ræ s u- og
viðskiptaþróunar h já VÍB.
Á www.vib.is má fylgjast með fundinum
í beinni útsendingu eða horfa á upptöku
af honum síðar.
Nánari upplýsingar í síma 440 4900
Markmið funda VÍB er að stuðla að upplýstri og faglegri umræðu um
mikilvæg mál á sviði eignastýringar, viðskipta og efnahagsmála.
VÍB er eignastýringarþjónusta Íslandsbanka.
Íslandsbanki | Kirkjusandi | 155 Reykjavík | Sími 440 4900 | vib@vib.is | facebook.com/VIB.stofan | @vibstofan | www.vib.is
Fyrir tíu árum átti ég tvö
raðhús. Þau voru 100 millj-
óna króna virði (50 millj-
ónir hvort). Þá er það sem
Lilja kemur til mín og vill
fá þau leigð (lánuð) gegn
hæfilegu gjaldi (leiga/
vextir). Okkur semst um
að hún borgi mér 4% af
verðmætinu í leigu (vexti)
á ári. Á þessum 10 árum
hefur verið 7,2% verðbólga
á ári þannig að húsin sem
voru 100 milljóna króna virði eru
nú 200 milljóna króna virði eða 100
milljónir hvort hús. Það er ekki af
því að þau séu raunverulega meira
virði en fyrir 10 árum, heldur er
krónan helmingi minna virði en
þá.
Nú að leigutíma (láns-
tímanum) liðnum hittumst
við Lilja aftur og ég segi
við hana að leigan (vext-
irnir) hafi nú verið ansi
lág því síðasta árið var
hún ekki 4%, heldur 2% af
verðmæti húsanna. Hún
svarar því til að við höfum
samið um þessa leigufjár-
hæð óverðtryggt og við
það sitji og ég bít í það
súra epli að ég hafi samið
af mér. En svo segir hún: „Þú færð
bara annað húsið til baka, ég ætla
að halda hinu því ég fékk hjá þér
100 milljónir og nú er eitt hús þess
virði.“ Ég reyni að malda í móinn,
auðvitað á ég þessi 2 hús eins og
áður. „Nei, þetta var ekki verð-
tryggður leigu(lána) samningur
og þú færð bara þínar 100 millj-
ónir með því að fá annað húsið. Ef
þú ert með eitthvert múður þá fer
ég í mál við þig og ég hef Hags-
munasamtök á bak við mig. Vertu
bara feginn að það var ekki 19,4%
verðbólga, þá hefði ég tekið bæði
húsin og bara þurft að borga þér
3 milljónir.“
Frásögnin er skáldskapur en
byggð á raunveruleikanum.
Starfsmaður SA og fyrr-
um samstarfsmaður minn
á ýmsum vettvangi sendir
mér kveðjur í Fréttablaðinu
27. nóv. sl. í tilefni af grein-
arstúf sem ég skrifaði um
skattatillögur SA. Ég hef þá
reglu að svara í engu ómál-
efnalegum tilskrifum og
þeim sem byggja á kredd-
um og hentifræði. Rökræða
ber ekki árangur í slíkum
tilvikum. En mér er hlýtt
til Halldórs Árnasonar. Ég
veit að honum er ekki illa
í ætt skotið, velviljaður og
sanngjarn innst inni. Ætla
má að tími til andsvara hafi
verið knappur og hann því
gripið til gamalla frjálshyggjufrasa
í stað ígrundunar. Í þeirri von að til
hennar gefist síðar tóm bendi ég
honum á eftirfarandi.
Einföld þríliða
Umkvörtun um talnaleiki ofar hans
skilningi ber lítillæti hans vitni.
Þar er þó á ferðinni einföld þrí-
liða, sem við lærðum báðir í barna-
skóla löngu áður en við lærðum hag-
fræði þar sem við beittum henni á
mörgum sviðum svo sem við vísi-
tölur og stöðlun talnaraða eins og
gert var í grein minni og reyndar
einnig í skýrsla SA. Ég benti einn-
ig á heimildir um þær tölur sem til
grundvallar liggja, þ.e. ríkisreikn-
inga og fjárlagafrumvarp. Ég skil
vel að Halldór ómaki sig ekki á því
að fletta upp á staðreyndum og mun
því senda honum þær sérstaklega
þar sem þær eru of umfangsmiklar
fyrir stutta grein.
Það verður hins vegar varla
heimfært undir lítillæti að fella
dóm, á grundvelli talna, sem dóm-
arinn að eigin sögn skilur ekki, þess
efnis að ég beri ekki skynbragð á
hagnaðarþörf atvinnulífsins, sem
grein mín snerti að litlu eða engu
leyti. Þessi dómur er mér ekki
þungbær og skiljanlegt að hátt sé
reitt til höggs þar sem auk mín var
öll ríkisstjórnin undir. Verð
ég líklega að biðja hana
afsökunar á að hafa valdið
klámhöggi þessu.
Gerir mér upp skoðanir
Halldór gerir mér upp
skoðanir svo sem um bar-
áttu atvinnurekenda og
launþega, að ég telji að það
sé hlutverk stjórnvalda
að færa „auðinn frá fjár-
magnseigendum til fólks-
ins“ svo og að ég telji að
skattalækkanir séu úti-
lokaðar. Ekkert af þessu
kemur fram í grein minni.
Í grein minni var ég ekki
að fjalla um skattlagningu
atvinnurekstrar heldur þeirra sem
hafa tekjur af fjármagnseign. SA
hefur lengi barist fyrir persónuleg-
um hagsmunum fjármagnseigenda
undir því yfirskyni að um hags-
muni atvinnulífsins sé að ræða. Ég
tel hins vegar það vera ósvinnu að
skattlagning þessara einstaklinga
sé með öðrum hætti en annarra
þegna þjóðfélagsins. Mín orð gengu
ekki út á það að taka af einhverjum
„auðinn“ heldur það að tekjuhæstu
hópar þjóðfélagsins beri sanngjarn-
an skerf af því sem þarf til að reka
þjóðfélagið. Ég veit að Halldór veit
eftir langt starf að ríkisfjármálum
að sé einum hópi færðir 30 ma. kr.
á silfurfati eins og tillögur SA fela í
sér muni aðrir þurfa að greiða það
eða skerða þarf þjónustu við þá.
Styðst ekki við nein rök
Það styðst ekki við nein rök að ég
telji skattalækkanir útilokaðar.
Ég benti á að á síðustu árum hefðu
skattar verið lækkaðir hjá sumum
en hækkaðir hjá öðrum. Það var
afleiðing markvissrar stefnu, sem
þegar mátti lesa um í Áætlun um
jöfnuð í ríkisfjármálum frá árinu
2009.
Þar kemur fram sá ásetningur að
breyta skattkerfinu til meiri jöfn-
uðar og sanngirni um leið og ríkinu
er aflað aukinna tekna með hófleg-
um breytingum, umhverfissköttum
og því að þjóðin fái notið auðlinda
sinna. Á þeim stoðum hvíla þær
breytingar sem gerðar hafa verið.
Gegn því berst SA. Komi til þess að
skattalækkanir verði raunhæfar,
t.d. þegar vaxtabyrðin af arfleifð
hrunverjanna minnkar, er ekki
eðlilegt að tekjuhæstu þjóðfélags-
hóparnir njóti forgangs vegna þess
eins að þeir höfðu hann fyrir hrun
heldur á að nota svigrúmið til að
halda áfram að bæta stöðu lág- og
miðtekjuhópa.
Reynsla annarra þjóða er einnig
sú að með því sé best skotið stoðum
undir hagvöxt.
Húsbóndahollusta
Það má stundum ætla að SA telji
ríkisstjórnina ábyrga fyrir allri vá
sem steðjað getur að þjóðinni nema
e.t.v. eldgosum. Það er lofsvert að
vera húsbóndahollur en er ekki
nokkuð langt gengið að trúa því að
tekjufall ríkis, fyrirtækja og heim-
ila á árunum 2008 og 2009, hrun
fjárfestinga og stóraukið atvinnu-
leysi á þeim árum og fleiri sem
hruninu fylgdi hafi verið afleiðing
af skattastefnu sem kom til fram-
kvæmda 2010 og síðar? Ég á erfitt
með að trúa því að Halldór skipi sér
í hóp „svokallaðs-hruns“-verja og
geri sér ekki grein fyrir því að um
er að ræða afleiðingar af aðgerðum
stjórnvalda fyrir hrun, sem m.a.
skópu skattaumhverfi sem átti sinn
þátt í því að fjármálamenn landsins,
áhrifaaðilar innan SA, gátu kollsiglt
þjóðarskútunni. Tillögur SA eru
afturhvarf til þess tíma.
➜ Umkvörtun um talna-
leiki ofar hans skilningi ber
lítillæti hans vitni. Þar er þó
á ferðinni einföld þríliða,
sem við lærðum báðir í
barnaskóla.
Enn um skrautblóm SA
SKATTAR
Indriði H.
Þorláksson
fyrrum ríkis-
skatt stjóri, var
ráðuneytisstjóri
í fj ármála-
ráðuneytinu 2009
og ráðgjafi fyrrum
fj ármálaráðherra í
skattamálum
Lög um mat á umhverf-
isáhrifum hafa tekið
breytingum í tímans rás.
Breytingarnar eiga það
allar sammerkt að krafan
um svokallaðan núll-kost
hefur styrkst. Núll-kostur
er það kallað þegar engar
breytingar eru gerðar á
ríkjandi ástandi.
Umhverfismat nýs
Álftanesvegar um Gálga-
hraun var samþykkt árið
2002. Það var unnið samkvæmt
lögum frá árinu 2000. Þar er skýrt
tekið fram að framkvæmdaaðili
skuli sýna „yfirlit yfir valkosti
sem gerð er grein fyrir í mats-
skýrslu, s.s. aðra kosti varðandi
tæknilega útfærslu framkvæmdar
eða starfsemi, aðra staðarvals-
kosti eða núll-kost, þ.e. að aðhaf-
ast ekkert“. Vegagerðinni bar sem
sagt að sýna fram á hvaða áhrif
það hefði ef Álftanesvegur væri
endurbættur í núverandi vegstæði
(sjá reglugerð nr. 671/2000). Það
var ekki gert. Í umhverfismati
nýs Álftanesvegar voru þrjú veg-
stæði metin, öll þvert yfir hraun-
ið. Því miður samþykkti Skipu-
lagsstofnun þessa málsmeðferð
Vegagerðarinnar athugasemda-
laust. Vitanlega hefði stofnunin
átt að krefjast þess að núll-kostur
yrði skoðaður, þ.e. að núverandi
Álftanesvegur yrði teiknaður og
hannaður að nýju þannig að hann
stæðist allar nútíma öryggiskröf-
ur og metinn samkvæmt því.
Deilan um Álftanesveg snýst
um eitt grundvallaratriði: að
hlífa Gálgahrauni, einstakri nátt-
úruperlu og útivistarparadís. Um
leið og menn sammælast um að
vernda hraunið er hægt að end-
urhanna núverandi Álftanesveg
þannig að hann standist nútíma
öryggiskröfur.
Leyfi á gráu svæði
Undirbúningur nýs Álftanesvegar
er kominn á lokastig. Á öllum stig-
um málsins var farið á svig við
lög og reglugerðir, í það minnsta
eru flestar leyfisveitingar á gráu
svæði. Umhverfismatið sem rann
út 22. maí 2012 er sagt vera í fullu
gildi, 37. grein umhverfisverndar-
laga um sérstaka vernd eldhrauna
er þverbrotin, náttúruminjaskrá
hunsuð og mótmæli almennings
ekki virt viðlits. Ríkisstjórnin
leggur fram rúman milljarð til
verksins á þremur árum. Er það
rétt ráðstöfum fjármuna á meðan
svo mikil óánægja ríkir um fram-
kvæmdina?
Núll-lausn
Hér er sýnt dæmi um svokall-
aða núll-lausn á Álftanesvegi.
Hægt er á umferðinni um Prýða-
hverfi með tveimur hringtorgum
og gamli Álftanesvegurinn end-
urbyggður í samræmi við ýtr-
ustu öryggiskröfur nútíma vega-
gerðar. Nánar verður fjallað um
þessa lausn og verndun hraunsins
á borgarafundi sem Hraunavinir
efna til í safnaðarheimili Vídalíns-
kirkju í Garðabæ kl. 20.00 í kvöld.
Allt áhugafólk um náttúruvernd
er hvatt til þess að mæta.
➜ Deilan um Álf-
tanesveg snýst um
eitt grundvallaratriði:
að hlífa Gálgahrauni,
einstakri náttúruper-
lu og útivistarparadís.
Um leið og menn
sammælast um að
vernda hraunið er
hægt að endurhanna
núverandi Álftanesveg...
➜ „Þú færð bara annað
húsið til baka, ég ætla að
halda hinu því ég fékk hjá
þér 100 milljónir og nú er
eitt hús þess virði.“
Núll-kostur
í Gálgahrauni
SKIPULAGSMÁL
Gunnsteinn
Ólafsson
tónlistarmaður
NÚVERANDI ÁLFTANESVEGUR
PRÝÐAHVERFI
ÁSAR
Verðtryggingin og Lilja
FJÁRMÁL
Hjálmtýr
Guðmundsson
ráðgjafi