Fréttablaðið - 29.11.2012, Síða 35
Systurnar Kristín og Áslaug Friðjóns-dætur höfðu oft talað um það að vinna saman. Síðastliðið vor létu
þær verða af því og hafa þær nú hannað
skartgripalínu undir nafninu Twin Within –
Creative Jewelry sem seld verður í verslun
GK á Laugaveginum og á heimasíðu þeirra
www.twinwithin.com. „Þetta byrjaði allt
á því að Áslaug systir, sem er myndlistar-
maður, var að leita sér að efni í innsetningu
sem hún var að vinna að. Hún fór á milli
báta- og veiðibúða í leit að mismunandi
efnum og sá þar alls kyns kaðla og slöngur
sem hún fór svo að prufa sig áfram með,“
segir Kristín, sem er hönnuður.
Kristín hefur starfað sem víóluleik-
ari og verið viðloðandi tískugeirann en
systir hennar er myndlistarmaður, búsett
í Seattle. „Áslaug sýndi mér hugmyndir
á Skype og þegar hún kom heim síðasta
sumar þróuðum við heila vörulínu sem
samanstendur af hálsfestum og kallast City
Collection.“
Hálsfestarnar eru afar nútímalegar, graf-
ískar og litríkar. Þær eru gerðar úr efnum
tengdum borgarmenningu og litirnir minna
jafnvel á borgarljós og næturlíf. Festarnar
eru skírðar eftir nokkrum af þekkustu
borgum heimsins; Ríó, Róm, Moskvu,
París, Kaíró, Madrid, Helsinki og Berlín.
Hálsfestarnar vísa þó líka til frum-
byggja. „Innblásturinn sóttum við
meðal annars í frumbyggjamenn-
ingu og heimsmenningu, bæði hvað
varðar útlit og vinnslu. Skartgripir
mismunandi ættbálka eru oft gerð-
ir úr efnum sem þeir sækja af sínu
nærsvæði og það má kannski segja
að við séum að gera það sama.“
Frumsýningarteiti Twin Within
verður í verslun GK á Laugaveginum
í dag frá 17 til 20. „Kanilsnældur
munu sjá um að þeyta skífum og léttar
veigar verða í boði. Þá verðum við með
sérstakt opnunartilboð á hálsfestunum.“
■ vidir@365.is
STÓRBORGARHÁLSMEN
NÚTÍMAHÁLSFESTAR Vörulínan City Collection verður kynnt til sögunnar í
dag klukkan 17 í verslun GK á Laugaveginum. Um er að ræða nútímalegar,
grafískar og litríkar hálsfestar gerðar úr efnum tengdum borgarmenningu.
LITUR MEÐ SVÖRTU
Íslenskar konur ganga flestar í svörtu yfir vetrar-
tímann. Með svartri kápu er fallegt að bera lit-
ríkan trefil eða klút. Hann getur verið grænn,
appelsínugulur, fjólublár eða sá litur sem fellur
best að andliti viðkomandi. Um að gera að vera
óhræddur við litríka fylgihluti.
PARÍS OG
KAÍRÓ
Hálsfestarnar
sækja nöfn sín til
margra þekktustu
borga heims og eru
gerðar úr efnum
tengdum borgar-
menningu.
UNNIÐ HÖRÐUM HÖNDUM
Hér eru systurnar Áslaug og
Kristín Friðjónsdætur á verk-
stæðinu að útbúa hálsfestarnar,
sem allar eru handgerðar.
MYND/ANTON
Vandaðir og
þægilegir skór
í úrvali
Hágæða sæn
gurverasett
og sloppar -
Mikið úrval
Jólagjöfin í ár
20%
afslát
tur
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-18 virka daga.
10-14 laugardaga
Sundfatnaður í
D,DD,E,F,FF,G skálum
á 25% afslætti.
TILBOÐ - AÐEINS FIM, FÖS OG LAU - 25% AFSLÁTTUR
Opið kl. 9 -18 laugardaga kl. 11 - 16 Stórhöfða 25 569 3100 eirberg.is
Dagljósin - Bæta líðan og auka afköst
Lumie