Fréttablaðið - 29.11.2012, Page 45
KYNNING − AUGLÝSING Ferðir29. NÓVEMBER 2012 FIMMTUDAGUR 5
SIGLINGAR SAMKYNHNEIGÐRA
Ferðaskrifstofur um heim allan bjóða sérstakar ferðir fyrir samkynhneigða. Mikið
er um svokölluð Gay Cruise en þá er siglt um heimsins höf með viðkomu í nokkrum
höfnum eins og venja er í skemmtisiglingum almennt. Munurinn er sá að um borð
eru eingöngu samkynhneigðir og er dagskráin sniðin að fjölbreyttum áhugamálum
þeirra.
Ferðirnar eru bæði hugsaðar fyrir einhleypa og pör. Sum skipin stíla inn á yngri ferða-
menn en önnur inn á eldra og ráðsettara fólk sem auðveldar val á ferð sem hentar.
Vel er látið af ferðum sem þessum og er mikið um fjölbreytta afþreyingu um borð
svo sem líkamsrækt, slökun, skemmtanir, matarveislur og partí. Til að auðvelda valið
á hentugri ferð má benda á vefsíðuna Cruisecritic.com en þar er að finna sérstakt
spjallborð um siglingar samkynhneigðra undir heitinu Gay & Lesbian Cruisers. Spjall-
borðið er afar virkt og hægt að slá inn ferðaskrifstofuna eða skipið sem ætlunin er
að sigla með og vita hvað þeir sem prófað hafa segja um ferðina, aðstöðuna og
þjónustuna um borð.
STYRKIR TIL
FERÐAÞJÓNUSTUNNAR
Fimm aðilar hlutu nýlega styrk
frá Ferðamálastofu til skipulags
og hönnunar áfangastaða fyrir
ferðamenn. Hæsta styrkinn, 2,9
milljónir króna, hlutu Sjávar-
smiðjan og Reykhólahreppur til
að hanna og þróa heildarmynd
fyrir svæðið kringum Sjávar-
smiðjuna. Þar er gestum meðal
annars boðið upp á þaraböð.
Næsthæsta styrkinn hlaut
Útihvalasafnið í Súðavík er þar
er fyrirhuguð uppbygging
útihvalasafns í gömlu byggðinni
í Súðavík. Hrútleiðinlega safnið
í Hrútafirði hlaut einnig styrk til
að endurhanna sýningarrými
og inngang safnsins sem er á
Reykjum í Hrútafirði. Við Brjánslæk
á Barðaströnd standa Flókatóftir
en styrkur fékkst til vinnu við
hönnun og skipulag tóftanna. Að
lokum fékk Óbyggðasafn Íslands
styrk en safnið verður byggt upp
á sveitabænum Egilsstöðum sem
er innsta byggða ból í Norður-
dal í Fljótsdal og stendur við
þröskuld Vatnajökulsþjóðgarðs.
Tuttugu umsóknir bárust til
Ferðamálastofu sem skipaði fimm
manna dómnefnd til að fjalla um
umsóknirnar.
JÓLAMARKAÐUR
VIÐ ELLIÐAVATN
Jólamarkaðurinn sívinsæli við
Elliðavatn í Heiðmörk verður opn-
aður laugardaginn 1. desember.
Jólamarkaðurinn verður opinn
allar helgar fram að jólum milli kl.
11-16. Þar má finna mikið úrval af
íslensku handverki og hönnun í
sérstökum söluskúrum sem stað-
settir verða þar í desember auk
þess sem sömu vörur verða í boði
í gamla salnum og í kjallaranum í
Elliðavatnsbænum.
Á hlaðinu við bæinn verða ný-
höggvin íslensk jólatré til sölu
og mikið úrval tröpputrjánna
vinsælu auk viðarkyndla og
eldiviðar. Harmóníkusveitir kíkja
í heimsókn og leika lög ásamt
kórum og trúbadorum. Veitingar
verða seldar á staðnum, þar á
meðal nýbakaðar vöfflur og kakó.
Í Rjóðrinu, sem er trjálundur rétt
við Elliðavatnsbæinn, er hægt að
setjast á bekki kringum logandi
varðeld og þar verður barnastund
haldin þar sem barnabókahöf-
undur les upp fyrir börnin. Auð-
vitað kíkja jólasveinar í heimsókn
þegar nær dregur jólum og heilsa
upp á börn og fullorðna.
með VITA 25. - 29. apríl
Sumardagurinn fyrsti
Vor í Róm
Finndu ilminn af ítölsku vori í Róm með öllu sem því tilheyrir. Skoðaðu
Péturskirkjuna og Vatíkanið og lyftu andanum með því að skoða undursamleg
málverk í Sixtínsku kapellunni. Sagan býr í hverjum steini: Kólosseum,
Navónutorg, Panþeon — fortíðin lifnar við hvert fótmál. En Róm er líka
nútímaborg með sín rómuðu veitingahús, hátísku og skemmtistaði á
heimsmælikvarða. Komdu til Rómar og láttu heillast.
á mann m.v. tvo í tvíbýli með morgunverði í fjórar
nætur á hótel Courtyard Rome Central Park.
Gott hótel á rólegum stað, aðeins utan við
miðbæinn.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting með
morgunverði og íslensk fararstjórn.
*Verð án Vildarpunkta 129.900 kr.
Verð frá 119.900 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
Sagan býr í hverjum steini
Lifandi sögu
Menningu og list
Ástríðufulla matargerð
Hátísku og verslanir
Fortíð, nútíð og framtíð
Allt í i i e nn og sömu borg
Upplifðu!
VITA er lífiðVITA
Suðurlandsbraut 2
Sími 570 4444
Skráðu þig
í netklúbbinn - VITA.isVITA er í eigu Icelandair Group.