Fréttablaðið - 29.11.2012, Qupperneq 60
29. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| MENNTUN | 40
iPad 4
með Retina skjá
Vefverslun
www.epli.is
sendum frítt um land allt
Jólaopnun auglýst nánar á www.epli.is
Verð frá: 89.990.-
util if. is
THE NORTH FACE
MCMURDO
DÚNÚLPA
68.990 kr.
HENTAR SÉRLEGA VEL
FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR.
HYVENT ÖNDUNARFILMA
VEITIR GÓÐA VATNSVÖRN.
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
Útskriftarnemar á haustönn í Flensborg dimmiteruðu nýlega og mættu
í morgunkaffi í skólann sinn til að kveðja kennara og aðra starfsmenn.
Þema dagsins hjá nemendunum var Andrés önd og Andrésína þannig
að Andarbæjarandrúmsloft sveif yfir staðnum. Hollustufæði var á borð-
um og kennarar og dimmintentar tróðu upp með skemmtiatriði og söng.
Andabæjarstuð í Flensborg
Gestum er boðið í opið hús á
Hólum í Hjaltadal nú á laugar-
daginn, 1. desember, milli klukk-
an 13 og 15. Tilefnið er fimm
ára starfsafmæli Háskólans á
Hólum og að 130 ár eru liðin frá
stofnun Bændaskólans á Hólum.
Starfsemi skólans verður kynnt,
bæði í aðalbyggingu og með leið-
sögn um hesthús.
Ýmislegt fleira verður í
boði, bæði fræðsla og leikir, að
ógleymdri léttri hressingu.
Opið hús á
Hólum
„Verkefni sem heimspekihópurinn er með
í þessari viku snýst um fagurfræði svo nú
er verið að stúdera listina. Nemendur byrj-
uðu á að skoða nokkur listaverk, bera þau
saman og búa til spurningar í framhaldinu,“
segir Brynhildur Sigurðardóttir, aðstoðar-
skólastjóri í Garðaskóla í Garðabæ, um
nám þeirra ungmenna sem hafa þar heim-
speki sem valgrein. Hún segir innihalds-
ríkar spurningar hafa komið fram sem
varða listina, svo sem: Þarf eitthvað að
vera fallegt til að vera list? og Getur fræg-
ur listamaður tekið mynd af hverju sem er
og flokkað það sem list? „Eitt verkið sem
nemendur skoðuðu var klósettskál,“ lýsir
hún. „Spurning sem kom út frá henni var:
Er klósettskálin mótmæli gegn þögninni um
að allt sé list? Það býr mikið í þeirri spurn-
ingu.“
Í Garðaskóla hefur heimspeki verið val-
grein í tíu ár og Brynhildur segir alltaf
ákveðinn hóp nemenda í 9. og 10. bekk velja
hana. „Við sem höfum kennt heimspeki hér
höfum lagt aðaláherslu á að þjálfa sam-
ræðufærni nemenda því okkur finnst hún
vera grundvallaratriði í þjálfun á gagn-
rýninni hugsun. Reyndar erum við á því að
samræðuaðferð heimspekinnar geti bætt
nám og kennslu í flestum faggreinum því
hún býr yfir rökgreiningartækni,“ segir
hún sannfærandi og telur tvímælalaust eiga
að byrja í leikskólunum. „Margir leikskól-
ar á Íslandi standa sig mjög vel í að kenna
heimspekilega hugsun og fást við stórar
spurningar en grunnskólinn er bundinn við
námsskrá sem er svo efnismiðuð að minna
svigrúm virðist vera fyrir opna samræðu
nemenda.“
Skyldu nemendur kynna sér ákveðin mál-
efni heima og nota þá þekkingu í rökræð-
um í tímum? „Nei, það hefur nánast enginn
heimalærdómur verið í heimspekinni, hún
er stunduð á staðnum. Vinnan fer þannig
fram að það er tekinn fyrir texti eða lista-
verk og umræða spunnin út frá því. Hin
gagnrýna hugsun er þjálfuð með lifandi
samtölum í kennslustundum og ég tel það
hafa raunveruleg áhrif á líf nemenda. Það
er algert grundvallaratriði að nemendur
búi sjálfir til spurningar. Þeir eru komnir
á unglingastig þegar þeir koma til okkar en
þeir hafa afvanist því í bekkjunum á undan
að spyrja spurninga þannig að við erum að
færa þeim aftur leyfi til þess.“ En finnst
henni þessar aðferðir skila sér í öðrum
kennslustundum? „Já, fyrir þá nemend-
ur sem velja heimspekina finnst mér hún
skipta máli. Þeir hafa lýst því sjálfir hvern-
ig þeirra hugsun breytist. Þeir verða sjálf-
stæðari, þora frekar að tala og eiga auðveld-
ara með að færa rök fyrir máli sínu.“
Ekki kveðst Brynhildur þora að fullyrða
að áhrif heimspekikennslunnar sem sumir
njóta smitist út til annarra nemenda. „En ég
veit hvernig áhrifin smitast á milli okkar
kennaranna,“ segir hún brosandi.
Spurð hvort mikill hávaði eigi til að skap-
ast í kennslustundum í heimspeki svarar
Brynhildur. „Það er mjög vel skilgreint
verkefni að læra að hlusta. Sumir þurfa að
læra að hlusta meira og aðrir að tala meira.
Í hvort tveggja fer orka. Kennslan snýst um
það að hver og einn styrki þann þátt sem
er ekki í nógu góðu lagi. Það er samt ekki
meiri hávaði í heimspekikennslustundum
en öðrum.“
Brynhildur segir talsvert til af kennslu-
bókum í heimspeki fyrir grunnskóla hér á
landi. „Námsgagnastofnun hefur gefið út
bækurnar Hugrún, Valur, Hugsi og Leið
þín um lífið. Við notum kafla úr þeim en
leggjum áherslu á að nemendur velji sín
viðfangsefni sjálfir og höfum ekki viljað
ákveða eina bók fyrir fram heldur látum
hópinn ákveða viðfangsefni. Þegar hann vill
rannsaka listina eins og núna og þá finnur
kennarinn bókarkafla sem passar við það
áhugamál.“
Í byrjun heimspekinámsins eru spurning-
arnar oft innihaldslitlar en svo smá dýpka
þær, að sögn Brynhildar. „Það sýnir að við
getum treyst á nemendur okkar, þeir velja
sér verðug rannsóknarefni.“ gun@frettabladid.is
Getum treyst á nemendur okkar
Heimspeki hefur verið kennd í 9. og 10. bekk Garðaskóla í Garðabæ í tíu ár, Brynhildur Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri telur hana
öfl ugasta vopnið til að efl a gagnrýna hugsun ungmenna. Fagurfræði var á dagskrá þegar Fréttablaðið leit inn.
AÐSTOÐARSKÓLASTJÓRINN „Hin gagnrýna
hugsun er þjálfuð með lifandi samtölum í kennslu-
stundum,“ segir Brynhildur.
Í KENNSLUSTUND Hér eru miklar pælingar þegar listin er krufin til mergjar í tíma hjá Ingimar Waage
sem kennir heimspekina í Garðaskóla í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GÓÐ STEMNING Útskriftarnemar skáru sig talsvert úr. MYND/MAGNÚS GÍSLASON