Fréttablaðið - 29.11.2012, Qupperneq 69
FIMMTUDAGUR 29. nóvember 2012 | MENNING | 49
Söngkonan Esther Jökulsdóttir
syngur jólalögin af sígildri plötu
Mahaliu Jackson á tónleikum í
Egilsstaðakirkju í kvöld. Þetta er
sjötta árið í röð sem Esther flytur
jóla- og gospellög að hætti Mahal-
iu, en í fyrsta sinn sem hún fer
með prógrammið austur.
„Ég er alin upp á Héraði og
þykir mjög gaman að fara loks-
ins heim með þetta prógramm
sem er mér mjög hjartfólgið,“
segir Esther. Ástæða þess hve
mikið Esther heldur upp á lög
Jackson er sú að á hennar æsku-
heimili var platan með Mahaliu
Jackson, Silent Night, sett á fón-
inn á aðfangadagskvöld þegar
jólin gengu í garð. „Þegar tónar
plötunnar bárust um húsið þá
voru jólin byrjuð,“ segir Esther
og bætir við að það hafi blundað
í henni í mörg ár að syngja lögin
áður en hún lét slag standa.
„Ég fékk svo úrvalsfólk í lið
með mér og þetta hafa alltaf
verið dásamlegir tónleikar, það
má segja að þeir séu orðnir að
hefð hjá mér,“ segir Esther sem
flytur prógrammið í Fríkirkjunni
í Reykjavík þann 13. desember
klukkan átta. Auk hennar koma
fram Bjarni Arason sem er gesta-
söngvari, karlakvartett skipaður
þeim Benedikt Ingólfssyni bassa,
Einari Clausen og Skarphéðni
Hjartarsyni og Erni Arnarsyni
tenórum, og hljómlistarmenn-
irnir Aðalheiður Þorsteinsdóttir,
sem leikur á píanó, á trommum
er Erik Qvick, Gunnar Gunnars-
son leikur á Hammondorgel og
Gunnar Hrafnsson á kontrabassa.
Útsetningar laganna eru unnar af
Aðalheiði og Skarphéðni.
Mahalia Jackson fastur hluti aðventunnar
Esther Jökulsdóttir og hljómsveit fl ytja jóla- og gospellög í Egilsstaðakirkju og Fríkirkjunni í Reykjavík.
Opið laugard. kl. 10-14
Sígilda Óskajógúrtin
sem enginn verður
leiður á.
Óskajógúrt
jólasveina
í 40 ár
Létta Óskajógúrtin
án viðbætts sykurs.
Þeir eru óðir í Óskajógúrt og fá ekki nóg
enda geta þeir valið um tíu bragðtegundir.
Óskastundir jólasveina eru þegar börnin brosa
af gleði og þegar þeir smakka á sínu uppáhalds
Óskajógúrti. Hver er þín óskastund?
HVAÐ? HVENÆR?
HVAR?
FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER
Hátíðir
17.00 Dr. Mustafa Barghouti heimsækir
Ísland í tilefni af 25 ára afmæli félags-
ins Ísland-Palestína og heldur tölu í
hátíðarsal Háskóla Íslands. Yfirskrift
fyrirlestursins er Palestína - vegferð til
frelsis. Barghouti verður heiðursgestur á
afmælissamkomu félagsins sem haldin
verður á Hótel Borg í kvöld klukkan 20.
Bókmenntir
20.00 Bókakvöld ReykjavíkurAkademí-
unnar, Sögufélagsins, Sagnfræðinga-
félags Íslands og Bókasafns Dagsbrúnar
verður haldið í húsakynnum Reykjavík-
urAkademíunnar, Hringbraut 121.
Tónlist
20.00 Kvennakór Reykjavíkur heldur
sína árlegu aðventutónleika í Fella- og
Hólakirkju. Tónleikarnir eru tileinkaðir
Ingibjörgu Þorbergs og bera yfirskriftina
Nýstárlegur jólaköttur með bjartsýni
og brosi. Sigríður Thorlacius syngur
einsöng með kórnum. Miðaverð er kr.
3.000.
21.00 Bing Crosby tribute-jólatónleikar
verða haldnir á Café Rosenberg.
21.15 Hljómsveitirnar Benni Hemm
Hemm og Just Another Snake Cult
halda tónleika á Gamla Gauknum.
Miðaverð er kr. 1.000.
22.00 Andrea Gylfadóttir og Eðvarð
Lárusson halda tónleika á Ob-La-Dí Ob-
La-Da, Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr.
1.000.
Fyrirlestrar
12.00 Annemette Hejlsted, sendikenn-
ari í dönsku við HÍ, heldur hádegisfyrir-
lestur undir yfirskriftinni Fiktion-løgn,
leg eller kunstighed. Fyrirlesturinn fer
fram á dönsku í stofu 106 í Odda.
12.10 Hallgerður Hallgrímsdóttir ræðir
um sýningu sína, Landslag, í Ljósmynda-
safni Reykjavíkur. auk þess ræðir hún
um listsköpun sína í víðara samhengi og
það sem framundan er.
16.00 Tom Holloway heldur fyrirlestur
um Indland á vegum samtakanna u3a
að Hæðagarði 31. Fyrirlesturinn ber
yfirskriftina India - my personal view.
Hann fer fram í gegnum Skype og er
þýddur á íslensku jafnóðum.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá
inni á visir.is.
ESTHER JÖKULSDÓTTIR