Fréttablaðið - 29.11.2012, Síða 76
29. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| MENNING | 56
KYNLÍF TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
F
A
S
TU
S
_E
_0
5.
11
.1
2
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • sími 580 3900 • www.fastus.is • verslun opin mán - fös 8.30 - 17.00 (Öll verð eru með vsk.)
Dualit brauðrist - rauð (2 brauðsneiðar) kr. 32.944,-
Dualit blandari 41.722,-
Yaxell japanskur stálhnífur - RAN 20cm kr. 15.808,-
Emga þeytari frá kr. 1.013,-
C&S glas kr. 766,- stk. (6stk í pakka)
C&S vatnskanna kr. 5.585,-
Stella
McCartney
hönnuður
ársins
Bresku tískuverðlaunin fóru fram
með pompi og prakt í London á
þriðjudagskvöldið. Stella McCart-
ney var valin bæði hönnuður
ársins og fatamerki ársins.
Mér finnst ofsalega margir í kring-
um mig vera að „reyna“ að eignast
börn. Ég er á óléttualdrinum og ef
þú ert ekki ólétt, þá eru líkur á að þú
sért nýbúin að eignast barn eða ert
að „reyna“ að eignast barn. Ég set
„reyna“ í gæsalappir því það er enn
talað um slíkt í hálfum hljóðum. Það
virðist vera einhver skömm yfir því
að getnaðarferlið geti tekið nokkra
mánuði þó sjálfar samfarirnar
taki bara nokkrar mínútur. Karl-
menn eiga það til að hafa áhyggj-
ur af hraða og getu sæðis síns og
getur gæðaúttekt á slíkum sund-
köppum gersamlega gert út af við
annars stálpaða karlmenn. Konur
stinga upp í sig hitamæli, fylgjast
með egglosi, reikna út samfaratíðni
og stellingar til að hámarka rennsli
sundmanna og bíða svo og vona að
hin mánaðarlega frænka komi ekki
í heimsókn. Það virðist vera aukin
vitund um að spurningar sem tengj-
ast fjölgun eða tilraunum til henn-
ar séu óviðeigandi og mögulega
særandi. Þetta er einkamál fólks og
aðrir eiga ekki að hnýsast í þeirra
kynlíf. Það skil ég vel, en ég er
samt að pæla í einu, það að reyna að
eignast barn getur sest á sálina og
hjartað. Svo ekki sé minnst á þá sem
verða óléttir fyrir „slysni“, jafnvel
við það eitt að horfa hvort á annað,
og sitja svo eftir eins og eitt stórt
spurningamerki.
Ég vildi gjarnan að við myndum
tala opinskárra um það ferli sem
getnaður er. Það þarf enginn að
fara út í stellingar eða framandi
tækni heldur aðeins hvernig upplif-
unin er og hvaða áhrif þetta hefur
á sambandið. Það getur verið ansi
stressandi að gelta á makann að
stinga honum inn því nú séu kjörað-
stæður hjá egginu sem bíður spennt
í leiðaranum. Svo ekki sé minnst á
nær daglega líkamsathugun þar
sem rýnt er í einkenni og ástand og
óþægindi eins og viðkvæm brjóst
og flökurleiki eru fagnaðarefni.
Ég tel að ef þessi umræða væri
opnuð þá myndi það létta á mörgum,
sérstaklega þeim sem halda að þau
séu þau einu sem ekkert gengur hjá.
Það að búa til barn getur tekið tíma
og það þarf ekki að þýða að eitthvað
sé að, þó vissulega geti það hjálp-
að að fara í skoðun til að fá málin
á hreint. Hjá sumum tekur þetta
lengri tíma og hjá öðrum skemmri.
Báða aðila langar í barn og mikið
væri það gott ef það mætti bara
ræða án þess að pukrast í hálfum
hljóðum með roða í kinnum. Mark-
miðið er göfugt þó leiðin að því geti
verið misjöfn.
Skrítnar stellingar
og framandi tækni
ERFITT VERKEFNI Það getur verið
tímafrekt og erfitt að eignast barn.
NORDICPHOTOS/GETTY
VINNINGSHAFI Stella McCartney var sigurvegari
kvöldsins og fór heim með tvenn verðlaun.
FYRIRSÆTA ÁRSINS Cara
Delvigne var alsæl með verðlaunin.
STÍLDROTTNING Alexa Chung fékk
stílverðlaun á hátíðinni.
RAUÐUR Amber
Valletta í flottum
rauðum síðkjól.
SVARTKLÆDD
Salma Hayek
mætti í
svörtum kjól.
SÖNGKONAN
Rota Ora var
hvítklædd með
stóra tösku.