Fréttablaðið - 21.12.2012, Blaðsíða 80
21. desember 2012 FÖSTUDAGUR| MENNING | 56
TÓNLIST ★★★ ★★
Þórir Georg
I Will Die and You Will Die and It Will
Be Alright
KIMI RECORDS
Margir muna eflaust eftir Þóri
Georg undir nafninu My Summer
as a Salvation Soldier. Hann hefur
einnig verið meðlimur í hljómsveit-
unum Gavin Portland og Death
Metal Supersquad og því átt nokk-
uð langan og fjölbreyttan feril þrátt
fyrir ungan aldur. I Will Die and
You Will Die and It Will Be Alright
er önnur breiðskífa Þóris undir
hans eigin nafni, en hann sér sjálf-
ur um allt sem plötunni viðkemur
– allt frá lagasmíðum og hljóðfæra-
leik til hönnunar umbúða.
Listamenn á borð við Will Old-
ham og Bill Callahan eru augljós-
ir áhrifavaldar Þóris, sem virðist
sækja í lágstemmdan hljóm indí-
rokktónlistar frá miðvesturríkj-
um Bandaríkjanna. Eins og titill-
inn á plötunni gefur til kynna er
hún nokkuð melankólísk, eða bit-
ursæt svo slett sé á íslensku, sem
er í takt við fyrri verk Þóris. Þetta
eru róleg kassagítarlög í grunninn,
með sterkum melódíum rafmagns-
gítara og orgels, sem heppnast oft
og tíðum ágætlega. Platan er ekki
meðal þeirra aðgengilegustu en
vinnur á við hverja hlustun. Bestu
lög plötunnar eru „You Know“ auk
titillagsins, bæði mjög frambæri-
leg. Lagið „Afmæli“ er ástaróð-
ur Þóris til eiginkonu sinnar, með
kímnum texta sem hægt er að brosa
yfir. Lögin „Crawl“ og „Rautt“ hafa
ákveðinn Kurt Weill, eða jafnvel
Tom Waits-fíling og venjast þau
furðuvel. Það sama á við um lagið
„Changes,“ þar sem er orgelið leik-
ur lykilhlutverk í góðum stíganda.
Björn Teitsson
NIÐURSTAÐA: Melankólískt
en jafnframt fallegt verk frá
áhugaverðum listamanni.
Vinnur á
við hverja hlustun
ÞÓRIR GEORG „Eins og titillinn á plötunni gefur til kynna er hún nokkuð
melankólísk, eða bitursæt svo slett sé á íslensku, sem er í takt við fyrri verk Þóris.“
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Zero Dark Thirty í leikstjórn
Kathryn Bigelow er besta kvik-
mynd ársins 2012 samkvæmt vef-
síðunni Metacritic.com. Þar eru
teknir saman topp tíu listar virt-
ustu gagnrýnenda Bandaríkjanna
og Bretlands yfir bestu mynd-
ir ársins, þar á meðal frá The
Guardian, The New York Times,
Time, Entertainment Weekly og
Rolling Stone.
Zero Dark Thirty fjallar um
leitina að Osama bin Laden og var
nýlega tilnefnd til fernra Golden
Globe-verðlauna. Myndin er með
95 í einkunn af 100 mögulegum
hjá Metacritic. Síðasta mynd Bige-
low, The Hurt Locker, hlaut sex
Óskars verðlaun og búast margir
við því að Zero Dark Thirty feti
í fótspor hennar á næstu Óskars-
verðlaunahátíð í Hollywood.
Í öðru sæti á listanum er
franska myndin Amour sem vann
Gull pálmann í Cannes fyrr á
árinu. Hún fjallar um fyrrum tón-
listarkennara og hjón sem eru á
níræðis aldri.
Númer þrjú á listanum er Lin-
coln í leikstjórn Stevens Spiel-
berg, sem fjallar um Bandaríkja-
forsetann Abraham Lincoln. Hún
var tilnefnd til sjö Golden Globe-
verðlauna á dögunum, þar á meðal
aðalleikarinn Daniel Day-Lewis.
Moonrise Kingdom, nýjasta
mynd Wes Anderson, er í fjórða
sæti, og í því fimmta er The
Master í leikstjórn Pauls Thomas
Anderson (Magnolia, Boogie
Nights). Hún er með Joaquin
Phoenix og Philip Seymour Hoff-
man í aðalhlutverkunum og fjallar
um náunga sem snýr aftur heim
eftir að hafa verið í sjóhernum.
ZERO DARK THIRTY BEST
Kvikmynd um leitina að Osama bin Laden er á toppnum hjá síðunni Metacritic.
BEST Zero Dark Thirty í leikstjórn Kathryn Bigelow er besta mynd ársins 2012.
AMOUR Franska myndin vann
Gullpálmann í Cannes.
LINCOLN Daniel Day-Lewis leikur fyr-
rum Bandaríkjaforsetann Lincoln.
MOONRISE KINGDOM Bruce Willis og
Edward Norton leika í nýjustu mynd
Wes Anderson.
Næsta plata Queens Of The Stone
Age kemur út í mars á næsta ári.
Þá verða liðin sex ár síðan Era
Vulgaris kom út.
Eins og komið hefur fram
trommar Dave Grohl úr Foo Fig-
hters á plötunni eins og hann gerði
á Songs For The Deaf sem kom
út 2002. Josh Homme, forsprakki
Queens of the Stone Age, sagði
nýlega að lögin sem búið væri
að taka upp með Grohl hljómuðu
eins og að hlaupa í draumi. Trent
Reznor og Nick Oliv eri, fyrrum
bassaleikari sveitarinnar, spiluðu
einnig á plötunni.
Queens með
plötu í mars
NÝ PLATA Queens of the Stone Age
gefur út nýja plötu í mars.