Fréttablaðið - 06.02.2013, Blaðsíða 14
6. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 14TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Nýstárleg dagskrá verður á boðstólum í Davíðshúsi, heimili
Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi, í kvöld. Þar gefst bók-
menntaunnendum kostur á að upplifa húsið á óvenjulegan
hátt en ferðast verður um húsið með leikurum Leikfélags
Akureyrar, lesin verða nokkur af helstu ljóðum skáldsins og
leiklesin verða atriði úr nýju leikriti eftir Árna Kristjánsson,
Sálin hans Davíðs, sem fjallar um Davíð Stefánsson og ferð
hans að gullna hliðinu.
Það eru Minjasafn Akureyrar og Leikfélag Akureyrar
sem standa að dagskránni en á döfinni er að efna einnig til
dagskrár um Jón Sveinsson, Nonna, og Matthías Jochumsson
en öll þessi skáld eiga sitt safnahús á Akureyri.
Árni Kristjánsson, höfundur leikritsins um Davíð, sat við
skriftir þegar Fréttablaðið sló á þráðinn til hans. Hann hefur
um nokkurt skeið unnið að leik-
riti um Davíð Stefánsson sem fyrr
segir. „Mig langaði til þess að skrifa
um persónuleika Davíðs Stefáns-
sonar vegna þess hversu dramat-
ísk ævi hans var, en sagan er með
óvæntu sniði. Leikritið gerist eftir
dauða skáldsins. Hann er staddur á
óræðum stað eftir andlát sitt ásamt
vinum sínum, Árna Kristjánssyni
píanóleikara og Páli Ísólfssyni tón-
skáldi, og þarf að velta fyrir sér
hvort hann eigi að stíga þau skref
sem þarf til þess að komast inn fyrir
gullna hliðið,“ segir Árni og útskýrir að skrefin sem skáldið
þarf að stíga snúist um iðrun og uppgjör við fortíðina. „Líf
Davíðs var dramatískt, hann var mjög frægur, hálfgerð
rokkstjarna þess tíma, ljóðlestur hans þótti framúrskarandi
og Davíð, sem var mjög myndarlegur, varð strax mjög vin-
sæll eftir útkomu sinnar fyrstu bókar, Svartar fjaðrir. Hann
var síðan mikill drykkjumaður og sveiflaðist mjög í skapi,“
segir Árni og bætir við að verk hans lifi, ekki síst þau sem
Páll samdi lög við, en samstarf Davíðs og Páls gerði leik-
rit Davíðs, Gullna hliðið, að einni vinsælustu leiksýningu
Íslendinga.
Fimm leikarar taka þátt í dagskrá kvöldsins í Davíðs-
húsi, þau Aðalbjörg Árnadóttir, Anna Gunndís Guðmunds-
dóttir, Einar Aðalsteinsson, Hannes Óli Ágústsson og
Tryggvi Gunnarsson. Hannes Óli fer með hlutverk skálds-
ins, Tryggvi leikur Pál og Einar leikur Árna, sem er alnafni
höfundarins en þó ekki forfaðir hans eins og blaðamaður
freistast til að álykta. „Nei við erum ekkert skyldir, þetta er
bara ótrúlega skemmtileg tilviljun. Hins vegar var afi minn,
Kristján Jónsson, góður vinur Davíðs og gaf meðal annars
út minningabókina Skáldið frá Fagraskógi,“ segir Árni sem
að lokum hvetur sem flesta til að mæta í Davíðshús en dag-
skráin verður flutt klukkan átta og níu. sigridur@frettabladid.is
Dramatísk ævi Davíðs
efniviður nýs leikrits
Leiklestur úr nýju leikriti um Davíð Stefánsson er meðal þess sem boðið verður upp á í
Davíðshúsi í kvöld en þá gefst kostur á því að upplifa húsið á óvenjulegan máta.
ÁRNI KRISTJÁNSSON Vinnur að leikriti um eitt af þjóðskáldum
Íslendinga, Davíð Stefánsson, en dagskrá honum helguð verður flutt í
Davíðshúsi í kvöld. MYND/HEIÐA
MERKISATBURÐIR
1643 Hollenski landkönnuðurinn Abel Tasman uppgötvar
Fídjíeyjar.
1658 Sænski herinn, undir stjórn Karls X., ræðst inn í Danmörku
með því að fara yfir Eyrarsund á ís.
1788 Massachusetts verður sjötta fylkið til að staðfesta
stjórnar skrá Bandaríkjanna.
1826 Bruni á Möðruvöllum í Hörgárdal. Auk þriggja húsa
brennur mikið af skjölum í eldinum.
1936 Vetrarólympíuleikarnir 1936 hefjast í Garmisch-
Partenkirchen í Þýskalandi.
1958 Bobby Charlton er einn af þeim sem komast lífs af eftir
flugslys í Þýskalandi. Átta liðsfélagar hans í Manchester United
létu lífið.
1968 Vetrarólympíuleikarnir 1968 hefjast í Grenoble í Frakk-
landi.
1987 Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi er stofnaður.
1988 Alfred Jolson er vígður biskup kaþólskra á Íslandi.
1999 Vinstrihreyfingin– grænt framboð er stofnuð.
2010 Ísafold– Félag ungs fólks gegn ESB aðild er stofnað.
Faðir minn, afi, bróðir og mágur,
HARALDUR AXEL GUÐBERGSSON
lést á hjúkrunarheimilinu Eir 30. janúar.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni við Tjörnina
föstudaginn 8. febrúar kl. 15.00.
Steinn Haraldsson
Jón Stefánsson Guðfinna Guðlaugsdóttir
barnabörn.
Ástkær móðir okkar,
UNNUR GUÐBJÖRG ÞORKELSDÓTTIR
hárgreiðslumeistari,
Smáratúni 8, Álftanesi,
lést á líknardeild Landspítalans þann
4. febrúar sl. Útförin fer fram frá Garðakirkju
mánudaginn 11. febrúar kl. 15.00. Þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Margrét Þóra Gylfadóttir
Kristín Edda Gylfadóttir
Unnur Kristbjörg Gylfadóttir
Freyja Gylfadóttir
Þorkell Snorri Gylfason
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
HALLDÓR JÓHANNESSON
frá Sandá í Svarfaðardal,
lést að Dalbæ, Dalvík laugardaginn
2. febrúar síðastliðinn. Útförin fer fram
frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 9. febrúar
klukkan 13.30.
Steinunn Daníelsdóttir
Anna María Halldórsdóttir Jóhann Jóhannsson
Halldór Jóhannsson Erla Árnadóttir
Helga Magnea Jóhannsdóttir Sigurður Arnar Jónsson
Jóhann Steinar Jóhannsson Íris Björk Gunnlaugsdóttir
og langafabörn.
Okkar ástkæra eiginkona, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
HÓLMFRÍÐUR FRIÐRIKSDÓTTIR
Sauðármýri 3,
Sauðárkróki,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki
laugardaginn 2. febrúar. Útför hennar verður
gerð frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 9. febrúar kl. 14.00.
Við afþökkum vinsamlegast blóm og kransa, en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki
eða Lionsklúbbinn Björk.
Jón Karl Karlsson
Brynhildur Björg Jónsdóttir Sigmundur Ámundason
Friðrik Jónsson
Karl Jónsson Guðný Jóhannesdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
LAUFEY JAKOBÍNA
GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Neðri Miðvík og Stakkadal í Aðalvík,
lengst af til heimilis að
Réttarholtsvegi 67,
sem lést þriðjudaginn 29. janúar síðastliðinn verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju föstuaginn 8. febrúar kl. 13.00.
Halldóra J. Sölvadóttir
Hermann T. Sölvason Marianne Person
Margrét S. Sölvadóttir
Axel H. Sölvason Björk Geirdal
Magnús Óskarsson Barbara Paciejewska
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma og
systir,
ÁSLAUG S. GUÐJÓNSD. SVEINSSON
lést í Kaupmannahöfn 26. janúar 2013.
Jarðarförin hefur farið fram.
Susanne M Níelsen
Hanne K Petersen
Parthe Þ Sveinsson og barnabörn.
Anna F. Guðjónsdóttir
Júlíus H Guðjónsson
Allan Níelsen
Daniel Petersen
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
STEINUNN UNNUR
HÁKONARDÓTTIR (Lilla)
frá Flatey á Breiðafirði,
síðast til heimilis að Eyjabakka 6, Rvk.,
lést mánudaginn 4. febrúar á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi. Jarðarförin
auglýst síðar.
Ingunn Karítas Indriðadóttir Jóhann Sæberg Helgason
Guðný Vigdís Indriðadóttir
Indriði Indriðason Anna Árdís Helgadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GYÐA ÓLAFSDÓTTIR
Lindagötu 57,
lést á Landspítalanum Fossvogi
sunnudaginn 3. febrúar. Útförin fer fram
í Neskirkju mánudaginn 11. febrúar nk.
klukkan 13.00.
Stefán Gunnar Stefánsson Hafdís Hannesdóttir
Ella Stefánsdóttir
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÞORKELL SIGURBJÖRNSSON
tónskáld,
lést miðvikudaginn 30. janúar á líknardeild
Landspítalans. Útför hans fer fram frá
Hallgrímskirkju föstudaginn 8. febrúar kl.
13.00. Þeim sem vildu minnast Þorkels er
bent á orgelviðgerðasjóð Hallgrímskirkju.
Barbara Sigurbjörnsson
Sigurbjörn Þorkelsson Aðalheiður Magnúsdóttir
Mist Barbara Þorkelsdóttir Sigfús Nikulásson
barnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð, vináttu
og hlýhug vegna andláts og útfarar
sambýliskonu, móður, tengdamóður, ömmu
og langömmu okkar,
GUÐLAUGAR MARTEINSDÓTTUR
(LÓLÓ)
Löngumýri 22D, Garðabæ.
Gísli Ferdinandsson
Katrín Margrét Bragadóttir Oddur Fjalldal
Eyjólfur Einar Bragason Kristín Kristmundsdóttir
Stella Bragadóttir Michael Whalley
Þórir Valgarð Bragason Hanna Rúna Harðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
DAVÍÐ STEFÁNSSON