Fréttablaðið - 06.02.2013, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 06.02.2013, Blaðsíða 32
6. FEBRÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR6 FRÉTTASKÝRING/GJALDEYRISMÁL Magnús Þorlákur Lúðvíksson magnusl@frettabladid.is Íslenska hagkerfið var lokað innan gjaldeyrishafta á haust- mánuðum 2008. Höftin veittu við- kvæmu hagkerfi skjól til skamms tíma en óumdeilt er að til lengri tíma valda þau hagkerfinu skaða. Stjórnvöld stefna að því að afnema gjaldeyris höftin sem fyrst og með sem minnstum tilkostnaði. Það ætlar þó að reynast erfiðari raun en flestir gerðu ráð fyrir þegar höftin voru sett á. Gjaldeyrishöftin settu alþjóð- leg fyrirtæki sem starfa á Ís- landi í einkennilega stöðu. Skyndi- lega voru tengsl íslensku hluta þeirra við erlendu hlutana rofin og þeim orðið skylt að hlíta mjög ströngum reglum um gjaldeyris- viðskipti. Markaðurinn ræddi við forsvarsmenn þriggja stærstu al- þjóðlegu fyrirtækja landsins, Össurar, Marel og CCP, um áhrif gjaldeyris haftanna á starfsemi fyrirtækjanna og efnahagslífið. HÖFTIN HAFA EKKI ÁHRIF Á DAGLEGAN REKSTUR Segja má að gjaldeyrishöftin valdi minni fjölþjóðlegum fyrir- tækjum meiri vandræðum en þeim stærstu sem geta fengið allsherjar- undanþágu. Það er þó ekki þar með sagt að höftin séu umsvifamiklu fyrirtækjunum skaðlaus. „Við erum vissulega á víð- tækum undanþágum sem gilda fyrir allan daglega rekstur. Allt sem er fyrir utan daglegan rekst- ur er hins vegar mjög erfitt. Ég get nefnt sem dæmi að við höfum lent í miklum vandræðum vegna kaupréttarsamninga og annarra skuldbindinga sem eru eldri en höftin,“ segir Jón Sigurðsson, for- stjóri Össurar, og heldur áfram: „Stærsta breytingin fyrir okkur er hins vegar geta okkar til að nálgast erlent fjármagn til fjár- festingar í starfseminni á Íslandi. Félagið er fjármagnað erlend- is og með lánasamninga við þrjá erlenda banka. Það er hins vegar skilyrði á þessum lánum að við megum ekki koma með peningana til Íslands og það er náttúru lega ákaflega skrýtin staða að það eru dótturfélögin erlendis sem skulda en ekki móðurfélagið.“ Jón segir að þar sem Össur sé fjárhagslega sterkt félag geti það fjárfest í innviðum sínum hér á Ís- landi án vandkvæða. Væri stað- an önnur myndu gjaldeyris höftin hins vegar verulega takmarka möguleika félagsins í þeim efnum. Sigsteinn P. Grétarsson, aðstoðar forstjóri Marels, tekur í svipaðan streng. Hann segir að gjaldeyrishöftin hafi engin áhrif á viðskiptavini félagsins og lítil áhrif á starfsmenn þess. Þau bitni hins vegar talsvert á hluthöfum þess, sérstaklega þeim erlendu. „Í fyrsta lagi gera höftin það mun erfiðara að finna nýja er- lenda hluthafa. Hluthafar þurfa nefnilega að horfa á ákveðinn afslátt af sinni eign einfaldlega vegna þeirrar óvissu sem felst í því að eiga krónueignir,“ segir Sig- steinn og heldur áfram: „Þá hefur maður áhyggjur af því að reynsla þeirra erlendu fjárfesta sem þó eru í landinu sé síst til þess fall- in að hvetja aðra til að fylgja for- dæmi þeirra. Þeir fá höftin yfir sig, það hafa verið miklar skatt- kerfisbreytingar hérna sem þeir eiga erfitt með að skilja. Það eru fjárfestingartækifæri hérna, til dæmis í gegnum fjárfestingarleið Seðlabankans, en öll svona reynsla fælir fjárfesta frá og maður heyr- ir það að þetta hefur ekki farið fram hjá þeim.“ UNDANÞÁGUR FRÁ REGLUM VAFASÖM UNDIRSTAÐA Hilmar Veigar segir að fyrstu vik- urnar eftir að gjaldeyrishöftin voru sett á hafi verið æði skraut- legar hjá CCP. Komið hafi í ljós að fyrirtækið uppfyllti ekki skil- yrði fyrir allsherjarundanþágu þar sem meira en 20% kostnaðar fyrirtækisins fellur til á Íslandi. „Það má nú reyndar minnast á það hvað það er skrýtinn hvati til að hafa í kerfinu, það beinlínis hvetur fyrirtæki til að flytja starfsemi til útlanda,“ segir Hilmar og heldur áfram: „En það má segja að fyrsta árið í höftum hafi verið mjög erfitt þegar við vorum að læra á þetta. Seðlabankinn var þó allur af vilja gerður til að auðvelda okkur þetta og smám saman fór þetta að ganga betur en það fór mikill tími í að ganga frá öllum okkar málum þannig að við gætum starfað eðli- lega að sem víðtækustu leyti og það fer enn nokkur tími í það,“ segir Hilmar. Jón Sigurðsson segir að jafn- vel þótt Össur starfi á allsherjar- undanþágu sé það vafasamur grunnur til að byggja fyrirtæki á. „Þetta er undanþága sem við þurfum að sækja um á hverju ári. Það er að vísu bót í máli að það er búið að setja undanþáguskilyrðin í lög þannig að við höfum eitthvað fast í hendi en þetta gerir það samt sem áður að verkum að við þurf- um að reka fyrirtækið frá ári til árs og það er mjög óþægilegt að geta ekki treyst áætlunum lengra fram í tímann en það,“ segir Jón og bætir við: „Eftir því sem þetta ástand ílengist og höftin festast í sessi eykst þrýstingur frá erlend- um hluthöfum í félaginu um að flytja það einfaldlega burt frá Ís- landi en ég ætla nú ekki að spá því að það gerist.“ HÖFTIN ERFIÐA SÖLURÆÐUNA Hilmar Veigar segir að fyrirtæki á borð við CCP eigi í alþjóðlegri samkeppni um hæft starfsfólk. Fyrirtækinu hafi á liðnum árum tekist að fá þó nokkuð af hæfileika- ríku erlendu starfsfólki til Íslands en bætir við að það sé varla hægt eftir að höftin voru sett á. „Við leggjum eiginlega ekki í það að út- skýra fyrir fólki sem er kannski með starfstilboð frá Google eða Facebook að ef það komi til Ís- lands og vinni fái það pening inn á íslenskan bankareikning en að það sé óvíst hvort það geti tekið peningana með sér aftur vilji það fara. Það er ekki góð söluræða,“ segir Hilmar og heldur áfram: „Þetta þýðir að vöxtur fyrir tækis- ins verður í meiri mæli erlendis en ella því við getum eigin lega bara ráðið erlent fólk á skrifstofur okkar erlendis, sem er leiðinlegt því við höfum viljað fá reynslu þessa fólks hingað til lands.“ SPROTAFYRIRTÆKIN SKÖÐUÐ Þeir Hilmar, Jón og Sigsteinn eru allir sammála um að gjald- eyrishöftin standi nýsköpunar- fyrirtækjum sem hyggjast hasla sér völl erlendis fyrir þrifum. Jón segir til dæmis alveg ljóst að Össur hefði ekki náð þeirri stöðu sem fyrirtækið hefur í dag ef gjaldeyrishöft hefðu verið til stað- ar á uppvaxtarárum fyrirtækis- ins. „Össur er stöndugt fyrirtæki með nóg af peningum. Við getum alveg verið með lögfræðistofu að vesenast út af þessum höftum og við getum tekið lán í erlendum bönkum. Þetta ástand er miklu erfiðara fyrir fyrirtæki sem geta það ekki og þar stendur hnífurinn í kúnni,“ segir Jón. Spurður hvort CCP hefði getað vaxið og dafnað í haftaum- hverfi svarar Hilmar: „Að því gefnu að við hefðum getað fengið fjárfestingu hefði það mögulega sloppið. Þetta verður fyrst og fremst erfitt þegar fyrirtæki eru að taka skrefið úr því að vera lítið sprota fyrirtæki í það að vera milli- stórt alþjóðlegt fyrirtæki. Slík fyrirtæki þurfa erlenda fjárfest- ingu og viðskiptatengsl og höftin gera það allt miklu erfiðara, sem þýðir að við hættum á að missa þessi fyrir tæki sem þó komast á legg of snemma úr landi.“ Sigsteinn segir að til að fyrir- tæki vaxi úr grasi þurfi margt að koma til. Gjaldeyrishöft þýði ekki að sprotafyrirtæki fái ekki þrifist en hins vegar sé erfiðara að fóta sig í slíku umhverfi. Alþjóðleg fyrirtæki í gjaldeyrishöftum Þótt gjaldeyrishöftin hafi lítil áhrif á daglegan rekstur þeirra alþjóðlegu fyrirtækja sem starfa á Íslandi valda þau þeim skaða á ýmsa vegu. Þetta er mat þeirra Hilmars Veigars Péturssonar, forstjóra CCP, Jóns Sigurðssonar, forstjóra Össurar, og Sigsteins P. Grétarssonar, aðstoðarforstjóra Marels, sem Markaðurinn ræddi við um höftin. Fyrirtæki sem hafa yfir 80% af tekjum og 80% af gjöldum erlendis geta fengið allsherjarundanþágu frá höftunum. Þá er hægt að fá undanþágu vegna einstakra fjármagnsflutninga. Sækja þarf um undanþágurnar til Seðlabankans, sem hefur fengið á bilinu 390 til 970 undanþágubeiðnir á ári frá því að höftin voru sett á, þar af tæpan helming frá fyrirtækjum. Afgreiðsluferlið getur tekið frá nokkrum dögum upp í nokkrar vikur. Alls hafa 50 íslensk félög fengið allsherjarundanþágu frá gjaldeyris- höftunum en Seðlabankinn birtir reglulega lista yfir félögin á vefsíðu sinni. Í þeirra hópi eru meðal annarra Össur og Marel en ekki CCP, sem uppfyllir ekki skilyrðið um að hafa 80% gjalda erlendis. UNDANÞÁGUR FRÁ HÖFTUM Í BOÐI LAXAVINNSLUKERFI MAREL Sigsteinn P. Grétarsson, aðstoðarforstjóri Marels, segir að gjaldeyrishöftin hafi ekki áhrif á viðskiptavini félagsins og lítil áhrif á starfsmenn en talsverð áhrif á hluthafa og fjármögnunarmöguleika félagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Við ættum að horfa á það hvernig efnahagslíf rís innan gjaldeyrishafta og hvernig efnahagslíf á í vandræðum vegna þeirra. Ég held að það sé alveg hægt að reka hér hagkerfi í höftum til frambúðar. Ég er hins vegar mjög efins um að það sé spennandi framtíðarsýn. Sprota- og nýsköpunar fyrirtæki og framleiðslufyrirtæki sem vilja hasla sér völl á alþjóðavettvangi eru fyrirtækin sem lenda í vandræðum út af höftunum og ég hef miklar efasemdir um að við viljum fórna þessum fyrirtækjum og vera ekki í tengslum við alþjóðaefnahagslífið,“ segir Hilmar Veigar Péturs son, forstjóri CCP, og bætir við: „Ísland er 300 þús- und manna hagkerfi sem notar gjaldmiðil sem heitir ISK. CCP rekur 450 þúsund manna hagkerfi sem notar gjaldmiðil sem heitir ISK. Báðir gjaldmiðlar eru undir gjaldeyrishöftum og ég sé einfaldlega ekki mikinn mun á þeim. Það má því segja að gjaldeyrishöftin skapi ákveðna gerviveröld.“ SPROTA- OG FRAMLEIÐSLUFYRIRTÆKI TAPA HILMAR VEIGAR PÉTURSSON „Vandamálið við höftin er að það er ómögulegt að reikna út hvað þau gera mikinn skaða en mun auðveldara að reikna út hvað þau hjálpa mikið. Ef við ætlum hins vegar að hafa sambærilegt efnahagslíf á Íslandi og í Evrópu og Bandaríkjunum þá gerum við það ekki í höftum. Það er alveg ljóst að þau þurfa að fara og það er hræðilegt til þess að hugsa að það er ekkert sem bendir til þess að þau fari á næstunni,“ segir Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar. HÖFTIN VERÐA AÐ FARA JÓN SIGURÐSSON „Það að vera með gjaldeyrishöft takmarkar verulega mögu- leika innlendra fyrirtækja á að laða til sín erlent fjármagn. Þess vegna er mjög mikilvægt að afnema þau. Við verðum að fá fjárfestingu til landsins og við verðum að skapa fleiri störf. Höftin standa í vegi fyrir þessu og því er eitt brýnasta verkefni samtímans að losna við þau. Ég vil líka nefna að því er stundum haldið fram að krónan sé ekki vandamálið en þetta er allt tengt. Án krónunnar þyrftum við ekki höft,“ segir Sigsteinn P. Grétarsson, aðstoðarforstjóri Marels. HÖFTIN STANDA Í VEGI FYRIR FJÁRFESTINGU SIGSTEINN P. GRÉTARSSON

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.