Fréttablaðið - 06.02.2013, Page 34

Fréttablaðið - 06.02.2013, Page 34
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301 Þórlindur Kjartansson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Sjálfstæðisfl okksins Leifur B. Dagfi nnsson, framleiðandi hjá True North Hin hliðin Eiginkona vinar míns fór í sérnám í heilbrigðisgeiranum til Stokkhólms fyrir tveimur árum og fluttist fjöl- skyldan því búferlum þangað. Þessi vinur minn hafði þann kost að geta sinnt sínu starfi á Íslandi í fjarvinnu og bað hann skattayfirvöld í Svíþjóð um að meta hvort hagkvæmara væri fyrir hann að greiða skatta þar í landi en á Íslandi. Svarið var að svo væri og þegar álagningarseðlar voru sendir út fékk hann endurgreiðslu sem nam rúmlega mánaðarlaunum hans fyrir umrætt ár. Það þarf ekki að hafa um það mörg orð hversu miklu munar fyrir þessa litlu millistéttarfjölskyldu að hafa einum mánaðarlaunum meira til ráðstöfunar á ári hverju. Hæstu tekjuskattarnir á Íslandi Þetta er aðeins eitt af mörgum sláandi dæmum um hið ósann- gjarna tekjuskattskerfi Íslendinga sem svo margir eru farnir að flýja. Það kemur nefnilega í ljós að þegar hið þrepaskipta tekjuskattskerfi á Íslandi er borið saman við önnur lönd, og lífeyrissjóðsiðgjöld eru tekin með, er Ísland með hæstu tekjuskatta í Evrópu. Efsta tekjuskattsþrepið okkar verður 58% þegar lífeyrissjóðs- iðgjöldin eru tekin með. Ósanngjörn skilgreining á hátekjum En þetta er ekki það eina sem er ósanngjarnt við tekjuskattskerfið. Annað sem er ekki síður alvarlegt og bitnar mjög illa á millistéttinni er hversu lágt tekjuviðmið er fyrir þriðja og jafnframt efsta þrepið. Efsta þrepið okkar án lífeyrissjóðsiðgjalda er 46% og hafa þeir sem eru með 704.367 krónur í mánaðarlaun eða meira, fallið undir það þrep. Í Svíþjóð er miðað við tæplega eina milljón króna fyrir efsta þrep og í Bretlandi er þetta viðmið tvær og hálf milljón króna í mánaðarlaun. Hér á Íslandi er eitt lægsta tekjuviðmið á efsta skatt- þrepið í Evrópu sem þýðir í raun að við skilgreinum háar tekjur sem miklu lægri upphæð en önnur lönd. Samkeppnin um fjölskyldurnar Þessi ósanngjarna skattheimta bitnar sérstaklega illa á millistéttinni sem greiðir mun hærri skatta en gengur og gerist í löndunum í kringum okkur eins og dæmið með vin minn sýnir svo skýrt. Núverandi ríkisstjórn hefur gert 29 breytingar á tekjuskattskerfinu einu síðan hún tók við en í heild eru skattabreytingar á þessu tímabili vel yfir hundrað talsins. Breytingar sem því miður hafa ekki verið í þágu fjöl- skyldna og fyrirtækja í landinu. Við erum í harðri samkeppni við önnur lönd sem fyrsti búsetukostur fyrir fjölskyldur og það er ekki sjálfgefið að íslenskar fjölskyldur velji að búa á Íslandi ef fórnarkostnaðurinn er jafnmikill og raun ber vitni. Við sem kærum okkur ekki um að sjá á eftir fleiri vinum flytjast af landi brott verðum að beita okkur fyrir réttlátara skattkerfi sem gerir fólki kleift að nýta tækifærin sem okkar góða land getur boðið upp á. Skattland ÞÓREY VILHJÁLMSDÓTTIR FRAMKVÆMDASTJÓRI BORGARSTJÓRNAR- FLOKKS SJÁLFSTÆÐIS- FLOKKSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.