Fréttablaðið - 06.02.2013, Blaðsíða 34
Netfang auglýsingadeildar
auglys ing ar@markadurinn.is
Veffang visir.is
Netfang
rit stjorn@markadurinn.is
Sími 512 5000 Fax 512 5301
Þórlindur Kjartansson, formaður
efnahags- og viðskiptanefndar
Sjálfstæðisfl okksins
Leifur B. Dagfi nnsson,
framleiðandi
hjá True North
Hin
hliðin
Eiginkona vinar míns fór í sérnám í
heilbrigðisgeiranum til Stokkhólms
fyrir tveimur árum og fluttist fjöl-
skyldan því búferlum þangað. Þessi
vinur minn hafði þann kost að geta
sinnt sínu starfi á Íslandi í fjarvinnu
og bað hann skattayfirvöld í Svíþjóð
um að meta hvort hagkvæmara væri
fyrir hann að greiða skatta þar í landi
en á Íslandi. Svarið var að svo væri
og þegar álagningarseðlar voru sendir
út fékk hann endurgreiðslu sem nam
rúmlega mánaðarlaunum hans fyrir
umrætt ár. Það þarf ekki að hafa um
það mörg orð hversu miklu munar
fyrir þessa litlu millistéttarfjölskyldu
að hafa einum mánaðarlaunum meira
til ráðstöfunar á ári hverju.
Hæstu tekjuskattarnir á Íslandi
Þetta er aðeins eitt af mörgum
sláandi dæmum um hið ósann-
gjarna tekjuskattskerfi Íslendinga sem
svo margir eru farnir að flýja. Það
kemur nefnilega í ljós að þegar hið
þrepaskipta tekjuskattskerfi á Íslandi
er borið saman við önnur lönd, og
lífeyrissjóðsiðgjöld eru tekin með,
er Ísland með hæstu tekjuskatta
í Evrópu. Efsta tekjuskattsþrepið
okkar verður 58% þegar lífeyrissjóðs-
iðgjöldin eru tekin með.
Ósanngjörn skilgreining
á hátekjum
En þetta er ekki það eina sem er
ósanngjarnt við tekjuskattskerfið.
Annað sem er ekki síður alvarlegt
og bitnar mjög illa á millistéttinni
er hversu lágt tekjuviðmið er fyrir
þriðja og jafnframt efsta þrepið. Efsta
þrepið okkar án lífeyrissjóðsiðgjalda
er 46% og hafa þeir sem eru með
704.367 krónur í mánaðarlaun eða
meira, fallið undir það þrep. Í Svíþjóð
er miðað við tæplega eina milljón
króna fyrir efsta þrep og í Bretlandi
er þetta viðmið tvær og hálf milljón
króna í mánaðarlaun. Hér á Íslandi er
eitt lægsta tekjuviðmið á efsta skatt-
þrepið í Evrópu sem þýðir í raun að
við skilgreinum háar tekjur sem miklu
lægri upphæð en önnur lönd.
Samkeppnin um fjölskyldurnar
Þessi ósanngjarna skattheimta bitnar
sérstaklega illa á millistéttinni sem
greiðir mun hærri skatta en gengur
og gerist í löndunum í kringum okkur
eins og dæmið með vin minn sýnir
svo skýrt. Núverandi ríkisstjórn hefur
gert 29 breytingar á tekjuskattskerfinu
einu síðan hún tók við en í heild eru
skattabreytingar á þessu tímabili vel
yfir hundrað talsins. Breytingar sem
því miður hafa ekki verið í þágu fjöl-
skyldna og fyrirtækja í landinu. Við
erum í harðri samkeppni við önnur
lönd sem fyrsti búsetukostur fyrir
fjölskyldur og það er ekki sjálfgefið
að íslenskar fjölskyldur velji að búa
á Íslandi ef fórnarkostnaðurinn er
jafnmikill og raun ber vitni. Við sem
kærum okkur ekki um að sjá á eftir
fleiri vinum flytjast af landi brott
verðum að beita okkur fyrir réttlátara
skattkerfi sem gerir fólki kleift að nýta
tækifærin sem okkar góða land getur
boðið upp á.
Skattland
ÞÓREY VILHJÁLMSDÓTTIR
FRAMKVÆMDASTJÓRI
BORGARSTJÓRNAR-
FLOKKS SJÁLFSTÆÐIS-
FLOKKSINS