Fréttablaðið - 06.02.2013, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 06.02.2013, Blaðsíða 10
6. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10 F A S TU S _H _0 3. 01 .1 3 Komið í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 | Síðumúli 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 Við léttum þér lífið Fastus ehf. býður upp á heildarlausnir innan endurhæfingar, hjúkrunar og hjálpartækja. Í verslun Fastus að Síðumúla 16, 2. hæð er að finna gott úrval af heilbrigðisvörum. Sérhæft fagfólk á sviði endurhæfingar, hjúkrunar og hjálpartækja leggur metnað sinn í að finna lausnir og aðstoða við val á vörum fyrir einstaklinga og stofnanir. Komdu og skoðaðu úrvalið - við tökum vel á móti þér og finnum réttu lausnina fyrir þig. WWW.FASTUS.IS Handföng Gönguvagnar Griptangir Stólar með salernissetu MALÍ, AP „Þessi handrit eru sjálfs- mynd okkar,“ segir Abdoulaye Cisse, umsjónarmaður bóka- safnsins í Timbuktu sem herská- ir íslam istar kveiktu í 23. janúar. „Fólk heldur að saga okkar sé aðeins munnleg, ekki rituð. Það eru þessi handrit sem sanna að við áttum okkur ritaða sögu.“ Íslamistar höfðu ráðið ríkj- um í borginni í tíu mánuði þegar franski herinn mætti til leiks og hrakti þá burt. Áður en þeir flúðu kveiktu þeir í bókasafninu en vissu ekki að einungis hluti hand- ritanna var á staðnum. Meðan þeir stjórnuðu borg- inni framfylgdu þeir af hörku strangri bókstafstúlkun á ísl- ömskum lögum, svipað því sem talibanar höfðu gert í Afgan- istan rúmum áratug fyrr. Þeir hreinsuðu burt öll ummerki um það sem þeir töldu vera hjáguða- dýrkun eða hégóma, lögðu graf- hýsi helgra manna í rúst, lokuðu hárgreiðslustofum og bönnuðu konum að mála sig í framan. Þá bönnuðu þeir alla tónlist, þótt Malí sé þekkt fyrir fjölskrúðuga tónlistarhefð. Þegar þeir kveiktu í bóka- safninu höfðu Cisse og nokkrir vitorðsmenn hans forðað megn- inu af handritunum í öruggt skjól. Fáir vissu hins vegar af þessu og meira að segja starfsfólk bóka- safnsins brast í grát þegar eyði- leggingin blasti við. Það var aldraður maður, Abba Alhadi, sem átti stærstan þátt í að koma handritunum undan. Hann var húsvörður í gamla bókasafn- inu, sem áður hýsti handritin. Íslam istarnir stóðu í þeirri trú að nýbúið væri að flytja allan bóka- kostinn yfir í nýja bókasafnið, sem þeir kveiktu svo í. Þangað voru hins vegar aðeins komin um tvö þúsund handrit af alls 30 þúsund, sem voru í gamla safninu. Alhadi hafði undanfarna mánuði troðið dýrmætum handritum ofan í tóma hveiti- eða hrísgrjónapoka og laumast með þá að næturlagi á handvagni yfir í annan bæjar- hluta þar sem hann kom þeim í hendur bílstjóra á flutningabílum eða vélhjólamanna. Þeir óku síðan með handritin yfir að árbökkum Nígerfljóts og þaðan voru þau flutt niður ána á litlum bátskænum til bæjarins Mopti, sem enn var í höndum stjórnarhersins. Loks voru þau flutt áfram til höfuð- borgarinnar Bamako, þar sem þau voru vandlega geymd á öruggum stað á meðan nýja safnið brann. gudsteinn@frettabladid.is Handritum laumað burt í skjóli nætur Aldraður bókasafnsvörður í Timbuktu hafði komið stærstum hluta dýrmætra fornrita í öruggt skjól þegar íslamistar kveiktu í bókasafni borgarinnar fyrir hálfum mánuði. Fáir vissu af þessu, ekki einu sinni flest starfsfólk safnsins. DÝRMÆTT HANDRIT Bókasafnsvörðurinn Abdoulaye Cisse vissi að flest handritin voru komin í öruggar hendur. NORDICPHOTOS/AFP VINNUMARKAÐUR VR hefur þróað svokallaða Jafnlaunavottun, sem ætluð er fyrirtækjum og stofnun- um, þar sem launagreiðendum gefst tækifæri til að sýna svart á hvítu að launastefna þeirra og mannauðsstjórnun mismuni ekki körlum og konum. VR hefur unnið að þróun Jafn- launavottunarinnar í tæp tvö ár og byggir vottunin á nýjum jafn- launastaðli sem Staðlaráð Íslands gaf út á síðasta ári. Forsendur þess að fyrirtæki eða stofnanir innleiði staðalinn eru meðal ann- ars að fyrir liggi mótuð launa- stefna, að launaviðmið hafi verið ákveðin og að störf séu flokk- uð samkvæmt kerfi Íslenskrar starfagreiningar, ÍSTARF 95. Samkvæmt niðurstöðum launa- könnunar 2012 hafa konur í VR að meðaltali 14,9% lægri laun en karlar og þegar tekið hefur verið tillit til allra áhrifaþátta á launin er óútskýrður launamunur 9,4%. „Þetta er óásættanlegt að okkar mati og hvorki félagsmenn VR né aðrir á vinnumarkaði geta beðið lengur eftir því að allir sitji við sama borð. Þessa baráttu verður að heyja bæði á vettvangi stéttarfélaganna og innan veggja fyrirtækjanna. Þess vegna hleyp- ir félagið nú af stokkunum Jafn- launavottun VR,“ segir Stefán Einar Stefánsson, formaður VR. - shá Ný leið til að uppræta kynbundinn launamun: VR kynnir nýtt vopn í jafnréttisbaráttunni JAFNLAUNAVOTTUN KYNNT VR hefur sagt launamun kynjanna stríð á hendur með nýrri aðferðafræði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.