Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.01.2011, Side 2

Fréttatíminn - 07.01.2011, Side 2
H eilsuveitingastaðurinn Happ verður á næstunni opnaður í Lúxemborg. Rekstrarstjórar staðarins verða þær Anna Lísa Sigurjónsdóttir, eiginkona Hreið- ars Más Sigurðssonar, fyrrum forstjóra Kaup- þings, og Kristjana Steingrímsdóttir, kona Sigþórs Júlíussonar, fyrrum starfsmanns Landsbankans í Lúxemborg og knattspyrnu- manns úr KR. „Við konurnar rekum þetta – ekki þeir,“ segir Unnur Guðrún Pálsdóttir, kölluð Lukka, annar tveggja eigenda. Það seg- ir hún að sé á hreinu og heiðurinn sé þeirra. Þetta er ekki eini veitingastaðurinn sem opnaður verður undir merkjum Happs á næst- unni því eigendunum, þeim Lukku og Þórdísi Sigurðardóttur, hefur einnig verið úthlutað plássi í nýjum húsum á brunarústum Austur- strætis og stefna á að opna hráfæðisveitinga- stað sem einnig verður opinn á kvöldin. „Út- rás til Lúxemborgar og innrás í miðborgina. Það eru verkefni sem við erum mjög stoltar af. Við fengum borgina til að leigja okkur stokka- húsið, sem byggt hefur verið upp eftir brun- ann. Það verður opnað í sumar,“ segir Lukka. „Þar verður alveg nýr matseðill á kvöldin. Við förum meira út í hráfæðið og bjóðum upp á heilsumat, eins og áður.“ Lukka segir að ástæða þess að þær opni nú í Lúxemborg, við Rue Henri Limpertsberg, sé sú að þar þekki þær vel til. Hún hafi til að mynda verið þar au-pair á sumrin, tengd flug- heiminum. Þær Kristjana og Anna Lísa séu einnig vel að sér í hráfæði. Kristjana vinni við að útbúa hráfæðisrétti í Lúxemborg og Anna Lísa hafi verið fastagestur hjá Lukku áður, sem leiddi til samstarfs þeirra Þórdísar. „Í Lúxemborg eru bæði frönsk og þýsk áhrif og þar, svipað og í hinum löndunum, er vakning fyrir heilsufæði þótt þeir virðist skemmra á veg komnir en sjá má í stórborg- um Þýskalands.“ Staðurinn verður hádegis- verðarstaður. „Í Lúxemborg er innbyggt í samfélagið að fólk fer út að borða í hádeginu. Staðurinn verður því aðeins opinn til þrjú á daginn. Verði hins vegar mikil traffík gæt- um við endurskoðað afgreiðslutímann,“ segir hún. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is Útrás til Lúxem- borgar og innrás í miðborg- ina. Það er verkefni sem við erum mjög stoltar af.  viðskipti Íslenskur Heilsuveitingastaður Í út- og innrás Kaupþingsbankastjórafrú stýrir Happi í Lúxemborg Veitingastaðurinn Happ hefur slegið í gegn, sérstaklega hjá kvenþjóðinni. „Þegar við opnuðum staðinn voru hlutföllin 95% konur 5% karlar, en það hefur breyst og um 20% gestanna eru nú karlmenn,“ segir annar eigandinn, Unnur Guðrún Pálsdóttir. „Karlarnir hafa uppgötvað að hjá okkur eru allar þessar fallegu konur og maturinn góður. Það er ekki meinlætalíf að borða hollan mat.“ Þá hefur hugmyndin að bjóða fólki að borða allan daginn mat af veitingastaðnum undið upp á sig. Fólk getur nefnilega pantað matar- pakka, sótt og fengið sent heim, og tryggt sér hollustu allan daginn. Borða mat af veitingastað allan daginn Eigendur veitingastaðarins Happs stefna á að opna nýja staði bæði í Lúxemborg og endurbyggðu húsunum í Austurstræti. Anna Lísa Sigurjónsdóttir, eiginkona Hreið- ars Más Sigurðssonar, og Kristjana Steingrímsdóttir ætla að reka staðinn ytra en eigendurnir eru Unnur Guðrún Pálsdóttir og Þórdís Sigurðardóttir, mágkona Önnu. Vildu lána dæmdum Rússa 270 milljarða Fréttastofa RÚV greindi frá því á mánudag að lánanefnd Kaupþings hefði samþykkt á fundi sínum í London 24. september 2008 að lána rússneska milljarðamæringnum Alisher Usmanov, dæmdum gæpon frá Úsbekistan, 270 milljarða króna til að kaupa hlutabréf í finnska tryggingafélaginu Sampo, þar sem Exista, stærsti hluthafi Kaupþings, var einnig stærsti hluthafinn. Ekki virðist þó hafa verið gengið frá láninu eða greiðsla gengið í gegn til Usmanovs. Exista seldi bréf sín í Sampo á brunaút- sölu tveimur vikum síðar. Þetta gerðist degi fyrir stjórnarfundinn fræga þar sem ábyrgðir starfsmanna á lánum fyrir hlutabréfum í bankanum voru felldar niður. -óhþ Munar 100 milljörðum Líkur hafa verið leiddar að því að hugmyndin hafi verið að Usmanov keypti hlut Existu í Sampo með lánsfé frá Kaupþingi. Ef það er rétt hefði Usmanov borgað 270 milljarða fyrir rétt tæplega 20 prósentna hlut í finnska tryggingarisanum. Usmanov fékk hins vegar aldrei peningana og Exista seldi hlutinn á brunaútsölu tveimur vikum seinna fyrir upphæð sem var hundrað milljörðum lægri en sú sem Usmanov átti að fá að láni. -óhþ Stakk kærastann með hnífi um jólin Mál konu sem stakk kærasta sinn með hnífi í öxl um jólin er til rannsóknar hjá lögreglu höfuðborgar- svæðisins. Málsatvik eru óljós og framburður misvísandi en málið er ekki rannsakað sem morð- tilraun, segir Friðrik Smári Björgvinsson yfirlög- regluþjónn. Hann segir það í flokki heimilisofbeldis, stungan hafi ekki verið djúp og óljóst hvenær rannsókn þess ljúki. Milli jóla og nýárs greindi Fréttablaðið frá því að parið væri á þrítugsaldri og að það hefði neytt áfengis og fíkniefna. -gag Kyrrsett hjá Lárusi fyrir 70 milljónir Slitastjórn Glitnis hefur fengið samþykkta sjötíu milljóna króna kyrrsetningarbeiðni á einbýlis- hús Lárusar Welding í Blöndu- hlíð. Ástæða kyrrsetningarinnar er mál slitastjórnarinnar gegn Lárusi, Jóni Ásgeiri Jóhann- essyni, Pálma Haraldssyni og þremur starfsmönnum Glitnis þar sem slitastjórnin fer fram á sex milljarða króna bætur. Áður hefur slitastjórnin kyrrsett eign- ir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar en Pálmi Haraldsson greiddi hálfan milljarð í tryggingu til að komast hjá kyrrsetningu. -óhþ Hreiðar Már Sigurðsson og fjölskylda búa í Lúxemborg. Unnur Guðrún Pálsdóttir, Lukka, á heilsuveitinga- staðnum sínum Happi, sem hefur gert mikla lukku. Ljósmynd/Hari F rét tastofa RÚ V greindi frá því í gær að lánanefnd Landsbankans, sem skipuð var þeim Sigurjóni Þ. Árnasyni, Elínu Sigfúsdóttur og Halldóri K. Lárussyni, hefði tekið ákvörðun um 117 milljarða króna lánveitingar 8. október 2008, daginn eftir að Lands- bankinn var tekinn yfir af Fjármála- eftirlitinu. Eftir því sem fram kemur á RÚV runnu 70 milljarðar til félaga tengdra aðaleigendum bankans, fegðunum Björgólfi Guðmundssyni og Björgólfi Thor Björgólfssyni. Ekki er vitað hversu mikið af upp- hæðinni allri var í raun úthlutað eða hvort búið var að ráðstafa hluta lán- anna áður en fundurinn var haldin. Gunnar Andersen, forstjóri Fjár- málaeftirlitsins, sagðist í samtali við Fréttatímann ekki geta tjáð sig um hvort þessi gjörningur lánanefnd- arinnar, að ráðstafa slíkum upp- hæðum eftir að eftirlitið hafði tekið bankann yfir, væri löglegur eður ei. „Við skoðum allt sem við kemur bönkunum með rannsóknarnálar- augum. Ég get ekki tjáð mig um ein- stök atriði í því,“ segir Gunnar. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is  landsbankinn lánamál 70 milljarðar lánaðir til Björgólfs- feðga eftir að bankinn féll Fréttastofa RÚV hefur undir höndum fundargerð lánanefndar bankans frá 8. október 2008. Björgólfur Thor Björgólfsson og faðir hans fengu 70 milljarða lánafyrir- greiðslu frá bankanum eftir að hann var tekinn yfir af Fjármálaeftirlitinu. 2 fréttir Helgin 7.-9. janúar 2011

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.