Fréttatíminn - 07.01.2011, Blaðsíða 8
Er að verða ljóst
hvern hug almenn-
ingur ber til hug-
mynda um að girða
höfuðborgarsvæðið
af með tollmúr.
Blaðamannaverðlaun
Almennur skilafrestur á tilnefningum (ábendingum) vegna Blaðamanna
verðlauna ársins 2010 er til FÖSTUDAGSINS 21. JANÚAR 2011 KL 16:00.
Eins og áður eru verðlaunin eru veitt í þremur flokkum en þeir eru þessir:
. Besta umfjöllun ársins 2010
. Rannsóknarblaðamennska ársins 2010
. Blaðamannaverðlaun ársins 2010
Almenningur getur komið með tilnefningar með því að fara inn á vef Blaða
mannafélagsins www.press.is á þar til gert tilnefningarsvæði. Tilgreina þarf
nafn blaðamanns eða blaðamanna, miðil, hvað tilnefnt er fyrir, hvenær það
birtist og rök fyrir tilnefningunni.
Einnig er hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna á skrifstofu
Blaðamannafélags Íslands í Síðumúla 23, 108 Reykjavík, ásamt gögnum
með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Dómnefnd mun síðan fara yfir
tilnefningarnar og tilkynna um verðlaunahafa 26. febrúar nk.
Sálfræðistofa Björgvins Ingimarssonar
Borðað í árvekni
Námskeið sem leggur drög að breyttum lífsstíl við neyslu
matar. Farið verður yfir hvernig njóta má matar til fulls þótt
skammtar séu minnkaðir. Tekist verður á við sjálfvirka
matarneyslu og innbyggða ,,skyldu“ til að klára af disknum.
Námskeiðið snýst ekki aðallega um að grenna sig en
rannsóknir hafa þó sýnt fram á þyngdarlækkun til lengri
tíma hjá þeim sem tekist hefur að viðhalda árvekni við
matarborðið.
Laugavegi 178 - 105 Reykjavík - björgvin@salfrædingur
Námskeiðið stendur í fjögur skipti
frá 15. janúar til 5. febrúar.
Nánari upplýsingar í síma 571 2681
eða á www.salfraedingur.is
FÍB UndirskriFtasöFnUn á veFnUm
Þúsundir mótmæla vegatollum
Þúsundir manna mótmæla vegatollum
á vegi umhverfis höfuðborgarsvæðið.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB,
hýsir á vef sínum, fib.is, undirskrifta-
söfnun gegn veggjaldi á þessum braut-
um, vegatollmúr eins og FÍB kallar það.
Þegar á öðrum degi höfðu um tíu þús-
und manns mótmælt veggjaldinu á vef
félagsins og síðdegis í gær, fimmtudag,
voru mómælendur orðnir 35 þúsund.
„Það er því að verða ljóst,“ segir Stef-
án Ásgrímsson hjá FÍB, „hvern hug al-
menningur ber til þeirrar fyrirætlunar
stjórnvalda að girða höfuðborgarsvæð-
ið af með tollmúr og leggja vegatolla á
alla umferð um þjóðvegina inn á og út af
svæðinu þegar endurbótum á þessum
vegum verður lokið eftir fá ár.
Stjórnvöld hafa valið úr umferðar-
þyngstu kaflana af samhangandi og
samstæðu þjóðvegakerfi Íslands til að
gera sérstaklega gjaldskylda í ofaná-
lag við gríðarháa skatta sem fyrir eru
á eldsneyti, bifreiðar og rekstur þeirra.
Þetta er gjörbreyting á grundvallar-
hugmyndinni um þjóðvegi í þágu allra
byggða og allra landsmanna.“
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
m álin eru ekki útrædd, um-ræðum er ekki lokið. Staðan er status quo [óbreytt], segir
Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna,
spurður um margra klukkustunda þing-
flokksfund á miðvikudag sem sprott-
inn var meðal annars af hjásetu hans,
Lilju Mósesdóttur og Ásmundar Einars
Daðasonar þegar fjárlög fjármálaráðherra
voru samþykkt. Lilja hafði lýst því yfir að
hún gæti yfirgefið þingflokkinn en hefur
nú lýst því yfir að það verði ekki. Ágrein-
ingur innan flokksins nær til fleiri mála,
eins og ESB-umsóknarinnar og efnahags-
mála.
„Við viljum líka, eftir sem áður, sjá
breyttar áherslur í efnahagsmálum,“ seg-
ir Atli. „Ég vil að komið verði í veg fyrir
frekari uppsagnir opinberra starfsmanna.
Sérstaklega þær uppsagnir sem óhjá-
kvæmilega leiða af fjárlagafrumvarpinu.“
Það sé ekki of seint og hægt að koma í
veg fyrir uppsagnirnar á fjáraukalögum.
ESB-umsókn á krossgötum
Spurður um orð Össurar Skarphéðinsson-
ar, sem sagði í frétt Morgunblaðsins að
deilur innan VG hefðu engin áhrif á störf
ríkisstjórnarinnar né umsókn Íslands um
aðild að Evrópusambandinu, svarar hann
því til að Össur sitji ekki þingflokksfundi
Vinstri grænna heldur sé „túlkandi úti í
bæ“ sem hver annar. Hann taki því um-
mælum hans með þeim fyrirvara.
„ESB-umsóknin er á ákveðnum kross-
götum núna vegna vinnu rýnihópa og það
er seinni rýning í landbúnaðinn núna í
seinni hluta janúar og í málefni sjávar-
útvegs í febrúar. Þar þurfum við Íslend-
ingar að svara grundvallar- og pólitískum
spurningum um hvenær og hvernig við
ætlum að laga regluverk okkar að þeirra.
Við eigum eftir að klára það mál og fund-
um um það á mánudaginn; fáum væntan-
lega sérfræðinga á okkar fund til að ræða
það,“ segir Atli.
PólitÍk tekið á ágreiningi innan þingFlokks vinstri grænna
Af Facebook-síðu Lilju Mósesdóttur.
Fyrirvari við stuðninginn
Með óleyst mál í pokahorninu sagði Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður Vinstri
grænna, í Fréttablaðinu að ríkisstjórnin
hefði stuðning allra þingmanna sinna.
Hann segir ekkert kjaftæði í gangi og
þessi eins dags fundur hafi skilað því að
þingflokkurinn sé kominn vel á veg með
að leysa ágreininginn sem uppi hafi verið.
Atli segir að þau þrjú, hann, Lilja og
Ásmundur, hafi alltaf sagt að þau myndu
aldrei styðja vantraust á ríkisstjórnina:
„Ergo, þá hlýtur maður að styðja hana.“
Hann hafi þó aldrei stutt ESB-umsóknina
og hafi frelsi til að leggjast gegn henni
með þeim hætti sem hann kjósi. „Þetta
er skýrt í samstarfsyfirlýsingu flokkanna
en við eigum eftir að útkljá málin.“ Það
eigi því eftir að koma í ljós hvort hann láti
steyta á þessu máli í samstarfi flokkanna.
„Fyrst þurfum við betri upplýsingar og ég
hef þennan fyrirvara um stuðning.“
Þingflokksfundum VG vegna þessarar
krísu verður fram haldið á mánudag.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Lilja Mósesdóttir er
ekki á leið út úr þing-
flokki Vinstri grænna
eftir fund flokksins þar
sem ágreiningurinn
var ræddur. Hún hefur
gagnrýnt harðlega
Steingrím J., foringja
flokksins, og hann
hefur sagt hana þurfa
að íhuga stöðu sína
innan flokksins.
Ljósmynd/Hari
Atli Gíslason
Styðja ríkisstjórnina
en ekki öll mál hennar
Atli Gíslason styður ekki aðildarviðræðurnar við ESB og setur þann fyrirvara við stuðning sinn við
ríkisstjórnina. Hann segir málin ekki útrædd eftir þingflokksfundinn á miðvikudag. Hann vill sjá
breytta efnahagsstefnu sem laga megi með fjáraukalögum. Nýr þingflokksfundur vegna ágreinings
innan flokksins verður á mánudag.
8 fréttir Helgin 7.-9. janúar 2011