Fréttatíminn - 07.01.2011, Síða 34
34 viðhorf Helgin 7.-9. janúar 2011
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Framkvæmdastjóri: Teitur
Jónasson teitur@frettatiminn.is Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Ritstjórnarfulltrúi: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is. Auglýsinga-
stjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Það er því ekki skrítið að þessi stjórn slagi um eins og
hún sé helsærð. Það er bara um það bil tvennt í stöðunni;
að slá hana af eða finna lækningu sem kemur henni til
bjargar.
Fært til bókar
Aðeins ein mynd
Landsdómur mun brátt koma saman í
fyrsta sinn vegna ákæru á hendur Geir
H. Haarde, fyrrverandi forsætisráð-
herra. Dómurinn hefur ekki verið kvadd-
ur til starfa áður en honum ber að fjalla
um meint brot ráðherra í starfi. Þrír
aðrir ráðherrar í ríkisstjórn Geirs, sem
sat frá 2007-2009, sluppu við ákæru,
þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Árni
Mathiesen og Björgvin G. Sigurðs-
son. Afgreiðsla Alþingis varðandi þessa
fjóra fyrrverandi ráðherra var umdeild.
Margir vilja því kynna sér landsdóm og
allt sem honum við kemur. Fyrsti val-
kostur í upplýsingaleit er netið og nánast
sjálfgefið að menn kanni hvaða fróðleik
er að finna á landsdomur.is. Því er fljót-
svarað. Þar blasir við ein mynd og ekkert
annað – af gapastokki.
Strákarnir okkar?
Fáir eru dáðari hér á landi en karla-
landsliðið í handbolta, strákarnir okkar
eins og þeir eru kallaðir, að minnsta
kosti þegar vel gengur. Og það hefur svo
sannarlega gengið vel hjá strákunum
okkar. Þeir komu heim með silfur frá
Ólympíuleikunum í Peking árið 2008
og bættu bronsi í safnið á síðasta
Evrópumeistaramóti. Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, sæmdi þá
verðskuldað fálkaorðu þegar þeir fluttu
silfrið heim og Dorrit forsetafrú fékk
ekki hamið sig þegar best gekk og gerði
„stórasta land í heimi“ að ódauðlegum
frasa. Nú halda strákarnir okkar enn af
stað. Fram undan er heimsmeistara-
mótið í handknattleik sem hefst í næstu
viku í Svíþjóð. Sjónvarpið hefur fylgst vel
með leikjum liðsins og sýnt beint. Þjóðin
hefur staðið á öndinni þegar mest hefur
á gengið. 365 miðlar skutu Sjónvarpinu
hins vegar ref fyrir rass og keyptu sýn-
ingarréttinn á leikjum liðsins á HM í Sví-
þjóð. Það þýðir að þrír af fimm leikjum
landsliðsins í riðlakeppni mótsins verða í
lokaðri dagskrá. Undirskriftalistar ganga
nú á netinu til að mótmæla þessu. Menn
spyrja sig því þessa dagana hvort hinir
dáðu drengir séu strákarnir okkar eða
aðeins strákarnir hans Jóns Ásgeirs.
Skammt öfganna á milli
Íslendingar voru á árum áður hamingju-
samasta þjóð í heimi. Það kom fram í
hverri skoðanakönnuninni af annarri.
Þetta vakti athygli víða enda undruð-
ust menn hvernig fólk á hjara veraldar
gat verið svo glatt í sinni. Ísland er á
mörkum hins byggilega heims, svo
norðarlega að skammdegi er ríkjandi
langtímum saman. Þetta er hins vegar
liðin tíð, í bili að minnsta kosti. Bleik er
brugðið, Icesave er yfir oss og hrunið
með öllum sínum afleiðingum. Íslend-
ingar eru nú meðal svartsýnustu þjóða,
raunar eru Frakkar einir þjóða svart-
sýnni en Frónverjar. Þetta kemur fram
í skoðanakönnun sem BVA-Gallup gerði
um efnahagshorfur í heiminum.
Dýralíf stjórnmálanna
Svavar Gestsson, fyrrverandi ráð- og
sendiherra, tuktar sitt lið í grein í Frétta-
blaðinu í fyrradag. Þar fjallar hann um
ríkisstjórnina, hvort hún sé veik eður ei.
Niðurstaða Svavars er að margar ríkis-
stjórnir hafi staðið knappar en sú sem
nú fer með völd. Hún hafi komið öllum
sínum málum í gegn nema hvað forseti
Íslands hafi breytt farvegi Icesave-máls-
ins. Ríkisstjórnin sé því sterk. Það eina
sem getur fellt stjórnina er stjórnarliðið
sjálft, segir ráðherrann fyrrverandi.
Eflaust er engin tilviljun að greinin birtist
í fyrradag, sama dag og þingflokkur VG
hittist á löngu boðuðum fundi. Í þeim
hópi eru þeir þrír þingmenn sem sátu
hjá við afgreiðslu fjárlaganna. Í grein
Svavars segir: „Enginn stjórnarliði vill þó
enn láta það um sig spyrjast að hann/
hún hafi stytt líf þessarar ríkisstjórnar.
Sá stjórnarliði sem gefst upp við verk-
efnin hefur enn ekki gefið sig fram.“ Um
þetta má segja: Taki þeir til sín sem eiga.
Frægt varð þegar Jóhanna Sigurðar-
dóttir, forsætisráðherra og formaður
Samfylkingarinnar, sagði um órólegu
deildina í samstarfsflokknum, VG, að það
væri eins og að smala köttum að eiga við
þann hóp. Svavar víkur raunar að dýrum
í grein sinni og segir: „Það er raunar ekki
endilega til bóta að ráðherrarnir haldi
áfram að líkja þingmönnum hins stjórn-
arflokksins við húsdýr.“ Þar fær Össur
Skarphéðinsson utanríkisráðherra sinn
skammt en hann fylgdi í fótspor flokks-
formannsins og líkti þingmönnunum
Lilju Mósesdóttur og Ásmundi Daða
Einarssyni við hryssu og folald.
Maður þarf ekki að fylgjast sérstaklega vel
með stjórnmálunum til að átta sig á því að
núverandi ríkisstjórn lafir nánast eingöngu
saman af því að annað stjórnarmynstur er
ekki í sjónmáli.
Sé miðað við þingstyrk, andrúmsloftið
innan og milli flokka, er ekki flókið að
komast að þeirri niðurstöðu að tæpast yrði
friðsælla á stjórnarheimilinu þótt þar væru
aðrir í forsvari.
Í þessu felst þó alls engin huggun. Lát
laus leiðindin í boði ríkisstjórnar Jóhönnu
Sigurðardóttur smita neikvæðninni út frá
sér. Stöðugt stapp og stríðs
ástandið milli ríksstjórnar
flokkanna stendur beinlínis
í vegi fyrir því að sæmilega
yfirvegað andrúmsloft
komist á í samfélaginu.
Veitir þó ekki af andspænis
snúnum úrlausnarefnum
sem blasa við.
Átökin í samstarfi VG
og Samfylkingar snúast í
raun fyrst og fremst um eitt afmarkað mál:
umsókn Íslands um inngöngu í ESB. And
staðan gegn umsókninni stendur eins og
heykvísl á kafi í baki ríkisstjórnarinnar. Á
skaftinu hanga svo bóndsonurinn úr Döl
unum og landbúnaðarráðherrann og rugga
því eins og þeir best geta með ötulli hjálp fé
laga sinna í VG: Atla Gíslasonar, Lilju Rafn
eyjar Magnúsdóttur og Þuríðar Backman.
Það er því ekki skrítið að þessi stjórn
slagi um eins og hún sé helsærð. Það er
bara um það bil tvennt í stöðunni; að slá
hana af eða finna lækningu sem kemur
henni til bjargar.
Sjálfstæðiskonan Unnur Brá Konráðs
dóttir hefur ítrekað boðið fram leið sem er
þeim kostum gædd að hún getur virkað á
báða vegu.
Unnur vill að ESBumsókn Íslands verði
dregin til baka. Hún lagði fram tillögu þess
efnis á vorþinginu í fyrra í samvinnu við
þingmenn úr öllum flokkum nema Sam
fylkingu. Málið kom of seint fram til að vera
tekið á dagskrá í það skiptið en nú rétt fyrir
áramót tilkynnti Unnur að það yrði meðal
hennar fyrstu verka við upphaf þings 17.
janúar að leggja fram endurbætta tillögu
um afturköllun ESBumsóknarinnar.
Það væri gustukaverk af Unni að standa
við þessi orð sín. Þegar ESBumsóknin
var samþykkt með 33 atkvæðum 16. júlí
2009, þurfti ríkisstjórnin liðstyrk fimm
stjórnarandstöðuþingmanna til að koma
málinu í höfn. Stjórnarandstaðan hefur
því í hendi sér að samþykkja tillögu Unnar
með tilstyrk þeirra fimm þingmanna VG
sem greiddu atkvæði gegn umsókninni.
Ef þetta verður raunin þarf ekki að efast
um að stjórnina hefur endanlega þrotið
örendið. Í framhaldinu væri réttast að boða
til kosninga.
Ef tillaga Unnar verður hins vegar felld
og ESBumsóknin látin standa, hljóta Ás
mundur Einar og félagar að sleppa takinu á
heykvíslinni. Þá er ekkert annað eftir en að
treysta þjóðinni til að ráða sjálfri örlögum
sínum í þessum efnum þegar kosið verður á
endanum um aðildarsamning við ESB.
Afturköllun ESB-umsóknar
Gustukaverk Unnar Brár
Jón Kaldal
kaldal@frettatiminn.is
M
Þ etta er nú í annað sinn sem Jógakennarafélag Íslands stendur fyrir hinum frábæra jógadegi
en hann verður haldinn laugardaginn
8. janúar.
Þennan dag býðst áhugasömum
á höfuðborgarsvæðinu, Selfossi og
í Reykjanesbæ að kynna sér jóga og
sækja jógatíma hjá reyndum kennur
um sér að kostnaðarlausu.
Nánari upplýsingar um þá jógakenn
ara, setur og stöðvar sem bjóða upp á
fría tíma má finna á heimasíðu félags
ins www.jogakennari.is
Þess ber að geta að stærstu líkams
ræktarstöðvarnar á höfuðborgarsvæð
inu, Hress, Sporthúsið og World Class,
bjóða einnig upp á fría jógatíma.
Hvað er jóga og af hverju að kynna
sér það?
Jóga er fyrir alla, karla og konur, börn sem og full
orðna. Markmið jóga er í megindráttum að sam
eina og tengja saman huga, líkama og sál og skapa
jafnvægi þar á milli. Jóga er því í senn ástundun
og ástand og er fyrir alla þá sem sækjast eftir að
byggja upp líkama sinn með styrkjandi og liðkandi
líkamsæfingum og/eða öðlast hugarró og innri
frið með öndunaræfingum, hugleiðslu og slökun.
Margar leiðir og aðferðir eru innan jóga og hver og
einn finnur þá leið og aðferð sem hentar. Sumir leita
eftir kraftmiklu flæði á meðan aðrir velja rólegri og
mýkri aðkomu.
Jóga er einstaklingsbundin iðkun,
enginn er eins og hver og einn iðkar
jóga út frá stöðu sinni líkamlega sem
og andlega hverju sinni. Í jóga er lögð
áhersla á að hver og einn sé meðvitað
ur um stöðu sína, hlusti vel á líkama
sinn og beini athygli sinni að andar
drættinum einum.
Ávinningur jógaiðkunar er marg
víslegur og einstaklingsbundinn.
Aukin orka, jafnvægi, styrkur og lið
leiki eru algeng dæmi en ástundun
getur einnig stuðlað að aukinni ein
beitingu, bættu andlegu og líkamlegu
jafnvægi, dregið úr streitu, spennu og
eirðarleysi og jafnvel stuðlað að betri
svefni. Þessu til viðbótar er ávallt
ávinningur að rækta sjálfan sig, jafnt
innan sem utan.
Af hverju að nýta tækifærið?
Marga langar að kynna sér jóga og sækja tíma en
gera það ekki. Ástæður þessa eru óteljandi og verða
ekki taldar upp hér en nú er tækifærið að slá til og
prufa. Nýtt ár gefur okkur ný tækifæri og ný verk
efni. Jógadagurinn er eitt slíkt tækifæri og er fram
lag kennara án endurgjalds.
Láttu þig ekki vanta! Það er frítt.
Hlökkum til að taka á móti þér 8. janúar.
Fyrir hönd stjórnar JKFÍ.
Jógadagurinn 8. janúar 2011
Jóga er fyrir alla
Birna Markúsdóttir,
ritari Jógakennarafélags Íslands