Fréttatíminn - 07.01.2011, Síða 38
Danskir úitgefendur eru þessa dagana að herða sig
í útgáfu hljóðbóka þótt þær hafi ekki sömu stöðu
og í löndum með lengri leiðum eins og Svíþjóð
eða Bandaríkjunum. Það nýjasta er að bjóða upp á
smásögur í síma og niðurhali fyrir skinbækur. Þá
hafa menn litið til þess að dreifa ljóðum á síma.
Stuttir textar hafa verið vinsælt efni í Asíulöndum,
Japan og Kóreu. Íslenskir útgefendur eru enn á
kassettustiginu og höfundar sem þeir munstra upp
á hlut í sinni útgerð hugsa í bókarformum þótt
gaman væri að sjá þessa samstarfsaðila prufa
eitthvað nýtt: Eiríkur Örn Norðdahl hefur sent frá
sér nýja ljóðarunu og hún er aðgengileg í öllum
símum af þriðju kynslóð farsíma. Það verður stopp
á fundum skilanefndanna og starfsmanna þeirra –
allir spretta upp til að lesa nýtt ljóð eftir Eirík – eða
örsögu eftir Kristínu Ómars. Detta dauðar lýs? -pbb
Stafrænar bókmenntir
Listatímarit Ljóð, prósabrot og tiLraunatexti
t ímarit um bókmenntir og listir koma enn út á Íslandi þótt miðlun sé að hliðrast inn á nýjar brautir
á vefmiðlum og smáskammtasýkin sem
kom til með aðlögun fríblaðaútlitsins að
hugsjónum íslenskra blaðaútgefenda,
fyrst fyrir atbeina Sveins Eyjólfssonar
sem endaði með krassi Fréttablaðsins
fyrsta, og síðar með aðkomu Gunnars
Smára Egilssonar og útlits- og eiginda-
hugmyndum hans að Fréttablaðinu
síðara. Snögglesturshugmyndin sem
upprunnin er úr fríblöðum og tengist
upphaflega lesvenjum á samgönguleið-
um stórborga hefur nú sett mark sitt á
öll íslensk dagblöð, bæði áskriftarblaðið
eina, sem gefið er út með vænum niður-
greiðslum auðugra útgerðarmanna, og
líka á Fréttablaðið sjálft. Blöð í stopulli
útgáfu halda sig á sama róli. Vilji ís-
lenskir lesendur komast í ítarlegri grein-
ar verða þeir að leita þær uppi á öðrum
vettvangi.
Aldin karlskáld
Tímaritin verða því í senn hinsta skjól
greina um bókmenntir og listir í lengra
formi. Þau eru líka eini vettvangurinn
fyrir frumbirtingu texta af ýmsu tagi,
ljóða, prósabrota og tilraunatexta. Tíma-
ritið Stína er eitt þeirra og fyrir jólin kom
út nýtt hefti af því. Primus motor í út-
gáfunni er Bragi Jósepsson sem, kom-
inn á eftirlaun hjá íslenska ríkinu, hóf
að nota gamalt skáldanafn sitt frá yngri
árum, Kormákur Bragason, í útgáfunni.
Þar sitja með honum á fleti ýmsir eldri
höfundar: Guðbergur Bergsson leggur
Stínu til efni, Thor og Matthías Johann-
essen eiga báðir efni í nýja heftinu og
þar birtist samtal Ingimars Erlends við
sjálfan sig, brot úr skáldsögu Jóhanns
Péturssonar, Gresjum guðdómsins, frá
1948, og brot úr nýrri skáldsögu Ragn-
ars Arnalds. Stína er þannig vettvangur
elstu starfandi karlskálda í landinu. Af
yngri mönnum sem eiga efni í ritinu má
nefna Eirík Örn Norðdahl, Þórdísi Gísla-
dóttur, Berglindi Ósk Bergsdóttur, Ævar
Örn Jósepsson og Harald Jónsson.
Stína birtir myndverk í litprentun, að
þessu sinni röð mynda af olíuverkum og
grafík eftir Stefán Boulter og ljósmynd-
ir eftir Nönnu B. Buchert. Þar er löng
og ítarleg greining Godds á mynd- og
hugmyndaheimi Bjarna Þórarinssonar.
Öðrum greinum verður best lýst sem
ádrepum. Af þeim er mest fjör í framlagi
Guðbergs Bergssonar: stuttri greiningu
hans á íslenskum bókmenntaheimi sem
er merkileg, eitraðri umfjöllun hans um
bókamessuna í Frankfurt, kynningu
hans á Hertu Müller og þýddri smásögu
hennar, og birtingu á örleiktextum eftir
Guðberg sem eru, trúi ég, fyrstu textar
hans fyrir svið síðan hann kom að leik-
gerð Viðars Eggertssonar á Sögum af
systrum.
Greining Guðbergs á
Frankfurtarmessu
Guðbergur er einn skarpasti greinir
íslenskra samfélagshátta þótt athuga-
semdum hans kjósi menn jafnan að
láta ósvarað. Þannig er greining hans
á Frankfurtarmessunni í blóra við sam-
stilltan áróður hans gamla útgefanda og
verkefnisstjóra, Halldórs Guðmundsson-
ar, og íslenskra rithöfunda. Raunar skýt-
ur greining Guðbergs skökku við upp-
troðslur hans þar ytra og verður gaman
að sjá hvort hann stillir sig um að koma
þar fram með verk sín fyrst Frankfurt er
svona ómerkileg eins og hann segir. Á
sama hátt er stuttur pistill Guðbergs, Til
lesenda, samannjörvuð greining á stöðu
bókmennta og samfélags okkar daga:
„Menn héldu að hægt væri að lifa í vel-
lystingum, án æðri hugsunar, og gerðu
engan greinarmun á hámenningu og létt-
meti. ... Rithöfundar tóku þátt í að létta
efni bóka sinna líkt og almenningur sitt
í hnignun þjóðlífsins. Allir á kafi í væð-
ingunni!“
Hann segir glæpasagnagerð sam-
tímans „bull sem geri lítið annað en að
leysa ástarsöguvelluna af hólmi“. Hún
sé „skrípi með stimpil heimsbókmennta“
og að við „blaðamannabjánar, fjölmiðla-
kjánar, gagnrýnendur og bókmennta-
fræðingar“ reynum að drepa ritlistina
með „blaðri í fjölmiðlum“.
Framlag Guðbergs eitt og sér ætti
að duga mönnum til kaupa á Stínu og
stendur raunar allt annað efni í heftinu í
skugga af hans brýna framlagi. Tímaritið
má fá í öllum skárri bókaverslunum en
það er ekki komið á bensínstöðvar svo
vitað sé.
38 bækur Helgin 7.-9. janúar 2011
bókardómur pompei robert Harris
Hann [Guð-
bergur] segir
glæpasagna-
gerð sam-
tímans „bull
sem geri lítið
annað en að
leysa ástar-
söguvelluna
af hólmi“.
Hún sé „skrípi
með stimpil
heimsbók-
mennta“ og
að við „blaða-
mannabjánar,
fjölmiðla-
kjánar, gagn-
rýnendur og
bókmennta-
fræðingar“
reynum að
drepa rit-
listina með
„blaðri í fjöl-
miðlum“.
Ævar Örn
sterkur
Ævar Örn Jósepsson
kemur járngrimmur
inn í 2. sætið á fyrsta
metsölulista ársins
með bók sína Önnur
líf. Skiptibókamark-
aðurinn í kjölfar jóla
reynist honum vel.
pompei
Robert Harris
Elín Guðmundsdóttir þýddi
320 bls. Ugla 2010
Bækur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
Bandaríski rithöfundurinn Michael Chabon hefur gefið út hluta af
stórri skáldsögu sem hann gafst upp á fyrir tíu árum, nú með athuga-
semdum og neðanmálsskýringum, á vegum tímaritsins McSweeney í
San Francisco sem Oddi prentaði hér
um árið. Sagan, Mysteries of Pitts-
burg, var unnin á fimm ára tímabili og
eftir að Chabon gafst upp á verkinu
settist hann niður og skrifaði á sex mánuðum The Wonder Boys sem
margir þekkja af samnefndri bíómynd. Fyrir þá sögu fékk hann Pulitzer,
frægð og peninga. Tímaritið birtir alls fjóra kafla úr sögunni og í at-
hugasemdum reynir höfundur að gera grein fyrir ætlun sinni, kveikjum
og hvað misfórst við smíði verksins. Taka þær upp nær helming textans í
McSweeney 36, sem kann að koma í skárri íslenskar bókaverslanir. -pbb
Yfirgefin skáldsaga
kemur út í brotum
Bókafélagið Ugla gaf út fyrir jól nokkur
þýdd rit. Eitt þeirra var spennusagan
Pompei eftir metsöluhöfundinn Robert
Harris. Sagan gerist á fjórum sólar-
hringum fyrir gosið mikla í Vesúvíusi
sem færði í kaf Pompei og Herkuleum.
Þar er fylgst með gerðum þriggja karla af
ólíku standi í aðdraganda gossins: ung-
um verkfræðingi og ekkjumanni frá Róm
sem kominn er að skipa sæti yfirverk-
fræðings yfir vatnsleiðslunni miklu sem
kennd var við Ágústínus, eignamanni og
leysingja sem ræður ríkjum í Pompei og
sagnaritaranum Plínusi sem er kominn
á efri ár. Sagan er skrifuð sem spennu-
saga af bestu gerð en inniber ríkulegar
mannlýsingar fólks af öllum stigum sam-
félags þessa tíma, miklar og vel fram-
reiddar lýsingar á borginni og lífsháttum
þar, atvinnuháttum og verklagi. Þannig
veitir hún hverjum áhugamanni um hið
forna stórveldi ríkulega ánægju á sama
tíma og sögusnið spennubókmennta
heldur áhuga virkum.
Sögulegar skáldsögur sem Pompei
verða seint taldar til merkilegra bók-
mennta en þær svala í senn lesanda sem
vill hreina afþreyingu og þeim sem for-
vitnir eru um hvernig fólk bar sig að á
þessum tíma: Hvernig var buru bjarg-
að ef jóðið sem hún bar í sér átti erfitt
með að koma úr móðurkviði? Hvað var
barnavændi títt á dögum Pompei? Hvern-
ig gerðust kaupin á eyrinni – þar voru
skuldsettar yfirtökur líka til. Pompei er
hörkuspennandi lestur og fróðlegt er að
lesa hvernig höfundurinn lagar söguna
að væntanlegri endurgerð sögunnar fyr-
ir myndmiðla sem eiga þegar von á slíkri
gerð sögunnar að fordæmi Rómarsögu
HBO. -pbb
Hörkuspennandi
og fróðleg
Stína ó Stína
Stína er tímarit
um bókmennt-
ir og listir.
Framlag Guð-
bergs Bergs-
sonar skyggir
þar á aðra
höfunda, sem
eru þó flestir í
þungavigtar-
flokki.