Fréttatíminn - 07.01.2011, Síða 54
54 tíska Helgin 7.-9. janúar 2011
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Í útvíðum á
Indlandi
Þegar þetta er skrifað er ég stödd á
niðurníddu netkaffi á Indlandi. Skrapp yfir
hátíðarnar í lítið frí, aðeins til að hvíla mig á
kuldanum og veruleikanum. Ég hafði í raun-
inni ekki kynnt mér mikið Indland áður en ég
lagði af stað en flest höfum við jú einhverja
vitneskju um landið. Það var margt sem fékk
mig til að hugsa. Áherslur í lífi Indverja eru
allt aðrar en þær sem ég þekki, hugsunarhátt-
ur þeirra öðruvísi, fátæktin og já, klæðaburð-
urinn. Tískan hér er svo ólík því sem ég þekki
og þetta fékk mig vissulega til að pæla í því
hversu mikil fjölbreytni ríkir í heiminum.
Ég tel það vera forréttindi sem ég fæ að upplifa
hér. Að fá að sjá aðeins út fyrir okkar litla sjón-
deildarhring og út fyrir vestræna menningu.
Þetta er eins og að fara í tímavél. Indverska
tískan er ómetanleg. Karlmenn keppast við
að ganga í heimsins þrengstu buxum sem eru
svo útvíðar að ummál þeirra stækkar fjórfalt
eftir því sem neðar dregur. Bæta síðan krókó-
díla-stígvélunum við, kátir með samsetningu
dagsins. Já, ég brosi við tilhugsunina.
Konurnar eru hins vegar aðeins hefðbundn-
ari og fjölbreytnin minni. Þrátt fyrir alla þá
miklu stéttaskiptingu sem ríkir á Indlandi er
lítill munur á klæðaburði indverskra kvenna
á þeim slóðum sem ég hef heimsótt. Svartar
búrkur eða skrautlegir saríar eru mest áber-
andi. Hvor búningurinn verður fyrir valinu
fer allt eftir trúarbrögðunum. Flestar eru
þær skreyttar frá toppi til táar með alls konar
keðjum, lokkum og hringum úr gulli eða
silfri. Betlarar jafnt sem hefðarfrúr. Lítill sem
enginn munur.
Í rauninni væri rangt af mér að segja að ég
hafi ferðast aftur í tímann. Þrátt fyrir að það
séu ansi mörg ár síðan við losuðum okkur við
útvíðu gallabuxurnar fáum við sífellt að heyra
að tískan gangi í hring. Ef til vill eru Indverjar
langt á undan okkur þegar kemur að tískunni.
Miðvikudagur:
Klútur: H&M
Jakki: Bershka
Bolur:Vero Moda
Buxur: Only
Föstudagur:
Axlaskraut með ekta
hrosshárum: Eigin
hönnun
Bolur: Sautján
Skór: Fókus
Buxur: Eigin hönnun
Mánudagur:
Skór: Diesel-búð á
Ítalíu.
Leggings: Topshop
Stuttbuxur: Zara
Bolur: Selected
Peysa: Vero Moda
Þriðjudagur:
Skór: H&M
Slá: Eigin hönnun
Leggings: Vero Moda 5
dagar
dress
Fimmtudagur:
Bolur: H&M
Pils: H&M
Klútur: Volcano
Skór: H&M
Algjör sporttýpa
Sóley Jóhannsdóttir er tvítug og hefur mikinn áhuga á íþróttum, tónlist og tísku. Hún
útskrifaðist af fatahönnunarbraut frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ síðastliðið vor og
stefnir á framhaldsnám erlendis í haust.
„Minn stíll er mjög blandaður. Ég er algjör sporttýpa. Elska að vera í þægilegum
íþróttafötum og líða vel. Svo er auðvitað líka gaman að geta dressað sig upp og verið fín.
Fatnaðurinn? Ég myndi segja að ég væri pínu rokkuð. Alltaf verið pínu dökk og klæðist
mikið svörtu. Er svona að reyna að breyta því og blanda litum með. Fötin kaupi ég mest
í Vero Moda, Zöru og eiginlega bara alls staðar. Held mig ekkert endilega við einhverja
eina búð. Kaupi það sem mér finnst flott. Svo reyni ég auðvitað að sauma sem mest á
mig. Ég breyti mikið fötum og fæ mikinn innblástur frá fimmta áratugnum, alls staðar í
kringum mig, og tónlist hefur mikil áhrif á mig. Reyni að skapa minn eigin stíl. Michael
Jackson er mín helsta fyrirmynd. Hann fór algjörlega sína eigin leið og skapaði sinn stíl.
Alveg eins og ég reyni að stefna sem mest að.“
Ljær hárinu silkiáferð
Djúpnæringu er gott að nota af og
til. Hún smýgur inn í kjarna hársins
og ef það er skaddað, lokar hún
því og styrkir það. Við eigum það
til að skemma hárið með til dæmis
hárlitun eða rafmagnstækjum á
borð við sléttujárn og blásara. Þá er
gott að nota næringuna til að vinna
gegn skemmdunum. Hún hjálpar til
við endurbyggingu á hárinu og ljær
því silkiáferð og glans.
Best er að nota djúpnæringuna rétt
eftir að sjampóið hefur verið skolað
úr. Þá er gott að bera næringuna í
allt hárið, frá rót til enda, og leyfa
henni að vera í hárinu í þrjár til fimm
mínútur.
Djúpnæring fæst í öllum
helstu snyrtivöruversl-
unum landsins sem
gerir okkur auðvelt fyrir
að nálgast vöruna. Leyfum
hárinu að glansa.
Þegar við hugsum um karl-
menn með andlitsfarða
koma Adam Lambert eða
Pete Wents fyrst upp í
hugann. Þeir eru þekktir
fyrir ýkta andlitsmálningu
og ganga fremstir í flokki
þeirra sem tjá sig listrænt
gegnum farðann. Nýlega
skapaði heimsfrægi förð-
unarfræðingurinn Natalie
Ramirez snyrtivörulínu
undir nafninu Enter Prono-
un sem er hugsuð fyrir
bæði karla og konur sem
vilja tjá sig á þennan hátt.
Hugmynd sína segir hún
byggjast helst á kynja- og
tjáningarfrelsi og hvetur
alla til að endurskoða þá
staðreynd að snyrtivörur
eru framleiddar annað-
hvort fyrir konur eða sam-
kynhneigða karlmenn.
Tjáning gegnum farðann