Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.01.2011, Blaðsíða 16

Fréttatíminn - 14.01.2011, Blaðsíða 16
M eð vökulum augum sigtar Gallerí Fold reglulega frá fölsuð málverk. Frá því árið 1997 hafa 50 til 100 fölsuð málverk sést í galleríinu og eigendur þeirra ekki áttað sig á því að þeir ættu falsanir. Þetta segir Tryggvi Páll Friðriksson, listmunasali og uppboðs- haldari. Nú í desember gerðist þó það að mynd sem sögð var eftir Nínu Tryggvadóttur fór á uppboð en var dregin úr sölu á síðustu stundu vegna þess að það kom ekki í ljós fyrr en þá að hún væri fölsuð. Tryggvi Páll segir að galleríið hafi litið myndina hornauga en látið blekkjast þar sem eigendasagan hafi verið traust- vekjandi og hún hafði verið hreinsuð og römmuð inn af forverði, þótt eftir á að hyggja hafi það líklega verið áður en málverkafölsun komst í hámæli. Hann harmar mistökin. „Það er skelfilegt að þurfa að taka mynd af uppboði. Þetta er í eina skiptið sem slíkt hefur komið fyrir. Við höfum verið mjög krítísk á þetta,“ segir Tryggvi Páll og bætir því við að allar myndir sem veki grunsemdir séu sendar í athugun og gegnumlýsingu. Hann lýsir því hvernig þau hjá galleríinu hafi fljótt frá árinu 1997 áttað sig á að málverk væru ekki í lagi. „Á tímabili var þetta þannig að manni fannst þessi verk vera að streyma inn [...]. Við lærðum mjög fljótt inn á þetta og sjáum nær strax hvort málverkin eru eftir viðkomandi listamann. Við vorum í nánu samstarfi við Ólaf Inga [Jónsson, forvörð hjá Listasafni Íslands]. Við sáum fljótlega að fölsuðu verkin voru sögð eftir látið fólk. Að lokum kom í ljós að 19 listamenn, 17 Íslendingar og 2 útlendir, höfðu orðið fyrir barðinu á þessu, en ekki var reynt að falsa myndir eftir þálifandi menn,“ segir hann. „Maður er alltaf með þetta í huga og þetta eru talin vera um 900 verk. [...] Við bentum strax á það að ef málið yrði ekki hreinsað strax upp myndu þessi verk halda áfram að koma inn í sölu næstu áratugina.“ Tryggvi Páll segir það kristaltært að nú sjáist ný- málaðar falsanir á markaðnum. Nauðsynlegt sé að yfirvöld grípi inn í og rannsaki málið. - gag Það er skelfilegt að þurfa að taka mynd af uppboði. Þetta er í eina skiptið sem slíkt hefur kom- ið fyrir.“ ÓÁNÆGÐIR 2,7% HVORKI NÉ 6,8% Samkvæmt nýrri þjónustukönnun eru meira en 90% viðskiptavina okkar ánægðir með þjónustuna. Komdu við í útibúum okkar eða hringdu og kannaðu hvers vegna viðskiptavinir okkar eru svona ánægðir. DÆMI UM UMMÆLI ÚR ÞJÓNUSTUKÖNNUNINNI „Fólkið er frábært og yndislegt.“ „Mæli með ykkur og veit að sumt af mínu fólki hefur komið til ykkar.“ „Æðisleg þjónusta.“ „MP er frábær banki. Takk fyrir mig.“ VIÐSKIPTAVINA ÁNÆGÐIR Þjónustukönnunin var gerð af Capacent fyrir MP banka í september Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is F í t o n / S Í A  Gallerí Fold siGtaði allt að 100 verk Frá síðustu árin Tóku falsaða mynd af uppboði í desember s teinbergur Finnbogason, lögmaður Péturs Þórs Gunnarssonar listverka- sala, segir að enn hafi ekki komið fram vís- bendingar eða sannanir fyrir því að verkið sem hjartalæknirinn Skúli Gunnlaugsson keypti fyrir 1,6 milljónir króna sé falsað. Hann hafi hins vegar ekkert heyrt af mál- verkinu sem eignað sé Louisu Matthías- dóttur. „Þetta mál [í kringum málverk Skúla Gunnlaugssonar] er búið að vera í gangi í hartnær ár. Enn hafa ekki komið fram vís- bendingar eða sannanir fyrir því að verkið sé falsað þrátt fyrir loforð Skúla og áskor- anir Péturs Þórs um að afhenda þær. Þá vekur það furðu að málinu hafi ekki verið vísað til lögreglu,“ segir hann. „Pétur er borinn sökum sem hann er viðkvæmur fyrir vegna fyrri mála. Þær sakir eru órök- studdar með öllu.“ Þar vísar Steinbergur í dóm sem Pétur hlaut á tíunda áratugnum vegna þriggja mynda sem hann seldi og mátti vita að væru falsaðar. Átti engan annan kost en að loka Steinbergur segir að í kjölfar þess að RÚV hafi fjallað um þessa meintu fölsun á verki Þorvaldar í sumar hafi Pétur Þór ekki séð annan kost í stöðunni en að loka galleríinu. „Í þeim hildarleik var honum ekki stætt á því að stunda þessa atvinnu.“ Hann segir að Pétur hafi gert upp við seljanda verks-  steinberGur FinnboGason, löGMaður Péturs Þórs Gunnarssonar Enn hafa ekki komið fram vís- bendingar eða sannanir fyrir því að verkið sé falsað þrátt fyrir loforð Skúla og áskoranir Péturs Þórs um að afhenda þær. Þá vekur það furðu að málinu hafi ekki verið vísað til lögreglu. Pétri Þór verði bættur skaðinn því sannanirnar séu engar Tryggvi Páll Friðriksson listmunasali. 16 úttekt úttekt 17 elgin 14.-16. janúar 2011 Helgin 14.-16. janúar 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.