Fréttatíminn - 14.01.2011, Blaðsíða 37
FÍFA (Húsgagnahöllinni) – Sími 552 2522 – www.fifa.isOpið: Mán. - Fös: 10-18 Lau.: 10-17 - Sun.: 13-17
Allt fyrir börnin
30% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM FATNAÐI
ÚTSALAN ER HAFIN
Lagið þitt
Lag og texti: Ingvi
Þór Kormáksson
Flytjendur: Böddi og
JJ Soul Band
Böðvar Reynisson,
betur þekktur sem
Böddi í Dalton, hefur
verið atkvæðamikill
í poppbransanum
undanfarin ár og
ferðast landshorna
á milli með hljóm-
sveit sinni Dalton,
eða Dalton-bræðrum
eins og þeir eru oft
nefndir. Dalton gaf út
sína fyrstu breiðskífu
fyrir jólin 2009.
Símanúmer:
900-9001
Ef ég hefði vængi
Lag og texti: Haraldur
Reynisson
Flytjandi: Haraldur
Reynisson
Halli Reynis flytur
eigið lag. Hann hefur
verið trúbador allt
frá því hann byrjaði
tónlistarferil sinn en
haft hljómsveitir með
sér annað slagið. Hann
hefur gefið út sjö
geisladiska með eigin
lögum og textum.
Símanúmer:
900-9002
Elísabet
Lag og texti: Pétur
Örn Guðmundsson
Flytjandi: Pétur Örn
Guðmundsson
Pétur Örn hefur
sungið með hljóm-
sveitunum Buff,
Dúndurfréttum,
Hangir á bláþræði,
Sirkus Babalú og
Fjallkonunni. Hann tók
einnig þátt í uppfærslu
á söngleiknum Hárinu
árið 1994 og árið eftir
söng hann hlutverk
Jesú Krists í rokk-
óperunni Súperstar.
Hann hefur oft sungið
bakraddir í Söngva-
keppni Sjónvarpsins
fyrir aðra höfunda.
Símanúmer:
900-9003
Huldumey
Lag: Ragnar Her-
mannsson
Texti: Anna Þóra
Jónsdóttir
Flytjandi: Hanna
Guðný Hitchon
Hanna Guðný kemur úr
söngelskri fjölskyldu
en meðal náinna
skyldmenna hennar
eru þau Sigríður
Guðnadóttir og Páll
Rósinkranz. Hanna
Guðný hefur hingað
til aðeins sungið við
brúðkaup og aðrar
skemmtanir, en ætlar
nú að demba sér út
í tónlistina af fullum
krafti.
Símanúmer:
900-9004
Ástin mín eina
Lag og texti: Arnar
Ástráðsson
Flytjandi: Erna Hrönn
Ólafsdóttir
Erna Hrönn var einn af
stofnendum hljóm-
sveitarinnar Bermuda
árið 2004 og var hún
söngkona sveitarinnar
til ársins 2008. Hún
hefur tvisvar áður
tekið þátt í Söngva-
keppni Sjónvarpsins
sem aðalsöngkona.
Símanúmer:
900-9005
Ingvi Þór Kormáksson. Haraldur Reynisson. Pétur Örn Guðmundsson. Ragnar Hermannsson. Arnar Ástráðsson.
Keppnin um að
komast til Düsseldorf
að hefjast
Fimmtán lög hafa verið valin til þess að etja kappi um réttinn til að keppa í Eurovision fyrir hönd
Íslands í Düsseldorf í Þýskalandi í maí. Söngvakeppni Sjónvarpsins hefst á laugardagskvöld þegar
þau Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Guðmundur Gunnarsson kynna fyrstu fimm lögin í keppn-
inni. Undankeppnin heldur svo áfram dagana 22. janúar og 3. febrúar. Hinn 5. febrúar verður sér-
stakur upprifjunarþáttur og 12. fer úrslitakeppnin fram. Sem fyrr er valið í höndum áhorfenda sem
geta greitt lögunum atkvæði sitt með því að hringja í símanúmer viðkomandi lags.
Fyrstu fimm lögin í keppninni:
eurovision 37 Helgin 14.-16. janúar 2011