Fréttatíminn - 14.01.2011, Blaðsíða 50
50 heimili Helgin 14.-16. janúar 2011
Það er margt
hérna inni sem
er afar fallegt
og ég vil alls
ekki breyta.
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16
rúm
rúmgaflar
kojur
púðar
heilsukoddar
sófaborð
borðstofuhúsgögn
skrifstofuhúsgögn
Patti Húsgögn
10-50 %afsláttur
sófar
tungusófar
sófasett
hornsófar
relax stólar
stakir sófar
Útsala Útsala Útsala
BORÐ FRÁ 34.950
3-JA SÆTA LEÐUR RELAX SÓFi 189.900
STÓLAR FRÁ 7.950
Landsins mesta úrval af sófasettum
Í húsinu hans afa
Í Hafnarfirðinum hefur iðnhönnuðurinn Hjördís Ýr Ólafsdóttir fært gamla
íbúð ömmu sinnar og afa til nútímans með málningu og nútímalegri
hönnun. Ljósmyndir/Hari E ftir námsdvöl í hönnun á suðrænum slóðum, á Ítalíu og í Ástralíu, flutti Hjördís Ýr
Ólafsdóttir hönnuður aftur heim
í Hafnarfjörðinn í húsið sem afi
hennar byggði og mamma hennar
ólst upp í.
„Hér var allt brúnt og appel
sínugult og við byrjuðum á því að
mála allt og setja parket á gólfið,
annars er allt upprunalegt,“ segir
Hjördís Ýr sem færði gömlu íbúðina
til nútímans með málningarpensil
inn að vopni. „Það er margt hérna
inni sem er afar fallegt og ég vil
alls ekki breyta, eins og til dæmis
hurðirnar sem eru upprunalegar
tekkhurðir með mynstruðu gleri
og svo er kringlóttur þakgluggi á
ganginum og fleira,“ segir Hjördís
Ýr. Inngangurinn er einnig tekk
klæddur og Hjördís segir brosandi
að ekki væri hægt að rífa þetta nið
ur enda rosalega fallegt þótt gamalt
sé. Eldhúsið er einnig upprunalegt
en hefur nú verið málað í hvítu og
ljósbláu. „Ég held mikið upp á ljós
blátt og tók ákvörðun um að mála í
Ljósblái liturinn gefur vissa dýpt sem breytir formum og áherslum í eldhúsinu, en litinn valdi Hjördís út frá eldhússtólunum. Gamalt dagatal með Vespu frá
Ítalíu. Í barnaherberginu hefur
Hjördís brugðið á það ráð að
stinga litríkri rellu í ofninn.
Gamla eldhúsið hennar ömmu er
gert nútímalegt með því einu að
mála það í hvítum og ljósbláum lit.
Borðstofuborðið smíðaði og
hannaði Hjördís sjálf. Það
er spónlagt tekkborð sem
hægt er að breyta á fjóra
mismunandi vegu.
þessum lit eftir að ég keypti ljósbláa
stóla í IKEA,“ segir Hjördís Ýr. Þar
mætast ýmis tímabil; eldhúsið og
litirnir vísa til sjöunda áratugarins
í bland við nútímalega hönnun á eld
húsmunum.
Víða á veggjum eru límmiðar sem
eru hönnun Hjördísar og Tinnu Pét
ursdóttur, en þær hafa unnið saman
að hönnun undir nafninu „Studio
Akkeri“ og má sjá hönnun þeirra á
vefsíðunni www.studioakkeri.com.
Í Ástralíu var Hjördís Ýr í meist
aranámi í grafískri hönnun og sér
hæfði sig í mynsturgerð sem hefur
nýst henni meðal annars við hönn
un á vegglímmiðunum og á stíla
bókum sem hafa verið framleiddar
undir merkjum Stúdíós Akkeri.
„Ég sérhæfði mig í mynsturgerð
en það er mikil hefð fyrir henni í
Ástralíu, og það var virkilega gam
an að fá að vinna að verkefnum þar.
Mikil hugsun liggur að baki hverju
mynstri og í lokaverkefninu mínu
þurfti ég að vísa til umhverfisáhrifa
í mynsturgerð minni og notaðist
meðal annars við plastpoka og ís
birni,“ segir Hjördís. Víða á heim
ilinu getur að líta verk eftir Hjördísi,
í römmum og að sjálfsögðu í barna
herberginu þar sem vegglímmiðar
frá Stúdíó Akkeri prýða veggina.
Kristín Eva Þórhallsdóttir
keva@frettatiminn.is