Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.01.2011, Blaðsíða 30

Fréttatíminn - 14.01.2011, Blaðsíða 30
S amanlögð raforkuframleiðsla á Íslandi er nú 17 teravatt-stundir á ári. Hvað telur þú að raforkuframleiðslan geti orðið mest þegar raunhæfir kostir hafa verið nýttir? „Svarið við þessu fer að talsverðu leyti eftir væntanlegum niðurstöð- um Rammaáætlunar, sem fjallar um virkjanakosti og flokkar þá í nýtingarflokk, biðflokk og verndar- flokk. Það á líka eftir að koma í ljós hvort og hvaða kostir í biðflokki, og jafnvel einnig nýtingarflokki, munu á endanum teljast fýsilegir. Tíðarandi hvað varðar náttúru- vernd og áherslu á hóflega, sjálf- bæra þróun getur breyst eins og við höfum séð. Í dag er mat sérfræð- inga að við gætum unnið einhvers staðar á bilinu 30 til 50 teravatt- stundir á ári. En mér finnst réttasta hugarfarið gagnvart þessari spurn- ingu vera að nota varfærið mat á vinnanlegu magni, en leggja frem- ur áherslu á einingarverðið, það er hversu mikið við fáum í tekjur af hverri teravattstund.“ Nýtingarréttur HS Orku á orkuauð- lindunum suður með sjó er 65 ár, sem mörgum þykir ígildi eignar- halds á auðlindinni. Orkusölusamn- ingur Landsvirkjunar við Fjarðaál er til 40 ára. Hvað finnst þér um svo langan samningstíma í tengslum við auðlindir þjóðarinnar? „Stýrihópurinn fjallaði allnokkuð um æskilegar tímalengdir í þessu sambandi og varð ásáttur um að nefna 25 til 30 ár sem skynsamleg- an samningstíma þegar auðlindir eru leigðar. Þarna þarf að feta milli- veg því ef samningstími er of stutt- ur, fær þjóðin minna í sinn hlut í upphafsgjaldi þegar auðlindir eru boðnar út, og hvati til framkvæmda gæti horfið. Einnig kemur upp svokallaður leigjendavandi þegar styttist í lok samningstíma; þá er hætta á að illa verði gengið um fast- eignir og auðlindir. Við viljum hafa samningstíma hóflegan en fremur liðka fyrir því að leigjandi fái fram- lengingu ef hann hefur staðið í skilum með greiðslur og uppfyllt skilyrði um gætilega umgengni um auðlindina. Varðandi orkusölusamninga hvetjum við til þess í orkustefn- unni að samningar verði styttri og sveigjanlegri, og helst tengd- ari markaðsverði orku á nálægum mörkuðum. Áliðnaðurinn hefur sérstöðu um margt og hentaði ein- mitt sem viðskiptavinur í árdaga virkjanaframkvæmda á Íslandi vegna þess hve hann er viljugur að gera langa, fasta orkusölusamn- inga, sem geta verið grundvöllur heilla virkjana. En nú þegar við höfum virkjað þriðjung til helm- ing vinnanlegrar raforku á Íslandi, og nýtt hana að mestu til álfram- leiðslu, er kominn tími til að horfa til fjölbreyttari hóps viðskiptavina sem eru tilbúnir að gera styttri samninga á verði sem er nær heimsmarkaðsverði.“ Í mati á arðsemisáhrifum samn- ingsins við Fjarðaál, sem Lands- virkjun lét vinna árið 2003, kemur fram að þessi 40 ára samningur sé „mikilvæg trygging fyrir seljanda orkunnar“. Ertu sammála þeirri fullyrðingu? „Stýrihópurinn fjallaði ekki um arðsemi einstakra orkusamninga sem gerðir voru á fyrri árum og hugsanlega á öðrum forsendum en lagðar eru til grundvallar í dag. En almennt erum við sammála áherslu nýs forstjóra Landsvirkjunar á arð- semi. Við teljum allar líkur á að orkuverð muni fara hækkandi á næstu áratugum, sérstaklega fyrir endurnýjanlega orku sem unnin er með lágmarks koltvísýringslosun. Til dæmis niðurgreiða Þjóðverjar um þessar mundir græna orku um yfir 130 dollara á megavattstund, sem er margföld sú upphæð sem stórnotendur borga á Íslandi. Hættan er því sú að fórnarkostn- aður langra orkusamninga, sem ekki tengjast markaðsverði raforku hverju sinni, verði mikill. Þegar um er að ræða 5 teravattstundir skilar hver 10 dollara hækkun á verði megavattstundar 50 milljón- um dollara á ári eða 6 milljörðum króna. Það þarf ekki mjög mörg ár til að slíkur munur safnist saman í verulegar upphæðir.“ En er þá raforkuverð til stóriðju hér á landi almennt ásættanlegt? „Af ársreikningum orkufyrir- tækja má ráða að meðalorkuverð án flutnings hefur verið á bilinu 19 til 25 dollarar á megavattstund að minnsta kosti síðan 2006. Þetta er aðeins brot af orkuverði til iðnaðar í Norður-Evrópu og OECD, sem hef- ur verið á bilinu 60 til 100 dollarar síðustu ár og fremur á uppleið en hitt. En við búum við að vera á eyju og án tengingar við meginlandið, þannig að notendur orkunnar þurfa að koma til okkar og flytja afurðir sínar héðan. Hver er eðlilegur af- sláttur af orkuverði meginlanda Evrópu og Norður-Ameríku til að bæta upp fyrir staðsetninguna? Því er erfitt að svara en við eigum að leitast við að ná þeim afslætti niður í framtíðinni. Takist það get- ur framlegð af orkuauðlindunum margfaldast á við það sem við höf- um séð til þessa.“ Hvaða mál þarf að setja í forgang til að tryggja að þjóðin fái í sinn hlut hámarks arð af orkuauðlindum sín- um? „Stýrihópurinn mælir með því að orkuauðlindum í ríkiseigu verði safnað saman í Auðlindasjóð sem taki að sér umsýslu þeirra, rann- sóknir, útboð og útleigu gegn upp- hafsgjaldi og hlutdeild í auðlinda- rentu allan útleigutímann. Þá þarf að skoða hvort sveitarfélög eru til- búin að taka upp sama fyrirkomu- lag útboða og útleigu, svo ramm- inn sé samræmdur og hið opinbera tapi ekki arði vegna innbyrðis sam- keppni. Nefna má að Norðmenn eru með þrískipt afgjaldakerfi á orkufyrirtæki, þar sem um er að ræða venjulegan tekjuskatt, sér- stakan orkuskatt og loks hlutdeild í reiknaðri auðlindarentu. En á söluhliðinni er mikilvægt að sýna þolinmæði, vera tilbúin að setja markið hærra og bíða eftir orku- kaupendum sem greiða betra verð og tengdara markaðsverði í ná- grannalöndum.“ Í hvaða verkefni er arðvænlegast að selja orkuna? „Það er erfitt að segja fyrir um, en æskilegast er að laða að fjölbreytt- an hóp orkukaupenda, af ýmsum stærðum og gerðum, og gera við þá sveigjanlega samninga þannig að virkari samkeppni myndist á kaup- hliðinni. Smærri kaupendur henta líka betur fyrir jarðvarmavirkjanir, þar sem erfitt er að spá fyrirfram um vinnslugetu jarðhitasvæða og affarasælast að byggja vinnslu þeirra upp í hóflegum skrefum. Nefna má að í jarðvarmavirkjun- um fellur til talsvert magn af varma á lágu hitastigi, sem ekki nýtist. Iðngarðar nálægt jarðvarmavirkj- unum gætu hugsanlega nýtt bæði rafmagn, gufu og heitt vatn, og jafnvel koltvísýring einnig. Önnur staðreynd sem staldra má við er sú að við flytjum inn olíu og bensín fyrir yfir 50 milljarða á ári, FOB. Það væri unnt að ná margvís- legum markmiðum, bæði hagræn- um, umhverfislegum og öryggis- tengdum, með því að lækka þá tölu, og þá meðal annars með því að nota raforku í staðinn, beint og óbeint. Í stýrihópi um orkustefnu voru, auk Vilhjálms: Bergur Sigurðsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Guðni A. Jóhannesson, Guðrún Jóna Jóns- dóttir, Gunnar Tryggvason og Sal- vör Jónsdóttir. Með hópnum starfaði Helga Barðadóttir, sérfræðingur hjá iðnaðarráðuneytinu. Raforkunotkun og sala Árleg raforkuframleiðsla á Íslandi er 17 TW-stundir á ári. Yfirgnæf- andi meirihluti fer til álvera og annarrar stóriðju, eða um 14 TW- stundir. Almenn notkun heimila og atvinnulífs er því aðeins þrjár TW-stundir á ári (sjá mynd). Þar af er raforkunotkun vegna lýsing- ar og raftækja á heimilum (utan bændabýla) 23 prósent af notkun almenna markaðarins. Það liggur sem sagt fyrir að engin þörf er á að virkja meira fyrir almennan markað. Það þýðir aftur að öll við- bótarorka verður seld orkufrekum iðnaði, eða flutt úr landi um sæ- streng á erlendan markað þegar fram líða stundir. Í orkustefnunni er einmitt gert ráð fyrir þeim möguleika. Úr skjali stýrihópsins má lesa að raunhæf viðbótarraforkufram- leiðsla virkjana, sem hafa ekki verið reistar, sé í kringum 18 TW- stundir. Mögulega er sem sagt hægt að ríflega tvöfalda raforku- framleiðslu landsins að hámarki. Sú stærð er þó örugglega umdeil- anleg. Hörðustu virkjanasinnar Tillaga um stofnun Auðlindasjóðs Vilhjálmur Þorsteinsson er formaður stýrihóps um mótun heildstæðrar orkustefnu. 5 teravattstundir skila hver 10 dollara hækkun á verði megavattstundar, 50 milljónum dollara á ári eða 6 milljörðum króna. Það þarf ekki mjög mörg ár til að slíkur munur safnist saman í verulegar upphæðir.“ 16.000 14.000 12.000 10.000 8.000 6.000 4.000 2.000 0 Gigavatt- stundir á ári Orkusamningar stórnOtenda eftir stærð Og tímalengd 2010 2015 2020 2025 2030 2035 2040 2045 2050 Alcoa Fjarðaál Reyðarfirði 579 MW til ársins 2048 Rio Tinto Alcan Straumsvík 345-422 MW til ársins 2036 Becromal Krossanesi 66 MW til ársins 2029 Norðurál Grundartanga II 310 MW til ársins 2026 Norðurál Grundartanga I 186 MW til ársins 2019 Elkem Grundartanga 123 MW til ársins 2019 Lj ós m yn d/ H ar i Vilhjálmur Þorsteinsson er formaður stýrihóps iðnaðarráðherra um orkustefnu. 30 úttekt Helgin 14.-16. janúar 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.