Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.01.2011, Blaðsíða 20

Fréttatíminn - 14.01.2011, Blaðsíða 20
Nýherji hf. Borgartúni 37 www.netverslun.is Í tilefni af HM í handbolta bjóðum við Panasonic sjónvarpstæki á einstöku tilboðsverði í verslun Nýherja, Borgartúni og á netverslun.is. Njóttu þess að horfa á strákana okkar á úrvalsskjá frá Panasonic. Tilboðið gildir meðan birgðir endast. VERÐ FRÁ 99.990 KR. STÆRÐ FRÁ 32”-50” HM TILBOÐ PANASONIC SJÓNVÖRP Á FRÁBÆRU VERÐI! H reyfing er komin á sölu nýrra fólksbíla hér á landi eftir áralanga ládeyðu frá því gengi krónunnar féll nokkru fyrir hrun efnahagskerfisins. Ræður þar mestu verðlækkun sparneytinna og um- hverfisvænni bíla í kjölfar breyttra laga um vörugjöld um áramótin. Full- trúar þeirra bílaumboða sem Frétta- tíminn ræddi við eru sammála um að lagabreytingin hafi haft jákvæð áhrif og að merkja megi aukinn áhuga á þeim nýju bílum sem lækkað hafa í verði, sumir svo skiptir hundruðum þúsunda. Bílaumboðin eru aftur farin að auglýsa nýja bíla en slíkar auglýs- ingar hafa um langa hríð aðeins verið svipur hjá sjón miðað við það sem var þegar best lét. Nýr bíll fyrir tæplega 1,7 milljónir „Landslagið er að breytast,“ segir Benedikt Eyjólfsson, framkvæmda- stjóri Bílabúðar Benna. Hann segir að í raun hafi sala nýrra bíla til almenn- ings að mestu legið niðri frá því í mars árið 2008 þegar gengi krónunnar féll, eða í nær þrjú ár. Ef frá er talin sala nýrra bíla til bílaleiga hafi samdráttur- inn numið um 90%. „Þetta gæti breyst núna,“ segir Benedikt og bendir á að allir Chevr- olet-bílar hafi lækkað í verði. Ódýrasti Cheverolet-bíllinn, Spark, hafi lækkað um 300 þúsund krónur, úr 2 millj- ónum í 1.695 þúsund krónur. Benedikt bendir ennfremur á að dýrir bílar eins og Porsche-jeppinn hafi lækkað í verði sem nemur um einni milljón króna. Hann sé uppseldur fram í apríl. „Það er tilfinning mín nú að eitthvað sé að gerast á markaðnum, það er líf í honum. Fólk vill nýta tækifærið,“ segir Benedikt og bendir á að viðhald á gömlum bílum sé mikið og dýrt. Hann segir aftur hægt að fá lán til bílakaupa en fólk verði að eiga 30% í útborgun, sem sé eðlilegt. Hlutfallslega meiri lækkun dísilbíla Marínó B. Björnsson, sölustjóri hjá Heklu, segir að mikið hafi verið að gera frá áramótum og fólk sé nú tilbúið til að panta bíla. Hekla er með umboð fyrir Volkswagen (VW), Skoda, Audi og Mitsubishi. Marínío segir dísilvélar VW-samsteypunnar (VW, Skoda og Audi) koma einkar vel út hvað kerfisbreytingarnar varðar. Grunngerð VW Polo dísil hafi lækk- að úr 2.890 þúsund krónum í 2.290 þúsund krónur og grunngerð VW Golf hafi lækkað úr 3.890 í 3.190 þúsund krónur. Lækkunin er hlutfallslega meiri í dísilgerðum bílanna en bensín- gerðunum. Marínó bendir þó á að nýj- ar gerðir bensínvéla séu orðnar mjög sparneytnar en ódýrasti VW Polo er með bensínvél og kostar 2.190 þúsund krónur. Sölustjórinn segir enn fremur að spenningur sé fyrir nýjum VW Pas- sat metanbíl sem væntanlegur sé. Þar sé um að ræða stóran fjölskyldubíl, án vörugjalds, en grunngerð hans kemur til með að kosta 3,990 þúsund krónur. „Markaðurinn var steindauður en nú er að lifna yfir þessu,“ segir Mar- ínó. „Það er mikill áhugi hjá fólki að finna hagkvæma bíla enda hefur elds- neytisverðið mikið að segja,“ bætir hann við. Marínó segir að um 8 vikur taki að afgreiða bíla frá pöntun þótt eitthvað sé til á lager. Fólk sé ekki eins hrætt um gengisfall krónunnar og í upphafi árs í fyrra. Gengi hennar hafi verið stöðugt um hríð. Marínó segir, líkt og Benedikt Eyj- ólfsson, að dýrir bílar seljist og vísar þá t.d. til Audi Q7 jeppans. Menn eru að velja liti og kaupa Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota, segir að nú megi merkja breyt- ingu, fólk komi, skoði og velti fyrir sér verðlækkunum. „Það er fullt af sölumálum í gangi, menn eru að velja liti og kaupa,“ segir hann og bendir á að Toyota hafi verið með bílasýningu í Kópavogi um síðustu helgi þar sem nær þúsund manns hafi komið, auk þeirra sem komu á sýningar umboðs- ins á Akureyri, Selfossi og í Reykja- nesbæ. „Almennt hafa Toyota-bílar lækkað í verði, meira að segja Landkrúserinn líka,“ segir Páll. Hann segir algenga lækkun 6-10% og upp í 15%. Grunngerð Yaris lækkar úr 2.660 þúsund krónum í 2.370 þúsund krónur og grunngerð Corolla úr 3.580 þúsund krónum í 3.350 þúsund krónur. Land Cruiser 150 lækkar um 50 þúsund krónur, t.d. sjálfskipt GX gerð með dísilvél úr 9.590 í 9.540 þúsund krónur. Bens- ínknúinn Land Cruiser hækkar hins vegar um 600 þúsund krónur, eða tæplega 5%. Páll segir vaxandi áhuga á tvinn- bílum, þ.e. bílum búnum rafmótor og bensínvél, t.d. Prius og Auris, auk þess sem nánast allar gerðir Lexus séu fáanlegar í tvinngerð. Vörugjald sem leggst á tvinnbíla er 10% miðað við t.d. 15% á grunngerð Aygo og Yaris, 20% á grunngerð Corolla og 44% á Land Cruiser. Páll er sammála öðrum forráða- mönnum bílaumboðanna um að dýrir bílar hafi selst vel. Þar kaupi fólk sem eigi peninga. Markaður fyrir Land Cruiser 150 er t.d. ekki mettaður en jepparnir verða ekki til fyrr en í mars. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Markaður- inn var steindauður en nú er að lifna yfir þessu.  vörugjöld Breyting lækkar verð umHverfisvænna Bíla Sala nýrra bíla af stað á ný eftir þriggja ára ördeyðu Lagabreytingin hefur haft jákvæð áhrif. Verðlækkun fjölskyldubíla getur numið hundruðum þúsunda króna. Heldur er að lifna yfir sölumarkaði nýrra bíla eftir nær þriggja ára „dauða“ í grein- inni. Þar ræður miklu breyting á vöru- gjöldum sem lækkar verð umhverfisvænna og sparneytinna bíla. Á myndinni er Toyota Auris, sem m.a. fæst í tvinngerð. 20 bílar Helgin 14.-16. janúar 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.