Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.01.2011, Síða 38

Fréttatíminn - 14.01.2011, Síða 38
Þ rátt fyrir að raforkumark-aðir í Evrópu lúti enn ströngum reglum hefur um- hverfi þeirra hér og erlendis breyst mikið í kjölfar einkavæð- ingar síðustu ára og áratuga. Atvinnu- grein sem áður ein- kenndist af einokun eða fákeppni, og þeim takmörkunum sem slíkir markaðir eru háðir, hefur nú þurft að laga sig að sam- keppnisumhverfi og þarf að fylgja þeim leikreglum sem sam- keppnin setur. Þetta kallar á breytt- ar aðferðir við stjórnun fyrirtækj- anna. Stjórnendur vanir einokunarhugsun Í ljósi ýmissa erfiðleika hjá ís- lenskum orkufyrirtækjum má spyrja hvort stjórnun þeirra sé í kreppu. Erlendar rannsóknir sýna að stjórnendur sem hafa starfað í íhaldssömum atvinnugreinum eins og orkugeiranum hafa tamið sér fastheldinn stjórnunarstíl sem stjórnendur úr öðrum „nýrri“ at- vinnugreinum, svo sem eins og hjá símafyrirtækjum og rafeindavöru- fyrirtækjum, hafa ekki talið væn- legan til árangurs á samkeppnis- markaði. Frumrannsóknir undirritaðs á Ís- landi árin 2007 til 2009 sýna að sér- fræðingar telja stjórnendur orkufyr- irtækja eiga nokkuð í land með að tileinka sér stjórnunarhætti nýrra tíma þar sem þeir eru aldir upp við einokunarhugsun og að það þurfi nokkuð átak til að fá þá til að hugsa á annan hátt. Þá sé erfitt að fá stjór- nendur til að átta sig á hvað mark- aðs- og samkeppnishugtak dagsins í dag stendur fyrir. Ekki síst þar sem nú séu, að einhverju leyti, sömu stjórnendur og áður störfuðu í opin- berum stofnunum að sinna annars konar störfum í einkafyrirtækjum sem eðli málsins samkvæmt eru þeim nokkuð framandi. Stjórnend- ur orkufyrirtækjanna taka sumir hverjir í sama streng og sérfræðingarnir en nefna jafnframt að það sé erfitt að vinna að stefnumörk- un þegar hana þurfi jafnvel að endur- skoða á fjögurra ára fresti í kjölfar kosn- inga. Nýtt hugarfar Fyrir afnám einka- réttar ríkisins til fjarskiptarekstrar í ársbyrjun 1998 var á Íslandi eitt fyrir- tæki sem hafði það eina hlutverk (fyrir utan póstþjónustu) að tengja tvo aðila sinn við hvorn endann á símalínu. Á þeim vett- vangi hafa hlutirnir mikið breyst og ýmsir spá því að rafmagnsmarkaðir eigi einnig eftir að umbreytast þótt breytingar þar verði kannski ekki jafn dramatískar og á símamarkaði. Aðilar á orkumarkaði gera sér marg- ir grein fyrir þessu og eru þegar að leitast við að tileinka sér nýtt hugar- far. Það er vel, því tiltölulega auðvelt er að heimfæra svokallaðar „bestu aðferðir“ úr öðrum atvinnugreinum yfir á orkugeirann og krafa dagsins til stjórnenda á þessum vettvangi er að reka fyrirtækin á besta mögu- lega máta í nýju umhverfi þótt slíkt sé að einhverju leyti snúnara á orku- markaði þar sem auk þess að gæta að viðskiptalegum hagsmunum þarf einnig að taka ríkt tillit til almanna- hagsmuna um áreiðanlegt framboð rafmagns. Vissulega er einnig gerð krafa um fyrirmyndar stjórnun í öðrum atvinnugreinum en krafan á stjórnendur orkufyrirtækjanna er síst minni vegna samfélagslegs mikilvægis atvinnugreinarinnar á einstaklinga og fyrirtæki í nútíma þjóðfélagi. Hefðbundin rekstrar- leg sjónarmið þurfa að ráða ríkjum í orkufyrirtækjum og tenging við almannahagsmuni er ekki afsökun fyrir slælegri stjórnun. Byggt m.a. á Friðrik Larsen, 2010 og 2009; Hartmann & Ibáñez, 2007, Wiedmann, 2005, Joskow, 2003, Morrison 2001, Brew & Phepls, 1998; Novak & Lyman, 1998. 38 viðhorf Helgin 14.-16. janúar 2011 Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Ritstjórnarfulltrúi: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is. Auglýsinga- stjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. Ólíkt samningnum við Rio Tinto Alcan í Straumsvík eru ekki endurskoðunarákvæði í samningnum við Alcoa. Ís- lendingar virðast því vera læstir inni með heldur vondan díl í 37 ár til viðbótar. Fært til bókar Þingmönnum mætt með tunnuslætti Alþingismenn eru enn í jólafríi og hafa verið frá 18. desember síðastliðnum. Vonandi hafa þeir hvílst vel en þeim er gert að mæta til þings á ný næstkomandi mánudag, 17. janúar. Þeir mega búast við hávaða því boðað er til mótmæla þegar þingið kemur saman á ný. Stjórn Hags- munasamtaka heimilanna segir að tunn- urnar og fleiri hafi í hyggju að mæta. Þar er væntanlega átt við þá sem barið hafa tunnur í mótmælum að undanförnu og voru mest áberandi meðal þeirra þúsunda manna sem mótmæltu fyrir framan Al- þingi þegar Jóhanna Sigurðardóttir for- sætisráðherra flutti stefnuræðu stjórnar sinnar síðastliðið haust. Stjórn samtak- anna segir að þeir hörðustu muni byrja tunnusláttinn kl. 15 á mánudaginn en þeir sem ekki eiga heimangengt svo snemma mæti síðar, um kl. 16.30 eða svo. Stjórnin hvetur félagsmenn til að nota tækifærið og láta í sér heyra. Hún segir ríkisstjórn- ina enn taka stöðu gegn heimilunum með bönkum og kröfuhöfum. Úrræði sem sett hafi verið fram sem skjaldborg fyrir heimilin. „Einkennast þau öll af firringu á ábyrgð og kostnaði hrunsins er áfram fleytt yfir á varnarlaus heimilin,“ segir stjórnin m.a. Þeir sem fylgdust með beinni sjónvarpsútsendingu frá stefnuræðunni og umræðum í kjölfar hennar muna að há- vaðinn fyrir utan var slíkur að hann hafði veruleg áhrif á ræðumenn og var mörgum þingmönnum brugðið, ekki síst forsætis- ráðherranum. Geggjað á flóanum Starfsmönnum Faxaflóahafna er ekki skemmt þessa dagana en þeim verður hér eftir gert að sæta læknisrannsókn þar sem andlegt ástand þeirra verður meðal annars skoðað, að því er Vísir greinir frá. Starfsmennirnir kannast aðeins við geðrannsóknir á mönnum sem sæta rannsókn vegna meintra stórglæpa og sjá ekki samhengið milli slíks og að leiðbeina skipum til hafnar, enda segir starfsmaður hafnaþjónustunnar, fullur kvíða vegna geðheilsumatsins: „Er það ekki bara fyrir klikkaða glæpamenn.“ Gísli Jóhann Hallsson yfirhafnsögumað- ur reynir að róa sína menn í fréttinni og segir hag starfsmannanna aðeins hafðan í huga, engar hótanir hafi verið hafðar í frammi gagnvart þeim. Mæta þeir hærðir fram á völlinn? Ný rannsókn á eðli skallamyndunar hjá körlum ýtir undir vonir um að hægt verði að lækna skalla, segir í frétt Vísis. Í rann- sókninni er skallamyndun karla rakin til þess að stofnfrumur í höfuðleðri ná ekki að mynda hársekki þá sem rót hársins hvílir í. Bent er á að hársekkir í höfuðleðri sköllóttra séu samanskroppnir og örsmáir og að sérfræðingar hafi löngum talið að stofnfrumum fyrir hársekki hafi einnig fækkað í sköllóttum mönnum. Nýja rann- sóknin sýnir hins vegar fram á að sköllóttir hafi jafnmargar slíkar frumur og þeir sem hærðari eru. Ef hægt væri að örva stofn- frumurnar til þess að framleiða húð með hársekkjum, mætti leysa vanda sköll- óttra. Ekki er að efa að það er mörgum karlinum áhyggjuefni þegar hárið fer að þynnast og hverfur jafnvel alveg af hvirflinum. Afstaða til skalla hefur þó breyst undanfarin ár og margir karlar raka kragann og mæta galvaskir með bera hausa – og þykja hinir karlmannlegustu. Talsvert fer þó eftir höfuðlagi hvernig menn bera skalla. Mörgum þætti þó eflaust undarlegt tilsýndar ef þekktustu „skallar“ Íslendinga mættu skyndilega vel hærðir fram á völl- inn. Má þar nefna Steingrím J. Sigfússon, Ómar Ragnarsson, Bubba Morthens, Egil Ólafsson söngvara og son hans Ólaf leikara, auk kvikmyndaleikstjórans Ragn- ars Bragasonar. Það er sláandi staðreynd að tæplega helmingur allrar raforkuframleiðslu lands- ins er bundinn tveimur álverum til ársins 2036. Þetta eru álverin í Straumsvík og Reyðarfirði. Orkusölusamningur Lands- virkjunar við síðarnefnda álverið er reyndar enn lengri, eða til ársins 2048, en það eitt og sér tekur til sín tæplega þriðjung af því rafmagni sem framleitt er á Íslandi. Langur samningstími við Alcoa var eitt af því sem fulltrúar Landsvirkjunar töldu mikinn styrk á sínum tíma. Efasemdamenn hafa verið á öðru máli. Sérstaklega þar sem lengi var grunur um að um- samið verð fyrir orkuna til Alcoa í Reyðarfirði væri í lægri kantinum. Komið hefur í ljós að sá grunur reyndist réttur. Í nýrri skýrslu stýrihóps iðnaðarráðherra um mótun orkustefnu fyrir Ísland kemur fram að meðalverð til stóriðju fyrstu tvo mán- uðina 2010 var 19,6 dollarar á megavatt- stund. Það er til mikilla muna lægra verð en stóriðjufyrirtæki greiða fyrir orku annars staðar í Norður-Evrópu. Það er upplýsandi reikningsæfing að máta 19,6 dollarana við þau miklu orkukaup sem Alcoa hefur tryggt sér árlega í 40 ár. Ef verðið fyrir megavattstundina væri einum dollara hærra, fengi Landsvirkjun 600 millj- ónir króna til viðbótar á ári. Á samningstím- anum gerir það litla 24 milljarða króna. Ef dæmið er tekið lengra, fer upphæðin í 120 milljarða ef megavattstundin hækkar um fimm dollara og í tröllaukna 240 milljarða króna ef hækkunin er 10 dollarar. Rétt er að taka fram í þessu samhengi að 29,6 doll- arar á megavattstund er vel undir því sem iðnaðarfyrirtæki greiða innan OECD. Sam- kvæmt skýrslu stýrihópsins var til dæmis rafmagnsverð í Norður-Evrópu 60 dollarar á megavattstund í fyrra. Ólíkt samningnum við Rio Tinto Alcan í Straumsvík eru ekki endurskoðunarákvæði í samningnum við Alcoa. Íslendingar virð- ast því vera læstir inni með heldur vondan díl í 37 ár til viðbótar. Annar heldur dapurlegur langtímasamn- ingur er sá sem var gerður við kaupendur HS Orku á sínum tíma. Nýtingarréttur HS Orku var 65 ár þegar Magma keypti félagið, með endurnýjunarákvæði til sama tíma. Með réttu er hægt að halda því fram að 130 ára nýtingartími jafngildi nánast eignar- haldi. Þessi samningur er nú það barefli sem notað er til að berja á Ross Beaty og Magma Energy. Beaty og félag hans hafa þó ekki annað til saka unnið en að kaupa hlutabréf í einkavæddu fyrirtæki í góðri trú. Meðal þess sem kemur fram í orkustefnu stýrihóps iðnaðarráðherra er tillaga um að lögum verði breytt á þá leið að nýtingarrétt- ur orkuauðlinda landsins verði ekki lengri en 25 til 30 ár og fáist ekki endurnýjaður nema umgengni við auðlindina sé sóma- samleg. Það er gáfuleg tillaga eins og svo margt annað í stefnunni sem stýrihópurinn leggur til. Orkusala og nýtingarréttur Vondir langtímasamningar Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is M Friðrik Larsen lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík Orkufyrirtæki Breyttra stjórnun- arhátta er þörf á nýjum tímum Getur þú verið heimilisvinur Abigale? www.soleyogfelagar.is

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.