Fréttatíminn - 14.01.2011, Page 59
bíó 59Helgin 14.-16. janúar 2011
Coen-vestri á toppinn
Coen-bræðurnir Ethan og Joel hafa
hitt í mark eina ferðina enn og nú með
endurgerð á John Wayne-vestranum
True Grit þar sem Jeff Bridges endur-
tekur rullu gamla harðjaxlsins. Myndin
fór á toppinn í miðasölu í Banda-
ríkjunum um síðustu helgi og ruddi
gamanmyndinni Little Fockers úr
fyrsta sætinu. Þrátt fyrir glæstan feril
hefur engin Coen-mynd, hvorki fyrr né
síðar, halað inn jafn margar milljónir
dollara á fyrstu sýningardögunum.
U ppreisnarmaðurinn og bloggvargurinn Böddi Steingríms mætir til leiks í bíómyndinni Rokl-
and um helgina. Myndin er byggð á sam
nefndri skáldsögu Hallgríms Helgason-
ar sem segist bíða spenntur eftir því að
sjá hvernig Böddi spjarar sig í bíó. „Það
er alltaf gaman að sjá bók eftir sig á hvíta
tjaldinu þannig að maður er spenntur og
vonar það besta. Þetta verður væntanlega
eitthvað aðeins öðruvísi en maður sá
þetta fyrir sér og [Ólafur] Darri kemur
áreiðanlega með einhverja nýja vídd í
persónuna.“
Bödda er lýst sem andans manni í ríki
efnishyggjunnar og á bloggi sínu les hann
yfir græðgisvæddri hjörðinni sem hann
ber takmarkaða virðingu fyrir. Bókin
kom út nokkrum árum fyrir hrun og
var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverð-
launanna árið 2005.
„Böddi kom fram í miðju góðærinu
gegn öllu neysluæðinu og efnishyggjunni
og var með þetta slagorð: „Of mikil vel
sæld skapar vesæld.“ Það verður athyglis
vert að sjá hvernig sá boðskapur virkar í
dag, segir Hallgrímur.
Hallgrímur segist ekki hafa fylgst mjög
náið með gerð myndarinnar og að hann
hafi alls ekki andað ofan á hálsmálið á
leikstjóranum, Marteini Þórssyni. „Ég
þoli það ekki sjálfur ef einhver gerir það
við mig þannig að ég veit að maður á að
sleppa því.“
Rokland er önnur skáldsaga Hallgríms sem er kvikmynduð en Baltasar Kormákur tók
101 Reykjavík sínum tökum fyrir nokkrum árum.
[Ólafur] Darri
kemur áreið-
anlega með
einhverja nýja
vídd ...
Of mikil velsæld skapar vesæld
KJÚKLINGABRINGA FABRIKKUNNAR
Glóðargrilluð kjúklingabringa með brieosti, parmaskinku,
íslensku bankabyggi og kókoskarrýsósu.
UNGFRÚ REYKJAVÍK
Fabrikkusalat
Sesarsalat
SALATVEFJUR Fabrikkunnar
PRÓFAÐU EINN AF LÉTTU RÉTTUNUM OKKAR.
VISSIR ÞÚ AÐ ÞÚ GETUR:
- fengið alla hamborgara í speltbrauði
- skipt út frönskunum fyrir ferskt salat
- skipt út kjötinu fyrir portobellosvepp
Í síma 575 7575 og
á fabrikkan@fabrikkan.is
BORÐAPANTANIR
Meðalbiðtími eftir mat á
Fabrikkunni er aðeins 8 mínútur
frá því að pöntun er tekin.
FLJÓTLEGT Í HÁDEGINU
Alla mánudaga í janúar fylgir ókeypis Fabrikku
DVD diskur* með barnaefni með hverri seldri
máltíð á meðan birgðir endast.
ÓKEYPIS DVD Á MÁNUDÖGUM
* Athugið ekki Latabæjar diskur.
Latibær ® & © 2010 Latibær ehf.
Öll réttindi áskilin.
Latibær er kominn
í DVD tækin fyrir börnin
FYRIR SÁLINA
þægilegur matur
Opið virka daga 12-18
laugardag 12-16
Grensásvegi 8 -108 RVK
Sími: 517-2040
Góðir skór
á börnin
www.xena.is
St. 20-27
kr. 6.495.-
St. 28-35
kr. 6.995.-
St. 20-27
kr. 6.495.-
St. 28-35
kr. 6.995.-