Fréttatíminn - 14.01.2011, Page 68
68 dægurmál Helgin 14.-16. janúar 2011
Vertu hress í vetur
Angelica er íslensk náttúruafurð úr ætihvönn. Angelica inniheldur
heilsubætandi efni sem geta gefið þér aukna orku og styrkt varnir þínar
gegn vetrarpestum. Sæktu styrk í náttúru Íslands!
www.sagamedica.is
Hressandi tilboð
– þú færð tvö box af Angelicu
en borgar fyrir eitt
Tilboðið gildir á öllum útsölustöðum á meðan birgðir endast.
Beðið
eftir
stúlku
Beckham-hjónin David og Victoria
vonast væntanlega eftir stúlku en
þau eiga þrjá stráka fyrir.
David Beckham tilkynnti á
Facebook-síðu sinni um helgina
að eiginkona hans, Victoria
Beckham, væri ólétt að fjórða
barni þeirra hjóna. „Ég hef
frábærar fréttir að færa ykkur.
Við Victoria eigum von á fjórða
barni okkar í sumar. Strák-
arnir eru mjög spenntir yfir því
að eignast nýjan bróður eða
systur,“ skrifaði Beckham á
síðuna sína.
Victoria og David eiga þrjá
drengi fyrir, Brooklyn 11 ára,
Romeo 8 ára og Cruz 5 ára.
Að sögn Daily Mail vilja hjónin
ekki vita hvers kyns barnið er
en það er þó ljóst að Victoriu
yrði létt ef hún fengi hjálp við
að laga hlutföllin á heimilinu sem hafa
farið síversnandi fyrir hana eftir því
sem strákunum hefur fjölgað.
Hún hefur gefið í skyn í viðtölum í
gegnum tíðina að hún myndi gjarna
vilja stúlku til lakka á sér neglurnar,
hjálpa sér með snyrtivörurnar og velja
með sér föt.
Að því er fram kemur í Daily Mail
hyggst Victoria halda áfram að vinna
eins lengi og hún getur, líkt og hún
gerði meðan á meðgöngunni stóð í hin
þrjú skiptin.
V ið fluttum út árið 2005 þegar Snorri, maðurinn minn, fékk vinnu sem framkvæmdastjóri hjá tölvufyrirtæki hér í Glasgow og erum búin að
vera hérna síðan,“ segir Inga Geirsdóttir sem rekur
ferðaþjónustufyrirtækið Skotgöngur. Það sérhæfir sig í
að skipuleggja gönguferðir um marga af fegurstu stöð-
um Skotlands.
Og þetta er alvöru fjölskyldufyrirtæki. Inga er aðal-
fararstjóri, Snorri tekur vissar leiðir á sumrin, Mar-
grét, elsta dóttir þeirra, er fararstjóri og yngri sonurinn,
Bjarki, sér um bókunarþjónustuna á sumrin. Það vantar
bara Daða en hann leggur stund á sálfræðinám við Há-
skóla Íslands. Aðspurð segist Inga ekki hafa verið mikið
göngufrík áður en hún flutti til Skotlands. „Ég fór upp á
Esjuna en þetta byrjaði af alvöru þegar ég kom hingað
út. Nú geng ég þrjú þúsund kílómetra á hverju sumri,“
segir hún og bætir við að hún haldi sér í formi yfir vetrar-
tímann með sundi, göngu og líkamsrækt.
„Við vorum ekki búin að vera hérna lengi þegar við
byrjuðum með þessar gönguferðir. Þá fórum við með
vini og vandamenn upp um fjöll og firnindi. Síðan jókst
eftirspurnin og þegar mest var, sumarið 2007, fórum
við með 300 manns í gönguferðir. Þá komust eiginlega
færri að en vildu,“ segir Inga. En kreppan hafði sín áhrif.
„Við höfum heldur betur fundið fyrir kreppunni og
rákum þetta með bullandi tapi bæði í fyrra og árið þar á
undan – eiginlega ánægjunnar vegna. Núna finnst mér
hins vegar vera að birta til. Fólk er þegar byrjað að panta
og þar sem ég er líka fararstjóri í Edinborg hef ég tekið
eftir því að Íslendingar eru farnir að ferðast meira og
virðast hafa meira á milli handanna. Þannig að við erum
bara bjartsýn,“ segir Inga og bætir við að í kreppunni
hafi þau sótt inn á nýja markaði. „Við höfum farið inn á
sænskan markað og einnig fengið Dani og Hollendinga.
Svíarnir eru skemmtilegir. Þeir eru hrifnastir af viskí-
ferðunum okkar og vilja helst bara rölta á milli verk-
smiðja. Þeir eru vitlausir í viskíið,“ segir Inga og hlær.
Það eru þó ekki viskíferðirnar sem eru vinsælastar.
Vikulangar gönguferðir um skosku hálöndin eru gríðar-
lega vinsælar. Og Inga er ekki á leiðinni heim.
„Við fórum út fyrir sex árum í óvissuferð sem varir
enn. Við erum ekkert á leiðinni heim,“ segir Inga að
lokum. oskar@frettatiminn.is
gönguferðir Íslendinga Í skotlandi
Það er óvíða meiri náttúrufegurð en í Skotlandi. Inga og Snorri sjást hér í einni af gönguferðum sínum. Úr einkasafni
Bjóða Íslendingum upp á
göngu um skosku hálöndin
Hjónin Inga Geirsdóttir og Snorri Guðmundsson reka fyrirtækið Skotganga í Glasgow. Þau bjóða Íslending-
um og öðrum áhugasömum göngugörpum upp á gönguferðir um fegurstu staði Skotlands.
beckham-hjónin fjórða barnið á leiðinni
M
yn
di
r:
N
or
di
c
Ph
ot
os
/G
et
ty
Im
ag
es
David Beckham ásamt sonunum
þremur, Brooklyn, Romeo og Cruz.
Victoria með Romeo.
Victoria með Brooklyn.
Victoria með Cruz.
Keira Knightley
skilur eftir fimm
ára samband
Breska leikkonan Keira
Knightley hefur sagt
skilið við Rupert Friend,
kærasta sinn til fimm
ára. Þetta staðfestir faðir
hennar í breskum blöðum.
Knightley og Friend kynnt-
ust við tökur á myndinni
Hroki og hleypidómar
árið 2005. Knightley er
sögð vera niðurbrotin en
ein af helstu ástæðum
skilnaðarins ku vera að
Rupert var orðinn þreyttur
á að vera eltur af ljósmynd-
urum hvert sem hann fór.
Ásælni ljósmyndara hefur
haldist í hendur við frama
Keiru Knightley sem er ein
eftirsóttasta leikkonan
í kvikmyndaheiminum.
Hún er orðuð við nokkur
risahlutverk í myndum
sem eru í bígerð. Þannig
bendir flest til þess að hún
leiki aðalhlutverkið í Önnu
Kareninu Tolstojs, túlki
Díönu prinsessu og síðast
ekki síst er allt gert til að fá
hana í aðalkvenhlutverkið
í næstu Batman-mynd, The
Dark Knight Rises.
Keira Knightley og Rupert Friend á meðan
allt lék í lyndi. Nordic Photos/Getty Images