Fréttatíminn - 21.01.2011, Síða 5
Árangur þinn er okkar takmark
Hvort sem þú vilt leggja fyrir til skemmri eða lengri tíma þá finnur þú varla betri sparnað
en þann sem felst í að lækka yfirdráttinn. Vildarviðskiptavinir sem lækka nýttan yfirdrátt á launa
reikningum um 30% á árinu 2011 fá 10% endurgreiðslu greiddra vaxta í lok ársins. Prófaðu reiknivél
ina á arionbanki.is og sjáðu hversu há endurgreiðslan þín verður.
Skráðu þig á arionbanki.is fyrir 5. apríl.
Hafðu samband við ráðgjafa okkar og kynntu þér það sem við höfum upp á að bjóða.
Við tökum vel á móti þér.
Vilt þú lækka yfirdráttinn?
Þá endur greiðum við þér
hluta vaxtanna.
Hafðu samband
sími 444 7000 • arionbanki.is
Endurgreiðsla vaxta vegna yfirdráttar
ÍS
LE
N
S
K
A
S
IA
.IS
A
R
I
5
2
9
0
6
0
1
/1
1
S igurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, vill skuldajafna 250 milljóna króna launakröfu, sem hann gerði í þrotabú bankans,
gegn skuld sem Arion banki hefur stefnt honum fyrir.
Þetta kom fram við fyrirtöku dómsmálsins í Héraðs-
dómi Reykjavíkur á þriðjudag. Ekki hefur enn verið
tekin afstaða til kröfu Sigurðar og var dómþingi frestað
til 25. febrúar næstkomandi til þess að niðurstaða liggi
fyrir um afstöðu til kröfunnar áður en lengra er
haldið með málið. Almar Möller, lögmaður
Sigurðar, og Andri Árnason, lögmaður
Arion banka, staðfestu báðir fyrir dóm-
ara að reynt væri að ná samkomulagi
utan dómstóla. Þar gegna launakrafa
Sigurðar og afdrif hennar stóru hlut-
verki.
Fréttatímanum hefur ekki enn
tekist að fá á hreint hvaða skuld ná-
kvæmlega Sigurði er stefnt fyrir. Eft-
ir því sem næst verður komist fékk
Andri Árnason öll mál frá Arion banka
sem varða svokölluð þekjulán starfs-
manna bankans. Þar fengu starfsmenn
lán frá bankanum þegar hlutabréf þeirra
hækkuðu að virði, án þess að
nota lánin til kaupa á
bréfum í bankanum.
Arion banki mun krefjast fullrar endurgreiðslu á þess-
um lánum sem hlaupa í mörgum tilvikum á hundruðum
milljóna – þar á meðal Sigurðar.
Sigurður skuldar Kaupþingi einnig 10 milljónir
punda, um 1,8 milljarða íslenskra króna, vegna lánveit-
inga bankans í tengslum við sjóðinn Kaupthing Capi-
tal Partners II sem getið er um í Rannsóknarskýrslu
Alþingis. Auk þess hefur Sigurði verið stefnt vegna
persónulegra ábyrgða hans á lánum bankans
til hans vegna hlutabréfakaupa.
Sigurður var stjórnarformaður Kaup-
þings þegar bankinn féll 8. október
2008. Hann var eftirlýstur af Interpol
um tíma á síðasta ári og var yfirheyrð-
ur af sérstökum saksóknara vegna
gruns um meinta markaðsmisnotk-
un stjórnenda bankans. Hann býr í
London en eyddi jólunum í einbýlis-
húsi sínu á Seltjarnarnesi.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
DómSmál Sigurður EinarSSon og arion banki
Vill skuldajafna 250 milljóna
launakröfu við bankann
Arion banki og Sigurður Einarsson eiga í dómsmáli vegna skulda Sigurðar við bankann
Sigurður Einarsson stendur í
ströngu gegn sínum gömlu
vinnuveitendum.
Íbúðalánasjóður undir
Fjármálaeftirlitið
Búast má við umfangsmiklum breytingum
á því regluverki sem Íbúðalánasjóður starf-
ar undir á næstunni samhliða innspýtingu
eiginfjár í sjóðinn. Hyggjast stjórnvöld
færa sjóðinn undir beint eftirlit Fjármála-
eftirlitsins með ámóta hætti og aðrar
fjármálastofnanir, auk þess sem eiginfjár-
kvaðir, og aðrar kröfur um fjárhagslegan
styrk, verða samræmdar því sem gengur
og gerist í fjármálakerfinu. Þetta má lesa
út úr viljayfirlýsingu stjórnvalda til Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins vegna 4. endurskoðunar
á áætlun sjóðsins og stjórnvalda, að því er
fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka. -jh
Aukið aflaverðmæti
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam
tæpum 112 milljörðum króna á fyrstu tíu
mánuðum ársins 2010 samanborið við
rúma 96 milljarða á sama tímabili árið
2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um
tæpa 16 milljarða eða 16,5% á milli ára, að
því er fram kemur hjá Hagstofu Íslands.
Aflaverðmæti botnfisks var í lok október
orðið 78,5 milljarðar og jókst um 16,9% frá
sama tíma árið 2009 þegar aflaverðmætið
nam 67,1 milljarði. Verðmæti þorskafla var
um 37,2 milljarðar og jókst um 25,5% frá
fyrra ári. -jh
Byggingarkostnaður að
ná jafnvægi
Byggingarkostnaður jókst um 0,6% í
janúarmánuði frá fyrri mánuði, að því er
Hagstofan greindi frá í gær. Hækkunin er
til komin vegna hækkunar á innlendu efni
en undirvísitalan fyrir þann lið hækkar
um 2,3% frá fyrri mánuði og þá hækkar
einnig undirvísitalan fyrir vélar, flutninga
og orkunotkun um 1,8% frá fyrri mánuði.
Kostnaður vegna innflutts efnis og vinnu
lækkar hins vegar. Greining Íslandsbanka
segir að svo virðist sem kostnaður við
nýbyggingar íbúðarhúsnæðis sé nú að
ná jafnvægi eftir mikla hækkun í kjölfar
hrunsins. -jh
86,7%
STUÐNINGUR VIÐ
STAÐGÖNGUMÆÐRUN
Könnun MMR
Stuðningur við staðgöngumæðrun
MMR kannaði hvort landsmenn væru fylgjandi eða
andvígir því að staðgöngumæðrun yrði gerð lögleg á
Íslandi. Mikill meirihluti þeirra sem tóku afstöðu var
fylgjandi lögleiðingunni eða 86,7%. Stuðningur við
staðgöngumæðrun reyndist um og yfir 80% óháð því
hvort niðurstöður eru greindar eftir kyni, aldri, búsetu,
tekjum eða stuðningi við stjórnmálaflokka. -jh
fréttir 5 Helgin 21.-23. janúar 2011