Fréttatíminn - 21.01.2011, Qupperneq 6
LandLæknir kynferðisbrot
„Ólöf á alla mína
samúð í þessu
hryllilega máli“
Geir Gunnlaugsson landlæknir segir sögu Ólafar de Bont, sem
steig fram í Fréttatímanum fyrir tveimur vikum og rauf 40 ára
þögn um kynferðisbrot gegn henni á Kleppi, sorglega og utan
þess sem hægt sé að ímynda sér.
H eilbrigðiskerfið er vel í stakk búið til að taka á svona málum og það hefur
verið tekið á þeim. Það eru til verk-
ferlar sem unnið er eftir. Fólk getur
kvartað til landlæknis og mál eru í
kjölfarið skoðuð. Við höfum svipt
fólk starfsleyfi að lokinni slíkri
skoðun. Við förum hins vegar ekki
með ákæruvald. Fórnarlömbin
ákveða sjálf hvort þau kæra til lög-
reglu eða ekki,“ segir Geir Gunn-
laugsson landlæknir um það hvern-
ig íslensk heilbrigðisþjónusta er í
stakk búin til að takast á við kyn-
ferðisbrot sem framin eru af starfs-
mönnum.
Ólöf de Bont steig fram í Frétta-
tímanum fyrir tveimur vikum og
sagði frá því hvernig hún var beitt
kynferðislegu ofbeldi af lækni á
Kleppi fyrir fjörutíu árum þegar
hún var sextán ára. Eftir að hafa
hlustað á Sigrúnu Pálínu Ing-
varsdóttur, fórnarlamb Ólafs
Skúlasonar biskups, halda
fyrirlestur um þöggun
kynferðisbrota ákvað hún
að hætta að burðast með
leyndarmálið og fór á fund
landlæknisembættisins.
Hún segir í viðtalinu að
þar á bæ hafi fólk tekið
afskaplega vel á móti
henni og beðist af-
sökunar á atvikinu.
„ A l l i r s e m
hlustuðu á sögu
Óla far vor u
snortnir. Ólöf
á alla mína
samúð í þessu
hryllilega
máli,“ segir
Geir aðspurður
um heimsókn Ólafar
og sögu hennar.
Sá læknir sem Ólöf sakar um
kynferðisofbeldi er hættur störf-
um og segir Geir lítið hægt að að-
hafast í málinu. „Þetta mál er utan
þess sem maður getur ímyndað sér
að geti gerst. Maðurinn er hættur
störfum og því er ekkert sem við
getum gert. Hins vegar þurfum
við að vera vakandi fyrir fyrndum
brotum og læra af þeim. Aðspurður
hvort viðkomandi læknir hefði verið
sviptur starfsleyfi ef hann hefði ver-
ið starfandi ennþá segir Geir auð-
velt að berja sér á brjóst og segja
að hann hefði að sjálfsögðu verið
sviptur leyfi. Málið sé hins vegar
ekki einfalt. „Það eiga allir rétt á því
að bera hönd fyrir höfuð sér og það
er ekki hægt að gefa sér niðurstöð-
una fyrirfram, en það breytir ekki
alvarleika þessa máls og hryggð-
inni yfir sögu Ólafar. Ef dæma eigi
af reynslunni þá sýni hún að menn
hafa verið sviptir fyrir brot sem
varða kynferðislega áreitni.
Geir segist ekki geta sagt
til um hvort Ólöf hafi lokið
upp Pandóruöskju með upp-
ljóstrunum sínum og fleiri
fórnarlömb muni koma fram
í kjölfarið líkt og nýleg
dæmi sýni. „Það
er ómögulegt að
segja. Við höfum
ekki fundið fyrir
því ennþá,“ segir
Geir.
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Ólöf de Bont
sagði starfsfólki
landlæknis-
embættisins
hryllilega sögu
sína síðastliðið
haust. Ljósmynd/
Hari
Geir Gunnlaugsson
landlæknir segir heil-
brigðiskerfið vel í stakk
búið til að taka á ásök-
unum um kynferðis-
brot. Ljósmynd/Hari
Karlahópur
velferðarráðherra
Það verður digur karlarómur
á fundum nýs starfshóps
sem Guðbjartur Hannesson
velferðarráðherra hefur
skipað til að gera tillögur um
hvernig auka megi þátttöku
karla í umræðum um jafn-
rétti kynja og auka aðild að
jafnréttisstarfi. Hópurinn er eingöngu skipaður
körlum, að því er fram kemur í tilkynningu
velferðarráðuneytisins. Formaður er Jón Yngvi
Jóhannsson bókmenntafræðingur. Nefndinni
er ætlað að greina stöðu karla í samfélaginu og
m.a. að fjalla um hvernig breikka megi náms-
og starfsval karla og vinna gegn kynskiptum
vinnumarkaði. -jh
Atvinnulausum
fjölgar
Á fjórða ársfjórðungi 2010 voru að
meðaltali 13.200 manns án vinnu
og í atvinnuleit eða 7,4% vinnu-
aflsins. Atvinnuleysi mældist 8,4%
hjá körlum og 6,3% hjá konum.
Frá fjórða ársfjórðungi 2009 til
fjórða ársfjórðungs 2010 fjölgaði
atvinnulausum um 1.200 manns, að
því er Hagstofa Íslands greinir frá.
Atvinnuleysið er mest meðal fólks á
aldrinum 16-24 ára, eða 15,4%. Hjá
hópnum 24–54 ára var atvinnuleysi
6,6% og 3,8% hjá 55–74 ára. Á fjórða
ársfjórðungi 2010 var atvinnuleysi
8,2% á höfuðborgarsvæðinu en
5,9% utan þess. -jh
GOLF
KORT
IÐ VEI
TIR
40% A
FSLÁT
T
AF GO
LFVÖ
LLUM
UMHV
ERFIS
ÍSLAN
D
AUK A
NNAR
RA GL
ÆSILE
GRA F
RÍÐIN
DA
TRYG
GÐU Þ
ÉR ÁS
KRIFT
STRA
X!
TRYG
GÐU Þ
ÉR ÁS
KRIFT
Í SÍM
A 595
6000
EÐA Á
SKJA
RGOL
F.IS
ABU DHABI CHAMPIONSHIP
22 - 23 janúar
BOB HOPE CLASSIC
19 - 23 janúar
Helgin 21.-23. janúar 2011