Fréttatíminn - 21.01.2011, Síða 55
bíó 55Helgin 21.-23. janúar 2011
Tveggja vikna
frönsk bíóveisla
Catherine Deneuve og Gérard Depardieu
láta ljós sitt skína í opnunarmynd Frönsku
kvikmyndahátíðarinnar 2011 sem hefst 21.
janúar og stendur til 3. febrúar. Gaman-
myndin Bara húsmóðir skartar frönsku
stórstjörnunum tveimur og segir frá
auðmjúkri húsmóður árið 1977. Þegar eigin-
maður hennar veikist tekur hún við stjórn
fyrirtækis hans og sýnir að hún er ekki öll
þar sem hún er séð.
Níu aðrar myndir eru á dagskrá hátíðar-
innar. Kvikmyndirnar Velkomin, Eins og
hinir, Stúlkan í lestinni og kanadíska
kvikmyndin Lífslöngun fjalla um málefni
minnihlutahópa, ýmist í gríni eða alvöru.
Leyndarmál og Hvítar lygar fjalla um ástir,
lygar og margbreytileika mannlegra sam-
skipta. Skrifstofur Guðs er mynd sem fjallar
um félagsmál og tilvonandi mæður með
frumlegum hætti. Ævintýrið er í öndvegi í
Adèle Blanc-Sec, en þessi nýjasta mynd leik-
stjórans Lucs Besson byggist á vinsælum
teiknimyndasögum eftir Jacques Tardi.
Loks má nefna hina sögufrægu mynd Laf-
móður frá 1960 eftir Jean-Luc Godard þar
sem franska nýbylgjan ræður ríkjum.
Hátíðarmyndirnar verða sýndar í Háskóla-
bíói og Borgarbíói á Akureyri og er hátíðin
nú haldin í ellefta sinn en að henni standa
franska sendiráðið, Alliance Française og
kanadíska sendiráðið í samvinnu við Há-
skólabíó og Græna ljósið.
Allar kvikmyndirnar eru með enskum texta,
fyrir utan Ævintýri Adèle Blanc-Sec og
Hvítar lygar sem eru með íslenskum texta.
Disney býður upp á ævintýri
Rapunzel í þrívídd.
Rapunzel skoðar heiminn
Í Disney-myndinni Tangled, eða Ævin-
týralegur flótti, er spunnið út frá prins-
essuævintýrinu um Rapunzel sem var
haldið fanginni í háum turni en notaði
sítt hár sitt til að hleypa bjargvættinni
inn í turninn. Vond norn heldur Rapun-
zel í turninum þar sem hún hyggst
nýta sér mikinn töframátt sem hár
prinsessunnar býr yfir. Þegar Rapunzel
kynnist fyrir tilviljun þorparanum Flynn
Ryder, sem leitar skjóls fyrir réttvísinni
í turninum, æsast leikar. Rapunzel fær
Flynn til að sýna sér heiminn sem henni
hefur verið meinað að njóta og við tekur
æsileg ævintýraferð.
KJÚKLINGABRINGA FABRIKKUNNAR
Glóðargrilluð kjúklingabringa með brieosti, parmaskinku,
íslensku bankabyggi og kókoskarrýsósu.
UNGFRÚ REYKJAVÍK
Fabrikkusalat
Sesarsalat
SALATVEFJUR Fabrikkunnar
PRÓFAÐU EINN AF LÉTTU RÉTTUNUM OKKAR.
VISSIR ÞÚ AÐ ÞÚ GETUR:
- fengið alla hamborgara í speltbrauði
- skipt út frönskunum fyrir ferskt salat
- skipt út kjötinu fyrir portobellosvepp
Í síma 575 7575 og
á fabrikkan@fabrikkan.is
BORÐAPANTANIR
Meðalbiðtími eftir mat á
Fabrikkunni er aðeins 8 mínútur
frá því að pöntun er tekin.
FLJÓTLEGT Í HÁDEGINU
Alla mánudaga í janúar fylgir ókeypis Fabrikku
DVD diskur* með barnaefni með hverri seldri
máltíð á meðan birgðir endast.
ÓKEYPIS DVD Á MÁNUDÖGUM
* Athugið ekki Latabæjar diskur.
Latibær ® & © 2010 Latibær ehf.
Öll réttindi áskilin.
Latibær er kominn
í DVD tækin fyrir börnin
FYRIR SÁLINA
þægilegur matur