Fréttatíminn - 21.01.2011, Qupperneq 56
56 dægurmál Helgin 21.-23. janúar 2011
PRÓTÍNBOMBUR!
Samkvæmt skýrslu Matís er
harðfiskur hollari en áður var talið.
Langhollasti þorramaturinn.
Fæst í Bónus
H R E I N Í S L E N S K F Æ Ð U B Ó T
Þ egar þær stöllur Skoppa og Skrítla mæta til leiks á ný í
Borgarleikhúsinu um helgina verður
nýr liðsmaður í hópnum. Þetta er
álfastrákurinn Zúmmi, sem var
skrifaður inn í sýninguna að beiðni
samstarfsaðila tvíeykisins í Holly-
wood þar sem verið er að vinna að
gerð sjónvarpsþátta um þær.
„Já, það kom beiðni frá LA um að
vinsamlegast skipta út víkingnum
í sýningunni,“ segir Hrefna Hall-
grímsdóttir sem stendur á bak
við Skoppu og Skrítlu ásamt Lindu
Ásgeirsdóttur. Linda útskýrir að
leikarinn, sem hafi leikið víkinginn,
hafi verið hafður á hnjánum, og það
hafi ekki fallið í kramið í drauma-
verksmiðjunni þar sem menn hafi
óttast að þetta yrði mögulega mis-
skilið sem dvergagrín.
„Það var nú alls ekki hugmyndin
heldur var grínið að sögurnar
af víkingnum hafi kannski
orðið svona stórar af því að þeir
voru svo litlir.“
Zúmmi álfastrákur var lausnin á
þessum vanda auk þess sem Linda
skoppa og skrítla snúa aftur
Vildu útiloka misskiln-
ing um dvergagrín
Berfætt með hei magerðan bolta
afríkudagar til styrktar skóla í úganda
k rakkar í 6. flokki Breiðabliks munu í vikunni fram undan spreyta sig á að búa til eigin fótbolta og spila án hefðbund-ins skófatnaðar. Til fyrirmyndar hafa þau aðstæður ungra
fótboltaáhugamanna í Afríku, sem flestir leika með heimagerða
bolta og ýmist berfættir eða í sandölum, jafnvel bara á öðrum
fæti, svo að tveir geti gjörnýtt hvert skópar.
Framtak Blikakrakkanna er í tilefni af Afríkudögum sem verða
haldnir frá 22. til 28. janúar að frumkvæði Barnaheilla og Afríku
20:20 – félags áhugafólks um málefni Afríku sunnan Sahara.
Markmiðið er að vekja athygli á málefnum Afríku og afla fjár
til stuðnings menntunarverkefni Barnaheilla í Pader-héraði í
Norður-Úganda.
Að sögn Bjargar Björnsdóttur, verkefnisstjóra hjá Barna-
heillum, verður dagskráin fjölbreytt. Ljósmyndagjörningur Páls
Stefánssonar verður áberandi víða um höfuðborgina, boðið
verður upp á tvær málstofur um málefni Afríku, Bíó Paradís mun
sýna þrjár myndir um lífið í Gíneu-Bissá og þættir á Rás 1 verða
helgaðir Afríku í vikunni. -jk