Fréttatíminn - 21.01.2011, Qupperneq 61
H andverkshúsið býður upp á fjölda námskeiða í upp-hafi árs en þar gefst þeim
sem gæddir eru þeirri náðargáfu
að geta sameinað vinnu hugar og
handa tækifæri til að búa til skart,
hnífa og nánast allt þar á milli.
„Við erum með verslanir í Bol-
holtinu og á Akureyri og á báðum
þessum stöðum bjóðum við upp á
ein fimmtán mismunandi nám-
skeið í handverki,“ segir Þorsteinn
Eyfjörð Jónsson hjá Handverks-
húsinu. „Leiðbeinendur okkar eru
allir mjög hæfir í sínu fagi og búa
að mikilli reynslu.“
Lisa Pavelka verður með nám-
skeið í skartgripagerð í lok mars.
Hún hefur margra ára reynslu í
hönnun og smíði skartgripa úr
silfurleir og skartleir. „Við buðum
henni til okkar í tilefni af 15 ára
afmæli Handverkshússins og vonum
að það dýpki kunnáttu þeirra sem
vinna með sambærileg efni og
hún,“ segir Þorsteinn. „Hún hefur
skrifað nokkrar kennslubækur í
faginu og er fastur dálkahöfundur í
vinsælum fagritum. Undanfarin ár
hefur hún ferðast um Bandaríkin
og Evrópu og kennt skartgripa-
gerð.“
Auk skartgripagerðarinnar er
meðal annars boðið upp á námskeið
í steinvinnslu og öllu sem við kem-
ur útskurði og tálgun í tré, auk þess
sem hnífagerð er einnig kennd.
„Við erum mjög öflug í skartgripa-
gerð og í steinvinnslunni verður
íslenska grjótið að gulli í höndum
þeirra sem til verka kunna.“
Skrá yfir þau námskeið sem í
boði eru hjá Handverkshúsinu má
finna á vefsíðu hússins, handverks-
husid.is.
HandverksHúsið er með fjölbreytt úrval námskeiða
Íslenska grjótið verður að gulli
Íslenska
grjótið
verður að
gulli í hönd-
um þeirra
sem til verka
kunna.
dægurmál 61Helgin 21.-23. janúar 2011
Hnífarnir sem verða til
í höndum leiðbeinenda
Handverkshússins eru
sannkölluð listasmíð.
Það var mikið fjör á opnu húsi hjá
Handverkshúsinu í fyrra.
Bieber opnar
verslun
Ungi söngvarinn Justin Bieber
skaust upp á stjörnuhimininn með
ofsahraða á síðasta ári. Hann nýtur
frægðar-
innar til hins
ýtrasta og
grípur hvert
tækifæri
sem gefst.
Nú á Justin
í miklum
samninga-
viðræðum
um að opna
sína eigin
verslun í Los Angeles. Hjálp fær
hann frá sömu einstaklingum og
stóðu á bak við verslunina Khaos,
sem er í eigu Kardashian-systra.
Bieber stefnir á mikla fjölbreytni
í versluninni; sælgæti, strigaskó,
hjólabretti og jafnvel leikföng.
Vörurnar verða áletraðar með nafn-
inu hans og nokkrar munu jafnvel
skarta mynd af söngvaranum.
Finnsk leynibúð
Þeir sem alltaf hafa látið sig dreyma um
að skarta skeggi en sprettur ekki grön,
geta látið þann draum rætast með hjálp
finnsku vöruhönnuðanna Aamu Song og
Johan Olin. Hjónakornin opna síðdegis
í dag, föstudag, Leynibúðina sína, eða
Salakauppa eins og hún heitir á finnskunni,
í húsakynnum Spark Design á Klapparstíg
33. Og þar verður einmitt mögulegt að
kaupa sér tækifærisskegg úr ull.
Aamu og Johan reka fyrirtækið
Company í Helsinki en hafa
ferðast með Leynibúðina
víða um heim síðastliðin
fimm ár. Hugmyndafræði
þeirra og vörur endurspegla
og fagna hefðbundnu
finnsku handverki og
hráefni. Hönnuðurnir
eru gestakennarar
í vöruhönnun við
Listaháskóla Ís-
lands.
Blóðpeningar til
góðgerðarmála
Twilight-stjarnan Kristen Stewart hefur
auðgast vel á leik sínum í blóðsugubíó-
myndunum sem kenndar eru við Ljósa-
skipti. Hún er mjög
upptekin af því
að nota auð sinn
til þess að hjálpa
öðrum og hefur
uppi áform um
að reisa fjölmörg
áfangaheimili. Hún segir að sér sé mikið
í mun að nota hluta af þeim 25 milljónum
dollara sem hún hefur fengið greidda fyrir
leik sinn öðrum til góðs. Hún segist telja að
um þessar mundir sé besta leiðin til þess
að koma þaki yfir höfuð fólks sem er að
reyna að ná fótfestu eftir persónuleg áföll
og vandræði.