Fréttatíminn - 11.02.2011, Síða 2
alla föstudaga og laugardaga
150 kíló af Lúxem-
borgarskjölum í hús
Starfsmenn sérstaks saksóknara hafa sankað að sér gögnum úti um allan bæ við rannsókn á málum tengdum hruni bankanna.
Hér sést Björn Þorvaldsson, saksóknari embættisins, bera inn gögn úr húsleitum tengdum rannsókn á málefnum Landsbankans.
Hannes slapp fyrir horn
Athafnamaðurinn Hannes Smárason þarf – að svo stöddu
– ekki að greiða Glitni sjálfskuldarbyrgð að upphæð
400 milljónir króna, sem hann gekk í fyrir félögin FI
fjárfestingar, Hlíðarsmára ehf. og ELL 49 ehf. í desember
2007. Þetta kemur fram í dómi sem kveðinn var upp í
máli Glitnis gegn félögunum þremur og Hannesi. FI
fjárfestingar voru hins vegar dæmdar
til að greiða tæpa 4,7 milljarða til
Glitnis. Ástæða þess að Hannes
slepppur við að greiða sjálfskuldar-
ábyrgðina að svo stöddu er að
dómurinn taldi Glitni ekki hafa veitt
Hannesi nægjanlegt svigrúm
til að greiða sjálf-
skuldarábyrgðina líkt
og kveðið var á um
í viljayfirlýsingu
bankans og Hann-
esar á miðju ári
2008. -óhþ
Gunnar Rúnar
bar ekki vitni
Gunnar Rúnar Sigurþórs-
son, sem ákærður er fyrir
að hafa orðið Hannesi Þór
Helgasyni að bana á heimili
þess síðarnefnda í ágúst á
síðasta ári, bar ekki vitni
við aðalmeðferð málsins í
Héraðsdómi Reykjaness á
mánudag. Gunnar Rúnar
nýtti sér rétt sinn og stað-
festi aðeins að framburður
hans við yfirheyrslur væri
réttur. Mikil reiði ríkti meðal
fjölskyldu og vina Hann-
esar Þórs með ákvörðun
Gunnars Rúnars. Hann
viðurkenndi við yfirheyrslur
að hafa stungið Hannes
tuttugu sinnum og að hann
hefði skipulagt morðið
með löngum fyrirvara. Þrír
geðlæknar hafa úrskurðað
hann óskahæfan. -óhþ
Embætti sérstaks saksóknara
hefur loksins fengið til landsins
þau skjöl sem aflað var í hús-
leitum í Lúxemborg snemma á
síðasta ári. Um er að ræða gríð-
arlegt magn af skjölum og vegur
skjalabunkinn 150 kíló. Húsleit-
irnar voru gerðar vegna rann-
sóknar á málefnum Kaupþings.
Rannsóknardómstóll hefur haft
skjölin undir höndum en nítján
félög sem og Banque Havilland,
áður Kaupþing í Lúxemborg,
reyndu að koma í veg fyrir og
kröfðust þess að þau yrðu ekki
afhent. Því var hafnað og nú
bíður bunkinn þess að starfsfólk
hjá sérstökum saksóknara fari í
gegnum hann. -óhþ
SérStakur SakSóknari MálarekStur
e mbætti sérstaks saksóknara hefur fengið tugi mála til rann-sóknar frá því að það var sett á
laggirnar í ársbyrjun 2009. Málin koma
bæði frá Fjármálaeftirlitinu sem og
skilanefndum og slitastjórnum gömlu
bankanna. Gríðarlegur fjöldi hefur verið
yfirheyrður í tengslum við rannsókn-
irnar og staðfesti Ólafur Þór Hauks-
son, sérstakur saksóknari, í samtali við
Fréttatímann að fjöldi þeirra sem væru
með réttarstöðu grunaðra í rannsókn-
um á vegum embættisins væri á annað
hundrað. Gera má ráð fyrir að grunuð-
um fjölgi verulega á næstu mánuðum
eftir því sem embættið kemst lengra í
rannsóknum sínum á málum sem nú eru
á byrjunarstigi.
Ákært hefur verið í tveimur málum
á vegum embættisins. Annars vegar er
þar um að ræða mál félagsins Exeter
Holdings þar sem Jón Þorsteinn Jóns-
son, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs,
Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrverandi for-
stjóri Byrs, og Styrmir Þór Bragason,
fyrrverandi forstjóri MP banka, eru
ákærðir vegna lánveitinga Byrs til Ex-
eter Holdings vegna kaupa á bréfum MP
banka í Byr. Hins vegar var Baldur Guð-
laugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í
fjármálaráðuneytinu, ákærður fyrir brot
á lögum um innherjaviðskipti vegna
gruns um að hann hafi haft innherjaupp-
lýsingar um stöðu Landsbankans þegar
hann seldi bréf sín í bankanum hálfum
mánuði fyrir hrun.
Embætti sérstaks saksóknara hefur
farið í nokkra stóra húsleitarleiðangra,
í tengslum við rannsókn á málefnum
stóru bankanna þriggja, húsleitir sem
hafa teygt sig til Lúxemborgar og Lond-
on.
Nokkrir einstaklingar hafa verið
úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna
rannsóknarhagsmuna. Frægt er þegar
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi
forstjóri Kaupþings-samstæðunnar, og
Magnús Guðmundsson, forstjóri Kaup-
þings í Lúxemborg, voru úrskurðaðir
í gæsluvarðhald í maí á síðasta ári. Þá
var jafnframt gefin út alþjóðleg hand-
tökuskipun á Sigurð Einarsson, fyrr-
verandi stjórnarformann Kaupþings,
sem var síðar dregin til baka. Í síðasta
mánuði voru þeir Sigurjón Þ. Árnason,
fyrrverandi bankastjóri Landsbankans,
og Ívar Guðjónsson, framkvæmdastjóri
eigin viðskipta bankans, úrskurðaðir í
gæsluvarðhald.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Á annað hundrað með
réttarstöðu grunaðra
Viðamiklar rannsóknir embættis sérstaks saksóknara hafa skilað sér í því að vel yfir eitt hundrað
manns hafa réttarstöðu grunaðra.
Gera má ráð
fyrir að grun-
uðum fjölgi
verulega á
næstu mán-
uðum eftir því
sem embættið
kemst lengra
í rannsóknum
sínum á málum
sem nú eru á
byrjunarstigi.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i.
dóMSMál Meiðyrði
Eiður Smári vann DV og Inga Frey
Blaðamaður og ritstjórar DV dæmdir til að greiða sekt og miskabætur vegna umfjöllunar
r eynir Traustason og Jón Trausti Reynisson, ritstjórar DV, og Ingi
Freyr Vilhjálmsson, fréttastjóri á DV,
voru í gær, fimmtudag, dæmdir til að
greiða 150 þúsund krónur hver í sekt til
ríkissjóðs og saman 400 þúsund krónur
í miskabætur til knattspyrnukappans
Eiðs Smára Guðjohnsen vegna umfjöll-
unar Inga Freys og DV um fjármál hans.
Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi
Reykjavíkur.
Komst dómari að þeirri niðurstöðu að
umfjöllunin hefði brotið í bága við lög um
friðhelgi einkalífsins.
Reynir Traustason, ritstjóri DV, segir í
samtali við Fréttatímann að dómnum verði
að sjálfsögðu áfrýjað. „Dómurinn er há-
pólitískur,“ segir Reynir.
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson,
lögmaður Inga Freys, segir í samtali við
Fréttatímann að dómnum verði áfrýjað til
Hæstaréttar. Hann hafði sagt við aðalmeð-
ferð málsins að ef Eiður Smári ynni, gætu
blaðamenn alveg eins pakkað saman og
farið heim. Hann sagðist í gær standa við
þau orð sín. -óhþ
Eiði Smára
Guðjohnsen voru
dæmdar 400
þúsund krónur í
miskabætur.
Dómurinn er
hápótískur
N
or
di
c
Ph
ot
os
/G
et
ty
Im
ag
es
2 fréttir Helgin 11.-13. febrúar 2011